Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Sigurður Helgi Pálmason
7. þm. SU, Flf, SHP
Sigurður Helgi Pálmason

   
Sigurður Kristjánsson

Sigurður Kristjánsson

Fæddur á Ófeigsstöðum í Kinn 14. apríl 1885, dáinn 27. maí 1968. Foreldrar: Kristján Árnason (fæddur 2. maí 1852, dáinn 4. júlí 1915) bóndi þar og kona hans Kristín Ásmundsdóttir (fædd 4. október 1849, dáin 24. janúar 1903) húsmóðir. Maki (26. maí 1924): Ragna Pétursdóttir (fædd 14. ágúst 1904, dáin 21. nóvember 1955) húsmóðir: Foreldrar: Pétur Pálsson, sonur Páls Ólafssonar alþingismanns, og Þórey Kristjánsdóttir. Börn: Arndís (1924), Páll (1927), Kristján (1930), Kristján (1933), Kristín (1934), Sigurður (1935), Sigríður (1937), Geir (1939), Ragna (1941), Pétur (1943), Auður (1945).

Búfræðipróf Hólum 1907. Kennarapróf KÍ 1910.

Skólastjóri barnaskóla í Bolungarvík 1910—1911. Ráðunautur Búnaðarsambands Vestfjarða 1912—1917. Kennari á Ísafirði 1915—1930. Ritstjóri í Reykjavík 1930—1932. Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 1934—1938. Forstjóri Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum 1939—1956.

Bæjarfulltrúi á Ísafirði 1916—1922 og 1930—1931. Í milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum 1932 og 1938—1939. Í eftirlitsráði með opinberum rekstri 1934—1940. Í landsbankanefnd 1936—1956. Í Þingvallanefnd 1937—1949. Í togaraútgerðarnefnd 1938. Í milliþinganefnd um launakjör alþingismanna og í milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum 1943.

Alþingismaður Reykvíkinga 1934—1942 og 1942—1949, landskjörinn þingmaður (Reykvíkinga), 1942 (Sjálfstæðisflokkur).


Ritstjóri: Kjósandi (1919). Vesturland (1923—1930). Ísafold og Vörður (1930—1932). Heimdallur (1931—1934).


Síðast breytt 03.07.2020.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.