 Steingrímur Aðalsteinsson Fæddur á Mýrarlóni í Glæsibæjarhreppi 13. janúar 1903, dáinn 20. desember 1993. Foreldrar: Aðalsteinn Hallgrímsson (fæddur 14. janúar 1882, dáinn 27. ágúst 1914) húsmaður þar og kona hans Kristbjörg Þorsteinsdóttir (fædd 11. nóvember 1869, dáin 10. apríl 1947). Maki 1 (17. september 1932): Ingibjörg Guðrún Eiríksdóttir (fædd 23. febrúar 1892, dáin 13. desember 1972) kennari. Þau skildu. Foreldrar: Eiríkur Jónsson og kona hans Ingunn Gunnlaugsdóttir. Maki 2 (17. apríl 1948): Sigríður Jensína Þóroddsdóttir (fædd 13. nóvember 1915, dáin 4. desember 1999) húsmóðir. Foreldrar: Þóroddur Davíðsson og kona hans María Bjarnadóttir. Kjördóttir Steingríms og Ingibjargar: Gunnlaug Björk (1936). Börn Steingríms og Sigríðar: Kristbjörg (1950), Sólveig Bjarnheiður (1954), Aðalsteinn (1956). Stjúpsonur Steingríms, sonur Sigríðar: Rögnvaldur Reinharð Andrésson (1946). Gagnfræðapróf Akureyri 1924. Vinnumaður á Gilsá og Æsustöðum í Eyjafirði til 1922. Daglaunamaður í Glerárþorpi 1922—1932, á Akureyri 1932—1949. Fluttist þá til Reykjavíkur og stundaði þar leigubílaakstur til 1983. Fulltrúi í skrifstofu verðlagsstjóra 1957—1965. Bæjarfulltrúi á Akureyri 1934—1950. Landskjörinn alþingismaður (Akureyrar) 1942—1953 (Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn). Forseti efri deildar 1942—1946.
Ritstjóri: Verkamaðurinn (1933—1934). |