Vilhjálmur Egilsson Fæddur á Sauðárkróki 18. desember 1952. Foreldrar: Egill Bjarnason (fæddur 9. nóvember 1927, dáinn 15. apríl 2015) ráðunautur og kona hans Alda Vilhjálmsdóttir (fædd 20. nóvember 1928) verkstjóri. Maki (12. október 1974): Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir (fædd 17. september 1951) skáld og húsmóðir. Foreldrar: Ófeigur J. Ófeigsson og kona hans Ragnhildur Ásgeirsdóttir. Börn: Anna Katrín (1975), Bjarni Jóhann (1978), Ófeigur Páll (1985), Ragnhildur Alda (1990). Stúdentspróf MA 1972. Viðskiptafræðipróf HÍ 1977. MA-próf í hagfræði Suður-Kaliforníu-háskóla í Los Angeles 1980 og doktorspróf 1982. Framkvæmdastjóri SUS á sumrum 1976 og 1977. Hagfræðingur Félags íslenskra iðnrekenda sumurin 1978 og 1981. Hagfræðingur Vinnuveitendasambands Íslands 1982-1987. Framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands 1987-2003. Fulltrúi (skrifstofustjóri) í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Whashington 2003. Ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu 2004-2006. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins frá 2006. Í deildarráði viðskiptadeildar Háskóla Íslands 1976-1977. Ritstjóri Hagmála 1975-1976. Í kauplagsnefnd 1982-1987. Í þriggjamannanefnd Verðlagsráðs 1983-1987, í Verðlagsráði frá 1987. Í stjórn Íslensk-ameríska félagsins frá 1983. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1985-1987. Formaður EAN á Íslandi frá 1987 og formaður EDI-félagsins frá 1989. Stjórnarformaður Skjaldar hf., Sauðárkróki, 1989-1993. Í stjórn Handsals hf. 1991-1992. Í þingmannanefnd EFTA/EES frá 1991, formaður Íslandsdeildarinnar frá 1991 og formaður þingmannanefndarinnar 1991-1992. Formaður stjórnar Kvikmyndasjóðs 1994-2003. Alþingismaður Norðurlands vestra 1991-2003 (Sjálfstæðisflokkur). Varaþingmaður Norðurlands vestra febrúar-mars 1988. Sjávarútvegsnefnd 1991-1996 og 1997-2003, efnahags- og viðskiptanefnd 1991-2003 (formaður 1995-2003), sérnefnd um stjórnarskrármál 1992-1993, 1996-1997 og 1999, sérnefnd um fjárreiður ríkisins 1995-1997, kjörbréfanefnd 2001-2003. Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 1996-2003 (formaður).
Ritstjóri: Hagmál (1975-1976). |