 Björn Valur Gíslason Fæddur í Ólafsfirði 20. september 1959. Foreldrar: Gísli Magnússon Gíslason (fæddur 27. mars 1924, dáinn 27. september 2009) sjómaður og netagerðarmaður í Ólafsfirði og Sigurveig Anna Stefánsdóttir (fædd 15. maí 1930) húsmóðir og starfsmaður Ólafsfjarðarbæjar. Maki: Þuríður Lilja Rósenbergsdóttir (fædd 12. ágúst 1961) náms- og starfsráðgjafi. Foreldrar: Rósenberg Jóhannsson og Sigurbjörg Petra Hólmgrímsdóttir. Börn: Sigurveig Petra (1981), Berglind Harpa (1985), Katla Hrund (1990). Sonur Björns og Halldóru Salbjargar Björgvinsdóttur: Björgvin Davíð (fæddur 1976, dáinn 1992). Skipstjórnarpróf Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1984. Kennsluréttindi HA 2006. Sjómaður síðan 1975. Stýrimaður og skipstjóri á togaranum Sólbergi ÓF-12. Yfirstýrimaður og síðar skipstjóri á frystitogaranum Kleifabergi ÓF-2 síðan 1997. Hafði umsjón með fyrsta stigs námi við Stýrimannaskólann í Ólafsfirði 1986-1988. Leiðbeinandi í sjóvinnu við Gagnfræðaskólann í Ólafsfirði 1986-1988. Kennari á námskeiðum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum. Bæjarfulltrúi Vinstrimanna og óháðra og sat í ýmsum nefndum fyrir Ólafsfjarðarbæ 1986-1998. Formaður fræðslunefndar Ólafsfjarðarbæjar 2002-2006. Stjórnarmaður í Skipstjóra- og stýrimannafélagi Norðurlands í mörg ár. Í stjórn Félags skipstjórnarmanna. Í hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust. Hefur gefið út fjölmarga geisladiska með eigin lögum og annarra og haldið fjölda tónleika víða um land auk þess að hafa unnið að ýmsum menningartengdum atburðum í Ólafsfirði. Varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2013-2017. Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2009-2013 (Vinstrihreyfingin - grænt framboð). Varaþingmaður Norðurlands eystra desember 1990 (Alþýðubandalagið), Norðausturkjördæmis október-nóvember 2007, apríl 2008, október-nóvember 2008, Reykjavíkurkjördæmis norður júní-júlí 2013, október 2014, janúar 2015 og október-nóvember og desember 2015, mars 2016 og mars 2017 (Vinstrihreyfingin - grænt framboð). Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2011-2012. Fjárlaganefnd 2009-2013 (formaður 2012-2013), samgöngunefnd 2009-2011 (formaður), sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2009-2011, viðskiptanefnd 2011-2011, atvinnuveganefnd 2011-2013. Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 2009-2013. |