Fæddur á Hólum í Hjaltadal 14. maí 1802, dáinn 20. júní 1886. Foreldrar: Jón Jónsson (fæddur 15. október 1772, dáinn 17. júní 1866) konrektor, síðast prófastur á Grenjaðarstað og 2. kona hans Þorgerður Runólfsdóttir (fædd 5. janúar 1776, dáin 30. nóvember 1857) húsmóðir. Mágur Sveins Níelssonar alþingismanns. Maki 1 (4. júní 1825): Anna Árnadóttir (fædd 9. september 1798, dáin 29. júní 1866) húsmóðir. Foreldrar: Árni Árnason og kona hans Sigríður Benediktsdóttir. Maki 2 (18. janúar 1868): Hermannína Kristjana Finnsdóttir (fædd 12. september 1832, dáin 22. desember 1898) húsmóðir. Foreldrar: Finnur Árnason og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir. Börn Björns og Önnu: Þorgerður (1826), Þorgerður (1828), Hildur (1830), Páll (1831), Magnús (1837).
Bóndi á Möðruvöllum í Hörgárdal 1826—1827 og 1829—1835, í Auðbrekku 1827—1829 og 1839—1845, í Hvammi 1835—1836 og í Litla-Dunhaga 1836—1839. Verslunarstjóri á Siglufirði 1845—1847 og á Akureyri 1847—1852. Ritstjóri á Akureyri 1853—1855 og 1862—1885.