Lagasafn.  Íslensk lög 1. október 2003.  Útgáfa 129.  Prenta í tveimur dálkum.


Sveitarstjórnarlög

1998 nr. 45 3. júní


Tóku gildi 1. júní 1998. Breytt með l. 100/1998 (tóku gildi 10. júlí 1998), l. 123/1998 (tóku gildi 3. des. 1998) og l. 74/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003).


I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Almennt.
Landið skiptist í staðbundin sveitarfélög sem ráða sjálf málefnum sínum á eigin ábyrgð.
Sveitarfélög eru lögaðilar.
Hver maður telst íbúi þess sveitarfélags þar sem hann á lögheimili.
2. gr. Yfirstjórn sveitarstjórnarmála.
Félagsmálaráðuneytið fer með málefni sveitarfélaga.
Engu málefni sem varðar sérstaklega hagsmuni sveitarfélags skal ráðið til lykta án umsagnar sveitarstjórnarinnar.
3. gr. Staðarmörk sveitarfélaga.
Sveitarfélag hefur ákveðin staðarmörk. Óheimilt er að breyta þeim nema með lögum.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur ráðuneytið breytt mörkum sveitarfélaga í sambandi við sameiningu þeirra eða til staðfestingar á samkomulagi milli sveitarstjórna.
4. gr. Heiti sveitarfélaga.
Sveitarstjórn ákveður nafn sveitarfélags að fenginni umsögn örnefnanefndar. Ef könnun er gerð á viðhorfi íbúa sveitarfélags til breytingar á nafni þess, t.d. vegna sameiningar sveitarfélaga, skal leita umsagnar örnefnanefndar um þau nöfn sem kjósa skal um. Nefndin skal skila áliti sínu innan þriggja vikna. Nafn sveitarfélags skal samrýmast íslenskri málfræði og málvenju. Eigi má breyta nafni sveitarfélags nema með staðfestingu ráðuneytisins. Birta skal staðfestingu á nafnbreytingu sveitarfélags í Stjórnartíðindum.
5. gr. Byggðarmerki.
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða byggðarmerki fyrir sveitarfélag.
Byggðarmerki skulu skráð hjá Einkaleyfastofunni sem veitir umsóknum viðtöku og kannar skráningarhæfi merkjanna. Umsókn skal fylgja tilskilið gjald.
Skráning byggðarmerkis veitir sveitarfélagi einkarétt á notkun þess.
Iðnaðarráðherra setur nánari reglur 1) um skráningu byggðarmerkja, m.a. varðandi umsóknir og meðferð þeirra, skilyrði fyrir skráningu, ógildingu, birtingu og gjöld fyrir umsóknir og vottorð úr byggðarmerkjaskrá.
    1)Rg. 112/1999.
6. gr. Lágmarksíbúatala.
Lágmarksíbúatala sveitarfélags er 50 íbúar.
Nú hefur íbúafjöldi sveitarfélags verið lægri en 50 í þrjú ár samfleytt og skal ráðuneytið þá eiga frumkvæði að því að sameina það nágrannasveitarfélagi. Einnig má þá skipta hinu fámenna sveitarfélagi milli nágrannasveitarfélaga.
Undantekningu frá þessu ákvæði skal gera ef sérstakar aðstæður hindra það að mati ráðuneytisins að íbúar hins fámenna sveitarfélags geti myndað félagslega heild með íbúum nágrannasveitarfélags.
7. gr. Almennar skyldur sveitarfélaga.
Skylt er sveitarfélögum að annast þau verkefni sem þeim eru falin í lögum.
Sveitarfélög skulu vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.
Sveitarfélög geta tekið að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þeirra, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
Sveitarfélög skulu hafa sjálfstæða tekjustofna og sjálfsforræði á gjaldskrá eigin fyrirtækja og stofnana til þess að mæta kostnaði við framkvæmd þeirra verkefna sem fyrirtækin og stofnanirnar annast.
Sveitarfélög skulu setja sér stefnu um arðgjafar- og arðgreiðslumarkmið í rekstri fyrirtækja sinna og stofnana og er heimilt að ákveða sér eðlilegan afrakstur af því fjármagni sem bundið er í rekstri þeirra.

II. kafli. Sveitarstjórnir og sveitarstjórnarfundir.
8. gr. Sveitarstjórn.
Í hverju sveitarfélagi skal vera sveitarstjórn sem kjörin er samkvæmt ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna.
9. gr. Hlutverk og verksvið sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum laga þessara og annarra laga.
Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna sveitarfélagsins og um framkvæmd þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast, að svo miklu leyti sem ekki eru settar um það reglur í löggjöf.
Sveitarstjórn skal sjá um að lögbundin verkefni sveitarfélagsins séu rækt og að fylgt sé þeim reglum um meðferð sveitarstjórnarmála sem ákveðnar eru í lögum, reglugerðum og samþykktum sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn getur ályktað um hvert það málefni sem hún telur að varði sveitarfélagið.
10. gr. Samþykkt um stjórn og stjórnsýslu.
Sveitarstjórnir skulu gera sérstaka samþykkt um stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins og um meðferð þeirra málefna sem sveitarfélagið annast. Slík samþykkt skal send ráðuneytinu til staðfestingar. 1)
    1) Augl. 106/1987.
11. gr. Heiti sveitarstjórna o.fl.
Yfirstjórn hvers sveitarfélags nefnist sveitarstjórn. Heimilt er sveitarstjórn að nota heitið hreppsnefnd eða bæjarstjórn, enda byggi slík málnotkun á hefð. Byggðaráð skv. 38. gr. má á sama hátt nefnast bæjarráð eða hreppsráð og sveitarstjóra má kalla bæjarstjóra.
Í Reykjavík nefnist sveitarstjórnin borgarstjórn, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins borgarstjóri og byggðarráð sveitarfélagsins borgarráð.
Heiti sveitarstjórnar, byggðarráðs og framkvæmdastjóra er ákveðið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
12. gr. Fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn.
Í sveitarstjórn skal fjöldi sveitarstjórnarmanna standa á oddatölu og vera innan þeirra marka sem hér greinir:
    a. þar sem íbúar eru innan við 200 3–5 aðalmenn,
    b. þar sem íbúar eru 200–999 5–7 aðalmenn,
    c. þar sem íbúar eru 1.000–9.999 7–11 aðalmenn,
    d. þar sem íbúar eru 10.000–49.999 11–15 aðalmenn,
    e. þar sem íbúar eru 50.000 eða fleiri 15–27 aðalmenn.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ekki skylt að fækka eða fjölga aðalmönnum í sveitarstjórn fyrr en íbúatala sveitarfélags hefur verið hærri eða lægri en viðmiðunarmörkin í átta ár samfellt.
Kveðið skal á um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
13. gr. Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar.
Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag.
Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórninni kveður hana til fyrsta fundar eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar og stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórninni fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.
14. gr. Kjör oddvita og varaoddvita.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar kýs sveitarstjórn oddvita og einn eða fleiri varaoddvita. Stöðuheiti oddvita sveitarstjórnar má ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Kjörtímabil oddvita og varaoddvita er eitt ár. Nú nýtur oddviti ekki lengur stuðnings meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn og skal hann þá víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.
Sá er rétt kjörinn oddviti eða varaoddviti sem hefur fengið atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju og skal þá kjósa um þá tvo er flest fengu atkvæðin. Ef þrír eða fleiri sem um skyldi kjósa hafa fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til ráðuneytisins þegar að því loknu.
Ef oddviti deyr, verður varanlega forfallaður frá sveitarstjórnarstörfum eða nýtur ekki lengur trausts sveitarstjórnar sem oddviti áður en kjörtími hans er á enda skal kjósa oddvita í hans stað það sem eftir er kjörtímabilsins.
15. gr. Sveitarstjórnarfundir.
Sveitarstjórnir skulu halda reglulega fundi eftir því sem sveitarstjórn ákveður fyrir fram eða mælt er fyrir um í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins. Fundi skal halda eigi sjaldnar en ársfjórðungslega og sveitarstjórnir þar sem byggðarráð er kjörið skulu halda fundi eigi sjaldnar en mánaðarlega. Heimilt er þó sveitarstjórn að fella niður fundi í allt að tvo mánuði á hverju sumri. Aukafundi skal halda eftir þörfum.
Skylt er að kveðja sveitarstjórn saman til fundar þegar a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna krefst þess.
16. gr. Opnir fundir.
Sveitarstjórnarfundir skulu haldnir fyrir opnum dyrum. Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar slíkt telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins.
17. gr. Boðun sveitarstjórnarfunda.
Framkvæmdastjóri sveitarfélags boðar sveitarstjórnarfundi á þann hátt sem sveitarstjórn ákveður. Hann ákveður einnig fundarstað og fundartíma hafi sveitarstjórn eigi gert það.
18. gr. Auglýsing sveitarstjórnarfunda.
Íbúum sveitarfélags skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórn heldur fundi.
Sveitarstjórn skal í upphafi kjörtímabils taka ákvörðun um hvernig fundir hennar eru auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, t.d. í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.
Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélags hafi greiðan aðgang að auglýsingu um sveitarstjórnarfundi.
Þegar dagskrá sveitarstjórnarfundar hefur verið samin og send sveitarstjórnarmönnum skal hún vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins, svo sem á auglýsingatöflu sveitarfélagsins, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti er sveitarstjórn ákveður.
19. gr. Hæfi sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.
Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélaga og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin fjallar um málið. Ákvæði þetta á þó ekki við um framkvæmdastjóra sveitarfélags.
Ákvæði 3. mgr. á ekki við þegar sveitarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.
Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli á því. Sveitarstjórnarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver sveitarstjórnarmanna sé vanhæfur. Sveitarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.
20. gr. Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Sveitarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur sveitarstjórnarmanna sé viðstaddur á fundi.
Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.
21. gr. Tvær umræður í sveitarstjórn.
Sveitarstjórnir skulu hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:
    a. fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja,
    b. ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja,
    c. samþykktir og reglugerðir sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra,
    d. áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem skipulags- og framkvæmdaáætlanir,
    e. beiðni um aðstoð skv. 75. gr.
22. gr. Hlutverk oddvita.
Oddviti stjórnar umræðum á fundum sveitarstjórnar. Hann sér um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók sveitarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.
23. gr. Fundargerðir.
Fundargerðir sveitarstjórnarfunda skal rita í gerðabók í samræmi við fundarsköp sveitarstjórnarinnar. Sveitarstjórn er heimilt að ráða sér fundarritara.
Allir kjörnir sveitarstjórnarmenn sem mættir eru skulu undirrita fundargerðir sveitarstjórnar nema sveitarstjórn ákveði annað í einstökum tilvikum.
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók sveitarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Sveitarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók.
Í lok fundar skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.
Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn í fundargerðabók sveitarstjórnar til varanlegrar varðveislu.
24. gr. Varamenn.
Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalfulltrúar þess lista sem þeir eru kosnir af falla frá, flytjast burtu eða forfallast varanlega á annan hátt eða um stundarsakir frá því að sitja í sveitarstjórn.
Nú er framboðslisti borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum og geta þá aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Yfirlýsing um slíkt samkomulag skal lögð fram á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar eftir kosningar.
Nú næst ekki samkomulag milli stjórnmálaflokka eða samtaka sem standa að sameiginlegum lista, og skulu þá þeir varamenn listans, sem eru úr sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalmaður sá sem um er að ræða, taka sæti hans í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna slíks lista í sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalfulltrúinn sem í hlut á var þegar kosning fór fram taka varamenn listans sæti samkvæmt venjulegum reglum.
Þegar aðalmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má ákveða að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Tekur þá varamaður hans sæti samkvæmt framangreindum reglum.
25. gr. Fundarsköp sveitarstjórnar.
Sveitarstjórnir skulu setja sér fundarsköp sem senda skal ráðuneytinu til staðfestingar ásamt samþykkt skv. 10. gr.
Ráðuneytið semur fyrirmynd að fundarsköpum fyrir sveitarstjórnir og birtir hana í Stjórnartíðindum. 1) Gilda þau fyrir sveitarstjórn þar til staðfest hafa verið sérstök fundarsköp fyrir hana.
    1) Augl. 106/1987.
26. gr. Sveitarstjórn óstarfhæf vegna neyðarástands.
Nú verður sveitarstjórn óstarfhæf tímabundið vegna neyðarástands í sveitarfélaginu, svo sem af völdum náttúruhamfara, og getur þá ráðuneytið að beiðni sveitarstjórnarinnar falið sveitarstjórn nágrannasveitarfélags að fara með stjórn sveitarfélagsins uns sveitarstjórnin verður starfhæf á ný.

III. kafli. Réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
27. gr. Mæting á fundi o.fl.
Sveitarstjórnarmanni ber skylda til að sækja alla sveitarstjórnarfundi og fundi í nefndum á vegum sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli.
Hver sveitarstjórnarmaður er skyldur til að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar.
28. gr. Afstaða til einstakra mála o.fl.
Sveitarstjórnarmaður er einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni um afstöðu til einstakra mála og honum ber að gegna störfum af alúð og samviskusemi.
Vilji sveitarstjórnarmaður eigi una úrskurði oddvita varðandi stjórn og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.
29. gr. Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur o.fl.
Aðalmenn í sveitarstjórnum hafa málfrelsi á fundum sveitarstjórna eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum. Þeir hafa og tillögurétt, atkvæðisrétt og kjörgengi í nefndir.
30. gr. Aðgangur að gögnum.
Aðalmenn í sveitarstjórnum skulu vegna starfa sinna í sveitarstjórn hafa aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og óhindraðan aðgang að stofnunum þess og starfsemi.
31. gr. Bókanir í fundargerðir.
Þeir sem rétt eiga til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir sínar um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
32. gr. Þagnarskylda.
Sveitarstjórnarmenn skulu gæta þagnarskyldu um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að sveitarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.
33. gr. Skylda til að taka kjöri.
Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins.
Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum.
34. gr. Lausn frá störfum.
Nú telur sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Missi fulltrúi í sveitarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr.
Nú er sveitarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði og skal sveitarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
35. gr. Þóknun og ferðakostnaður.
Skylt er sveitarstjórn að ákveða hæfilega þóknun til sveitarstjórnarmanna fyrir störf þeirra. Sé um langan veg að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundarstaðar sveitarstjórnar getur sveitarstjórn auk þess ákveðið honum hæfilega greiðslu ferðakostnaðar.
Nú tekst sveitarstjórnarmaður ferð á hendur í þágu sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar og á hann þá rétt til greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
36. gr. Orlof o.fl.
Sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að störfum sveitarstjórnar sé þannig hagað að þeir geti tekið sér hæfilegt orlof árlega.
Sveitarstjórn er heimilt að setja í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins ákvæði um réttindi sveitarstjórnarmanna, svo sem varðandi lífeyrissjóði, barnsburðarleyfi, biðlaun o.þ.h.
37. gr. Réttindi og skyldur varamanna.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna eiga einnig við um varamenn sem taka sæti í sveitarstjórnum.

IV. kafli. Nefndir, ráð og stjórnir.
38. gr. Kosning byggðarráðs.
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að kosið skuli byggðarráð. Í sveitarstjórnum sem skipaðar eru þremur eða fimm aðalfulltrúum verður þó eigi kosið sérstakt byggðarráð.
Byggðarráð skal kjörið til eins árs í senn nema annað sé ákveðið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Í sveitarstjórnum sem skipaðar eru sjö eða níu fulltrúum skal byggðarráð skipað þremur aðalmönnum úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórn, en fimm eða sjö aðalmönnum þar sem ellefu eða fleiri fulltrúar eru í sveitarstjórn. Jafnmargir varamenn skulu kosnir. Sveitarstjórn er þó heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að þeir aðalfulltrúar og varafulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni byggðarráðsmaður, verði varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.
Formaður byggðarráðs skal valinn úr hópi kjörinna byggðarráðsmanna.
Sveitarstjórn, sem kjörin er bundinni hlutfallskosningu, getur heimilað framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn en eigi nær kjöri í byggðarráð að tilnefna fulltrúa til að sitja fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétti. Skal heimila framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn en eigi í byggðarráði slíkan rétt þann tíma sem sveitarstjórn fellir niður fundi sína vegna sumarleyfis.
Framkvæmdastjóri sveitarfélags situr fundi byggðarráðs með málfrelsi og tillögurétti en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn og kosinn í byggðarráðið.
39. gr. Hlutverk byggðarráðs.
Byggðarráð fer ásamt framkvæmdastjóra sveitarfélags með framkvæmdastjórn þess og fjármálastjórn, að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. Það hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins almennt og fjárstjórn þess sérstaklega, undirbýr fjárhagsáætlanir og sér um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt.
Heimilt er að láta byggðarráð taka að meira eða minna leyti við starfi fastra nefnda.
Byggðarráði er heimil fullnaðarákvörðun mála sem eigi varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við framkvæmdastjóra um ákvörðunina.
Um byggðarráð gilda að öðru leyti ákvæði þessa kafla.
40. gr. Kosning í aðrar nefndir, ráð og stjórnir.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt um stjórn sveitarfélagsins og veitir þeim lausn frá störfum. Kjörtímabil slíkra nefnda skal vera hið sama og kjörtímabil sveitarstjórnar nema annað sé ákveðið í lögum eða af sveitarstjórn.
Kosningar í byggðarráð, nefndir, ráð og stjórnir skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað.
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir á vegum sveitarfélags sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn er heimilt að skipta um fulltrúa í nefndum hvenær sem er á kjörtímabili nefndar, svo sem þegar nefndarmenn njóta ekki lengur trausts meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Enn fremur er fulltrúum í nefndum heimilt að segja af sér nefndarstörfum hvenær sem er á kjörtímabilinu.
Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að fara með einstaka málaflokka á kjörtímabilinu.
Þá kýs sveitarstjórn fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélag á aðild að samkvæmt viðkomandi samþykktum eða lögum.
Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda getur sveitarstjórn afturkallað hvenær sem er og fellur það sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils viðkomandi sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn getur kosið nefnd til að fara með afmörkuð málefni í hluta sveitarfélags. Ákveða má í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að slíka nefnd skuli kjósa í almennum kosningum í viðkomandi hluta sveitarfélagsins.
41. gr. Sameining nefnda.
Heimilt er sveitarstjórn að sameina nefndir þannig að ein nefnd fari með verkefni á fleiri en einu sviði þótt svo sé kveðið á í lögum að kjósa skuli sérstaka nefnd til þess að fara með tiltekin verkefni.
Í sveitarfélögum þar sem erfiðlega horfir með að manna nefndir er sveitarstjórn heimilt að fara sjálf með verkefni lögskipaðrar nefndar nema verkefni nefndarinnar sé ósamrýmanlegt störfum sveitarstjórnar að mati ráðuneytisins.
42. gr. Kjörgengi starfsmanna.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélags eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.
43. gr. Varamenn.
Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, flyst burt eða forfallast varanlega á annan hátt tekur varamaður sæti hans, sbr. fyrri málslið, nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar hafa haft samstarf um nefndarkosningar skal þó sá aðili, sem tilnefndi viðkomandi mann til setu í nefnd, einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu, sbr. 24. gr.
44. gr. [Hlutverk og valdsvið nefnda.
Sveitarstjórn ákveður valdsvið nefnda, ráða og stjórna sem hún kýs nema slíkt sé ákveðið í lögum.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið í samþykkt sveitarfélagsins, sbr. 10. gr. þessara laga, að fela nefnd, ráði eða stjórn sveitarfélagsins fullnaðarafgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarfélagsins nema lög eða eðli máls mæli sérstaklega gegn því.
Á sama hátt og með sömu skilyrðum og getur í 2. mgr. er sveitarstjórn heimilt að fela öðrum aðilum innan stjórnsýslu sveitarfélagsins fullnaðarafgreiðslu mála. Sveitarstjórn, byggðarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.
Sá aðili sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu skv. 3. mgr., eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd, ráð eða stjórn er að ræða, sbr. 2. mgr., getur ávallt óskað eftir því að sveitarstjórn, byggðarráð eða viðkomandi nefnd samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins taki ákvörðun í máli.
Þegar sveitarstjórn neytir heimildar skv. 2. eða 3. mgr. skal jafnframt kveðið á um það í samþykkt sveitarfélagsins hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.] 1)
    1)L. 74/2003, 1. gr.
45. gr. Boðun fyrsta fundar.
Framkvæmdastjóri sveitarfélags boðar nefndir, ráð og stjórnir saman til fyrsta fundar eftir að þær hafa verið kjörnar eða ákveður hver annist fundarboðun nema sveitarstjórn hafi kjörið formann sérstaklega. Ákveður þá formaðurinn um boðun til fyrsta fundar.
Framkvæmdastjóri getur kallað saman tvær eða fleiri nefndir til að ræða mál er varða starfssvið fleiri nefnda en einnar.
46. gr. Kjör formanns, varaformanns og ritara og hlutverk þeirra.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara sé ekki annað ákveðið í lögum eða af sveitarstjórn.
Formaður nefndar boðar nefndarfundi eða lætur boða með hæfilegum fyrirvara.
Nefndarformaður stjórnar fundi. Fundir skulu að jafnaði haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund starfsmenn sveitarfélags ef hún telur þess þörf. Hún getur einnig boðið öðrum aðilum að koma á fund nefndarinnar til viðræðna um tiltekin mál.
47. gr. Réttindi og skyldur fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum.
Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.
Ákvæði II. og III. kafla laga þessara gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags eftir því sem við á.
48. gr. Fundargerðir.
Nefndir, ráð og stjórnir á vegum sveitarfélags skulu halda gerðabók sem fundargerðir eru færðar í. Fundargerðir nefnda skal skrá með sams konar hætti og fundargerðir sveitarstjórna, sbr. 23. gr.
Sé um ráðgefandi nefnd að ræða, sem ekki hefur verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt sveitarfélagsins, teljast ályktanir hennar tillögur til sveitarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar.
49. gr. Afgreiðsla fundargerða.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir byggðarráð og/eða fullskipaða sveitarstjórn eftir því hver háttur er hafður á fullnaðarafgreiðslu í viðkomandi málaflokki. Ef fundargerðir nefnda innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Ályktun nefndar, sem hefur fjárútlát í för með sér, skal lögð fyrir sveitarstjórn eða byggðarráð hennar eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Fundargerðir skulu fylgja dagskrá reglulegra sveitarstjórnarfunda.
50. gr. Þóknun.
Sveitarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags hæfilega þóknun fyrir þau störf samkvæmt mati sveitarstjórnar í samræmi við reglur er hún setur, svo og greiðslu ferða- og dvalarkostnaðar í samræmi við 35. gr.
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags.

V. kafli. Framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélaga.
51. gr. Almennt.
Sveitarstjórn ræður framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn skv. 56. gr. til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins.
52. gr. Ekki ráðinn framkvæmdastjóri.
Sé eigi ráðinn sérstakur framkvæmdastjóri sveitarfélags hefur oddviti með höndum daglega stjórn sveitarfélagsins, undirbýr fundi sveitarstjórnar og byggðarráðs, ef kosið er, annast framkvæmd ákvarðana hennar og annarra málefna sveitarfélagsins, svo sem bréfaskipti, gjaldheimtu og reikningshald.
53. gr. Laun oddvita þar sem eigi er starfandi framkvæmdastjóri.
Laun oddvita þar sem eigi er starfandi framkvæmdastjóri eða annar starfsmaður við stjórn sveitarfélagsins skulu ákveðin sérstaklega af sveitarstjórn. Launin skulu endurskoðuð reglulega í samræmi við almennar launabreytingar í landinu.
Ef um er að ræða sérstakar, umfangsmiklar og tímabundnar framkvæmdir á vegum sveitarfélags sem oddviti sér um skal hann eiga rétt á sérstakri þóknun fyrir þau störf samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.
Láti oddviti í té húsnæði og aðra aðstöðu vegna skrifstofuhalds og fundahalda í þágu sveitarfélags á hann rétt á sérstakri greiðslu fyrir þá þjónustu.
54. gr. Ráðning framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn er heimilt að ráða framkvæmdastjóra sveitarfélags. Heimilt er tveimur sveitarfélögum eða fleiri að ráða sameiginlega framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin.
Ráðningartími framkvæmdastjóra sveitarfélags skal að jafnaði vera sami og kjörtími sveitarstjórnar. Heimilt er að ráða framkvæmdastjóra sveitarfélags til óákveðins tíma en uppsagnarfrestur skal þá vera þrír mánuðir af beggja hálfu miðað við mánaðamót.
Taka skal sérstaklega fram í ráðningarsamningi við framkvæmdastjóra hvort ráðningin miðist við kjörtíma sveitarstjórnar eða gildi um óákveðinn tíma.
55. gr. Verksvið framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri sveitarfélags skal sitja fundi sveitarstjórnar og hefur hann þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélags með sömu réttindum.
Framkvæmdastjóri undirbýr fundi sveitarstjórnar og byggðarráðs og hefur á hendi framkvæmd þeirra ákvarðana sem sveitarstjórn tekur.
Framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Framkvæmdastjóra er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar sveitarsjóðs skulu vera fjár síns ráðandi.
Framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.
Framkvæmdastjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags skal setja nánari ákvæði um verksvið framkvæmdastjóra og mörk milli þess og ákvörðunarvalds sveitarstjórnar og byggðarráðs.
56. gr. Ráðning annarra starfsmanna.
Sveitarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélagi og stofnunum þess og veitir þeim lausn frá starfi.
Um ráðningu annarra starfsmanna fer eftir ákvæðum í samþykkt um stjórn sveitarfélags. Séu þar eigi sérstök ákvæði þessa efnis gefur sveitarstjórn almenn fyrirmæli um hvernig staðið skuli að ráðningu starfsmanna.
57. gr. Starfskjör, réttindi og skyldur.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélaga fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.
[Starfsmenn sveitarfélaga eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.] 1)
    1)L. 74/2003, 2. gr.

VI. kafli. Fjármál sveitarfélaga.
58. gr. Almennt um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga.
Sveitarfélög, þ.e. sveitarsjóðir, stofnanir sveitarfélaga og fyrirtæki þeirra, eru bókhaldsskyld.
Bókhaldi skal hagað á skýran og aðgengilegan hátt og skulu reikningsskil gefa glögga mynd af rekstri og efnahag sveitarfélagsins í heild. Að svo miklu leyti sem við á gilda ákvæði laga um bókhald og laga um ársreikninga, svo og aðrar góðar bókhalds- og reikningsskilavenjur.
59. gr. Reikningsárið.
Reikningsár sveitarfélaga skal vera almanaksárið.
60. gr. Flokkun í reikningsskilum sveitarfélaga.
Í reikningsskilum sveitarfélaga skal skipta starfsemi þeirra þannig:
    a. sveitarsjóður, sem í lögum þessum merkir aðalsjóð sveitarfélags auk annarra sjóða og stofnana er sinna starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð af skatttekjum,
    b. stofnanir sveitarfélaga, fyrirtæki og aðrar rekstrareiningar sem að hálfu eða meiri hluta eru í eigu sveitarfélaga og eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar.
61. gr. Fjárhagsáætlun.
[Fyrir lok desembermánaðar skal sveitarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun næsta árs fyrir sveitarsjóð og stofnanir sveitarfélagsins.] 1) Ráðuneytið getur veitt sveitarstjórnum lengri frest þegar brýnar ástæður eru fyrir hendi.
Fjárhagsáætlun samkvæmt þessari grein skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins á viðkomandi reikningsári. Við gerð fjárhagsáætlunar skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélags, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.
Fjárhagsáætlun skal rædd á tveimur fundum í sveitarstjórn með a.m.k. einnar viku millibili.
Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings [og stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru skv. 4. mgr. 67. gr. um fjárhagsáætlanir]. 1)
    1)L. 74/2003, 3. gr.
62. gr. Breytingar á fjárhagsáætlun.
Heimilt er að endurskoða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélags og gera á henni nauðsynlegar breytingar ef í ljós koma breytingar á forsendum fjárhagsáætlunar. Sveitarstjórn afgreiðir slíkar breytingar á fjárhagsáætlun við eina umræðu. Breytingartillögur skulu sendar öllum fulltrúum í sveitarstjórn með dagskrá viðkomandi sveitarstjórnarfundar.
Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun skal hún jafnframt kveða á um hvernig útgjöldum skuli mætt. Samþykkt slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætlun.
[Ef sveitarstjórn tekur ákvörðun um verulegar skuldbindingar sem ekki koma fram í fjárhagsáætlun, þ.m.t. langtímaskuldbindingar samkvæmt leigusamningum, samningum um rekstur fasteigna eða þjónustu við íbúa eða sambærilegum samningum, skal hún tilkynna þá ákvörðun til eftirlitsnefndar, sbr. 74. gr.] 1)
    1)L. 74/2003, 4. gr.
63. gr. Þriggja ára áætlun.
Til viðbótar fjárhagsáætlun skv. 61. gr. skal sveitarstjórn árlega semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Áætlunin skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins og skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan [tveggja mánaða] 1) frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar skv. 61. gr.
[Form þriggja ára áætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings og stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru skv. 4. mgr. 67. gr. um þriggja ára áætlanir.] 1)
    1)L. 74/2003, 5. gr.
64. gr. [Útgjöld úr sveitarsjóði og meðferð fjármuna og fasteigna.]1)
[Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar í meðferð fjármuna sveitarfélagsins og tryggja örugga ávöxtun þeirra.
Sveitarstjórn skal á hverjum tíma tryggja umráðarétt yfir fasteignum sem eru nauðsynlegar til að lögboðin verkefni sveitarfélagsins verði rækt.] 1)
Til útgjalda sem ekki eru lögbundin, samningsbundin eða leiðir af fyrri samþykkt sveitarstjórnar má ekki stofna nema til komi samþykki sveitarstjórnar.
    1)L. 74/2003, 6. gr.
65. gr. [Miklar fjárfestingar og sala fasteigna.]1)
Hyggist sveitarstjórn ráðast í fjárfestingu og áætlaður heildarkostnaður eða hlutur sveitarfélagsins í henni nemur hærri fjárhæð en fjórðungi skatttekna yfirstandandi reikningsárs er skylt að leggja fyrir sveitarstjórn umsögn sérfróðs aðila um kostnaðaráætlunina, væntanleg áhrif hennar á fjárhagsafkomu sveitarsjóðs á fyrirhuguðum verktíma og áætlun um árlegan rekstrarkostnað fyrir sveitarsjóð, sé um hann að ræða. Jafnframt skal gerð grein fyrir því hvernig framkvæmdin samræmist þriggja ára áætlun sveitarfélagsins.
[Á sama hátt skal afla álits sérfróðs aðila áður en sveitarstjórn staðfestir samninga um framkvæmdir eða þjónustu við íbúa sveitarfélagsins sem gilda eiga til langs tíma og hafa í för með sér verulegar skuldbindingar fyrir sveitarsjóð. Þetta gildir einnig um samninga um sölu og endurleigu fasteigna sem falla undir 2. mgr. 73. gr.
Ákveði sveitarstjórn að selja fasteignir sveitarfélags sem falla undir 2. mgr. 73. gr. skal hún tilkynna þá ákvörðun til eftirlitsnefndar. Eftirlitsnefnd skal kanna hvaða fjárhagslegu áhrif salan hefur á rekstur sveitarfélagsins. Eftirlitsnefnd getur sett fram tillögur sínar til viðkomandi sveitarstjórnar um ráðstöfun söluandvirðis eða ávöxtun þess. Ráðherra getur, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, sett í reglugerð nánari fyrirmæli um form tilkynninga, viðmiðanir við athugun eftirlitsnefndar og önnur atriði er varða framkvæmd ákvæðisins.] 1)
    1)L. 74/2003, 7. gr.
66. gr. Skil á fjárhagsáætlun o.fl. til ráðuneytisins.
Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnar skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 61. gr. og þriggja ára áætlun skv. 63. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 62. gr.
67. gr. Ársreikningur.
Semja skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal semja samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr.
Ársreikningurinn skal gerður samkvæmt lögum, reglum og góðri reikningsskilavenju.
Ársreikningur skal sýna yfirlit um rekstur og framkvæmdir á reikningsárinu og efnahagsreikning í lok reikningsárs ásamt skýringum. Í ársreikningi skal sýna fjárhagsáætlun reikningsársins til samanburðar og í honum skal koma fram yfirlit um fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins.
Ráðherra setur með reglugerð 1) nánari ákvæði um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga að höfðu samráði við Hagstofu Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga.
    1)Rg. 944/2000, sbr. augl. 414/2001, rg. 721/2001 og augl. 790/2001, 156/2002, 802/2002 og 803/2002.
68. gr. Endurskoðun ársreiknings.
Sveitarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
Heimilt er þó sveitarstjórn að ákveða að endurskoðun sveitarsjóðs, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins verði falin sérstakri endurskoðunarstofnun á vegum sveitarfélagsins. Skal slík endurskoðunarstofnun vera undir stjórn forstöðumanns sem skal hafa löggildingu sem endurskoðandi. Stofnunin skal heyra beint undir sveitarstjórn og vera óháð öllum nefndum, ráðum, stjórnum, fyrirtækjum og stofnunum sveitarfélagsins við framkvæmd endurskoðunarinnar.
Endurskoðandi sveitarfélags skal haga endurskoðun í samræmi við lög og reglur og góðar endurskoðunarvenjur eins og þær eru á hverjum tíma hjá opinberum aðilum. Með endurskoðun sinni skal hann komast að rökstuddri niðurstöðu um áreiðanleika ársreiknings og ganga úr skugga um að fylgt hafi verið ákvæðum laga, reglna og samþykkta um meðferð fjármuna og upplýsingaskyldu sveitarfélaga.
Endurskoðandi sveitarfélags skal kynna skoðunarmönnum skv. 69. gr. athugun sína og endurskoðun tímanlega fyrir áritun ársreiknings.
69. gr. Skoðunarmenn.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar skal hún kjósa tvo skoðunarmenn og jafnmarga til vara til loka kjörtímabils sveitarstjórnar. Skoðunarmenn skulu hafa kosningarrétt og kjörgengi í hlutaðeigandi sveitarfélagi. Aðal- og varamenn í sveitarstjórn og starfsmenn sveitarfélagsins eru eigi kjörgengir sem skoðunarmenn hjá sveitarfélaginu.
Skoðunarmenn skulu yfirfara ársreikning sveitarfélagsins. Einnig skulu þeir athuga einstök fjárhagsleg málefni sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja eftir því sem þeim þykir ástæða til.
Skoðunarmenn skulu koma tímanlega á framfæri við endurskoðanda sveitarfélags þeim ábendingum og upplýsingum sem þeir telja að við eigi og geti orðið innlegg í endurskoðunarstarfið.
70. gr. Aðgangur að upplýsingum.
Skylt er að veita endurskoðanda og skoðunarmönnum aðstöðu til þess að gera þær athuganir sem þeir telja nauðsynlegar. Þeir skulu fá aðgang að öllum eignum, bókum, fylgiskjölum og öðrum gögnum sveitarfélags. Sveitarstjórn og starfsmenn sveitarfélags skulu veita þeim allar þær upplýsingar sem starfinu tengjast, þeir óska og unnt er að láta í té.
71. gr. Áritun ársreiknings.
Endurskoðandi og skoðunarmenn skulu árita ársreikninginn.
Endurskoðandi skal gefa yfirlýsingu um að ársreikningurinn hafi verið endurskoðaður og að hann hafi verið saminn í samræmi við ákvæði laga, reglna og samþykkta. Endurskoðandi skal enn fremur láta í ljós skriflegt álit sitt á ársreikningnum og greina frá niðurstöðu endurskoðunarinnar að öðru leyti.
Skoðunarmenn skulu í áritun sinni staðfesta að þeir hafi yfirfarið ársreikninginn og jafnframt greina frá niðurstöðum athugana sinna.
Telji endurskoðandi og skoðunarmenn að í ársreikningi séu ekki þær upplýsingar sem þar eiga að koma fram skulu þeir geta þess í áritun sinni, gera grein fyrir því í greinargerð og veita viðbótarupplýsingar ef þess er kostur. Að öðru leyti geta þeir greint frá þeim atriðum sem þeir telja eðlilegt að fram komi í ársreikningi.
Ábendingar og athugasemdir, sem endurskoðandi og skoðunarmenn vilja koma á framfæri við sveitarstjórn eða framkvæmdastjóra sveitarfélags, skal bera fram skriflega og skal aðilum veittur hæfilegur frestur til svara.
Ef endurskoðanda eða skoðunarmönnum þykir ástæða til skulu þeir gera tillögur til sveitarstjórnar um endurbætur varðandi meðferð fjármuna hjá sveitarfélaginu, um breytingar á innra eftirliti, stjórnsýslu og öðru því sem þeir telja að geti verið til bóta í rekstri sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn skal varðveita á öruggan hátt öll gögn um endurskoðunina og samskiptin við endurskoðanda og skoðunarmenn.
Endurskoðanda eða skoðunarmönnum er hvorki heimilt að gefa óviðkomandi upplýsingar um hag sveitarfélags, stofnana þess eða fyrirtækja né annað það er þeir komast að í starfi sínu.
Ráðherra getur í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga sett með reglugerð nánari ákvæði um endurskoðun hjá sveitarfélögum, svo sem um verkaskiptingu endurskoðanda og skoðunarmanna.
72. gr. Afgreiðsla sveitarstjórnar á ársreikningi.
Ársreikningur sveitarfélags skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.
Sveitarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna skv. 71. gr.
Sveitarstjórnir skulu hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreiknings sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélags og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní. Sveitarstjórn og framkvæmdastjóri sveitarfélagsins skulu árita ársreikninginn og senda ráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.
Vanræki sveitarstjórn að afgreiða eða skila ársreikningum sínum innan tilskilins frests getur ráðuneytið stöðvað greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til viðkomandi sveitarfélags og með lögsókn komið fram ábyrgð á hendur þeim aðila sem ábyrgð ber á vanrækslunni.
73. gr. Tryggingar og ábyrgðir.
Heildareignir sveitarfélags standa til tryggingar skuldbindingum þess.
Eigi má sveitarfélag veðsetja öðrum tekjur sínar né heldur fasteignir sem nauðsynlegar eru til þess að sveitarfélagið geti rækt lögskyld verkefni sín. Aðrar eignir getur sveitarfélag veðsett í þágu sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess.
Sveitarfélag getur veitt Lánasjóði sveitarfélaga tryggingar í tekjum sínum vegna lána sem það tekur hjá sjóðnum. Félagsmálaráðherra getur sett í reglugerð nánari ákvæði um tryggingar Lánasjóðs sveitarfélaga í tekjum sveitarfélaga.
Eigi má framkvæma aðför í þeim eignum sveitarfélaga sem nauðsynlegar eru til framkvæmda á lögskyldum verkefnum þeirra og sveitarfélög verða eigi tekin til gjaldþrotaskipta.
Kröfur á hendur sveitarsjóði má eigi nota til skuldajafnaðar við kröfu sveitarfélags um lögboðin gjöld til sveitarsjóðs eða stofnana sveitarfélagsins.
Eigi má binda sveitarsjóð í ábyrgðir vegna skuldbindinga annarra aðila en stofnana sveitarfélagsins. Prókúruhafa sveitarsjóðs er þó heimilt fyrir hönd sveitarfélags að ábyrgjast með framsalsáritun greiðslu viðskiptaskjala sem sveitarfélagið hefur eignast á eðlilegan hátt í tengslum við daglegan rekstur þess.

[VII. kafli. Eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.]1)
    1)L. 74/2003, 8. gr.
74. gr. Eftirlitsnefnd.
Ráðherra skipar þriggja manna eftirlitsnefnd sem hefur það hlutverk að fylgjast með fjármálum sveitarfélaga. Einn fulltrúi í nefndina skal skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera löggiltur endurskoðandi. Þrír varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann nefndarinnar.
[Nefndin skal fylgjast með reikningsskilum og fjárhagsáætlunum sveitarfélaga, bera saman við viðmiðanir skv. 4. mgr. þessarar greinar og hafa eftirlit með að fjárstjórn sveitarfélaga sé í samræmi við 3. mgr. 61. gr. Leiði athugun eftirlitsnefndar í ljós að afkoma sveitarsjóðs er ekki í samræmi við 3. mgr. 61. gr. eða fjármál sveitarfélags stefni að öðru leyti í óefni skal nefndin aðvara viðkomandi sveitarstjórn og kalla eftir skýringum. Samhliða skal nefndin upplýsa ráðuneytið um álit sitt. Sveitarstjórn er skylt í slíkum tilvikum að gera eftirlitsnefndinni innan tveggja mánaða grein fyrir hvernig hún hyggst bregðast við aðvörun nefndarinnar.] 1)
Þóknun til eftirlitsnefndarmanna skal ákveðin af ráðherra. Þóknunin og annar kostnaður af starfi nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
Ráðherra setur í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga reglugerð 2) um störf og málsmeðferð eftirlitsnefndar og viðmiðanir varðandi fjárhagsleg málefni sveitarfélaga. Fjárhagsviðmiðanir skulu taka til þeirra atriða sem meginmáli skipta við mat á rekstri og efnahag sveitarfélaga.
    1)L. 74/2003, 9. gr. 2)Rg. 374/2001.
75. gr. Fjárþröng.
Komist sveitarfélag í fjárþröng þannig að sveitarstjórn telur sér eigi unnt að standa í skilum skal hún tilkynna það til eftirlitsnefndar skv. 74. gr. Ákvörðun um slíka tilkynningu skal tekin eftir tvær umræður í sveitarstjórn.
Eftirlitsnefnd skal þá tafarlaust láta fara fram rannsókn á fjárreiðum og rekstri sveitarfélagsins og leggja síðan fyrir sveitarstjórn að bæta það sem áfátt kann að reynast innan hæfilegs frests.
Eftirlitsnefnd er heimilt að grípa til aðgerða skv. 2. mgr. hafi sveitarstjórn ekki sinnt aðvörun nefndarinnar skv. 2. mgr. 74. gr. eða ef nefndin telur viðbrögð sveitarstjórnar í framhaldi af aðvörun nefndarinnar ófullnægjandi.
Komi í ljós við rannsókn að fjárhagur sveitarfélags sé slíkur að það geti ekki með eðlilegum rekstri staðið straum af lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbindingum sínum er ráðuneytinu heimilt að tillögu eftirlitsnefndar að veita sveitarfélaginu styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þess að koma fjárhag sveitarfélagsins á réttan kjöl með þeim skilyrðum sem ráðuneytið setur. Ráðuneytið getur heimilað eða lagt fyrir sveitarstjórn í því tilviki sem hér um ræðir og að tillögu eftirlitsnefndar að leggja álag á útsvör og fasteignaskatta sem nemi allt að 25%.
76. gr. Svipting fjárforráða.
Nú er greiðslubyrði sveitarfélags umfram greiðslugetu svo mikil að ljóst er að eigi mun úr rætast í bráð og getur ráðherra að tillögu eftirlitsnefndar þá svipt sveitarstjórn fjárforráðum sveitarfélags og skipað því fjárhaldsstjórn skv. 77. gr., enda hafi sveitarstjórn vanrækt svo skyldur sínar samkvæmt lögum þessum að vandræði hafi af hlotist, fjármálastjórn sveitarfélagsins hafi verið í ólestri og ráðstafanir skv. 75. gr. muni fyrirsjáanlega eigi duga til úrbóta.
Áður en sveitarstjórn verður svipt fjárforráðum sveitarfélags samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið þó skora á sveitarstjórn að koma fjármálum sveitarfélagsins á réttan kjöl og er ráðuneytinu heimilt að veita sveitarstjórn allt að sex mánaða frest í því skyni. Ráðuneytið getur þá jafnframt óskað eftir að sveitarfélaginu verði veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings eftir almennum reglum.
Heimilt er sveitarstjórn að höfða mál fyrir dómi til ógildingar ákvörðun ráðherra um sviptingu fjárforræðis.
77. gr. Fjárhaldsstjórn.
Fjárhaldsstjórn sveitarfélags skal skipuð þremur mönnum, þar af einum samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Formaður skal skipaður af ráðherra.
Fjárhaldsstjórn skal skipuð til tiltekins tíma og eigi lengur en til eins árs í senn.
Þóknun til fjárhaldsmanna skal ákveðin af ráðherra og greiðist úr ríkissjóði.
Birta skal ákvörðun um sviptingu fjárforræðis og skipun fjárhaldsstjórnar í Lögbirtingablaði og í B-deild Stjórnartíðinda.
78. gr. Hlutverk fjárhaldsstjórnar.
Fjárhaldsstjórn tekur við stjórn fjármála sveitarfélags og má enga greiðslu inna af hendi úr sveitarsjóði nema með samþykki hennar. Ályktanir sveitarstjórnar og ákvarðanir lægra settra stjórnvalda hennar, sem hafa útgjöld í för með sér, eru ógildar nema til komi samþykki fjárhaldsstjórnar. Að öðru leyti fer sveitarstjórn áfram með málefni sveitarfélagsins.
Fjárhaldsstjórn skal rannsaka fjárreiður sveitarfélagsins og allan rekstur þess og gera nýja áætlun um tekjur og gjöld sveitarfélagsins fyrir næstu tvö fjárhagsár.
Áætlun þessa skal senda ráðuneytinu til staðfestingar ásamt umsögn sveitarstjórnar. Að lokinni staðfestingu ráðuneytis gildir áætlunin sem fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, a.m.k. meðan sveitarfélagið er undir fjárhaldsstjórn.
Fjárhaldsstjórn getur með samþykki ráðuneytisins selt eigur sveitarfélagsins til lúkningar skuldum, þó eigi þær eigur sem nauðsynlegar eru til framkvæmda á lögskyldum verkefnum, sbr. 73. gr. Með sama móti getur fjárhaldsstjórn ákveðið að færa tiltekna starfsemi sem rekin hefur verið á vegum sveitarfélagsins í hendur einkaaðila.
79. gr. Sameining við annað sveitarfélag.
Nú duga eigi framangreindar ráðstafanir til þess að koma fjárhag sveitarsjóðs og stofnana hans á réttan kjöl og getur þá ráðuneytið einnig ákveðið að leita samninga við nágrannasveitarfélög um sameiningu við það sveitarfélag sem undir fjárhaldsstjórn er eða hluta þess.
80. gr. Brottfall sviptingar fjárforráða.
Svipting fjárforræðis og skipun fjárhaldsstjórnar fellur niður eftir ákvörðun ráðherra þegar telja má að fjárhagur sveitarfélagsins sé kominn í viðunandi horf. Auglýsing þar að lútandi skal birt á sama hátt og auglýsing um sviptingu fjárforræðis.

[VIII. kafli.]1) Samvinna sveitarfélaga.
    1)L. 74/2003, 8. gr.
81. gr. Almennt.
Sveitarfélög geta haft samvinnu sín á milli um framkvæmd einstakra verkefna. Getur slík samvinna meðal annars farið fram á vettvangi héraðsnefnda, byggðasamlaga, landshlutasamtaka og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
82. gr. Stofnun byggðasamlags.
Sé um að ræða varanlegt samvinnuverkefni sveitarfélaga, svo sem rekstur skóla og heilbrigðisstofnana eða brunavarnir, geta sveitarfélög myndað byggðasamlag sem tekur að sér framkvæmd verkefnisins.
Í samningi sem gera skal um byggðasamlag skulu vera ákvæði meðal annars um stjórn samlagsins og kjör fulltrúa til hennar, fjölda þeirra, kjörtímabil, um varafulltrúa og annað sem máli skiptir í því sambandi.
Í samningnum skulu vera ákvæði um hvenær stjórnarfundur er ályktunarhæfur og um umboð stjórnar til að skuldbinda sveitarsjóði. Þá skulu vera ákvæði um í hvaða tilvikum þörf er staðfestingar sveitarstjórna á samþykktum sem gerðar eru í stjórn byggðasamlags.
Þar sem eigi er öðruvísi ákveðið í samþykktum byggðasamlags gilda eftir því sem við eiga meginreglur laga þessara um meðferð mála, skyldur og réttindi stjórnarmanna, starfslið, meðferð fjármála og endurskoðun ársreikninga.
Sveitarsjóðir bera einfalda ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum byggðasamlags sem þeir eru aðilar að en innbyrðis skiptist ábyrgðin í hlutfalli við íbúatölu.
83. gr. Endurskoðun samþykkta byggðasamlaga.
Samþykktir byggðasamlaga skulu teknar til endurskoðunar í síðasta lagi þegar liðin eru 10 ár frá stofnun þeirra og síðan á a.m.k. 10 ára fresti. Við slíka endurskoðun skal meta reynslu af starfsemi viðkomandi byggðasamlags og stjórnskipulagi þess og skal við fulltrúatölu í stjórn samlagsins taka tillit til breytinga sem leiðir af breyttum aðstæðum, þar á meðal af breytingum á íbúafjölda aðildarsveitarfélaga og af breytingum á skipan þeirra.
Til þess að breyting á samþykktum fyrir byggðasamlag nái fram að ganga þurfa 2/ 3 hlutar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga að staðfesta hana eða hún hafi verið samþykkt í almennri atkvæðagreiðslu á starfssvæði byggðasamlagsins, en 2/ 3 hlutar stjórnarmanna geta krafist þess að slík atkvæðagreiðsla fari fram um tillögu til breytinga á samþykktunum.
84. gr. Úrganga úr byggðasamlagi.
Nú óskar sveitarstjórn að ganga úr byggðasamlagi og er henni það þá heimilt, enda fari þá jafnframt fram endurskoðun á samþykktum fyrir byggðasamlagið, sbr. 83. gr.
Óski sveitarstjórnin eftir því að fá nettóeignarhluta sinn í byggðasamlagi innleystan er eigi skylt að greiða hann á skemmri tíma en 20 árum. Náist eigi samkomulag um verðmæti eignarhlutans eða greiðslukjör skal það úrskurðað af þremur dómkvöddum, hæfum og óvilhöllum mönnum sem meðal annars skulu taka tillit til áframhaldandi hagræðis íbúa viðkomandi sveitarfélags af starfsemi byggðasamlagsins og greiðslugetu byggðasamlagsins eða þeirra sveitarfélaga sem halda rekstri þess áfram.
85. gr. Starfsemi byggðasamlags hætt.
Tillaga um að hætta starfsemi byggðasamlags nær því aðeins fram að ganga að hún sé staðfest í samræmi við ákvæði 2. mgr. 83. gr.
Nú er ákveðið að hætta starfsemi byggðasamlags eða svo er fyrir mælt í lögum og skal þá skipa því sérstaka skiptastjórn er gerir upp eignir þess og skuldir og slítur rekstri þess. Heimilt er skiptastjórn að auglýsa eftir kröfum á hendur byggðasamlaginu með opinberri innköllun. Eftir að kröfur hafa verið greiddar skal afgangi eigna eða eftirstöðvum skulda jafnað á viðkomandi sveitarsjóði í hlutfalli við íbúatölu.
Skiptastjórn skal kjörin af stjórn byggðasamlags.
86. gr. Landshlutasamtök sveitarfélaga.
Sveitarfélög geta stofnað til staðbundinna landshlutasamtaka sveitarfélaga er vinni að hagsmunamálum íbúa í hverjum landshluta. Starfssvæði slíkra samtaka fer eftir ákvörðun aðildarsveitarfélaga sem staðfest hefur verið af ráðuneytinu.
Sveitarstjórnir kjósa fulltrúa á ársfund landshlutasamtaka eftir þeim reglum sem ákveðnar eru í samþykktum samtakanna.
87. gr. Samband íslenskra sveitarfélaga.
Samband íslenskra sveitarfélaga er sameiginlegur málsvari sveitarfélaga í landinu.

[IX. kafli.]1) Stækkun sveitarfélaga.
    1)L. 74/2003, 8. gr.
88. gr. Almennt.
Ráðuneytið skal vinna að stækkun sveitarfélaga með samruna fámennra sveitarfélaga í stærri og öflugri heildir. Skal ráðuneytið vinna að þessu í samráði við einstök sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga.
89. gr. Skyldubundin sameining sveitarfélaga.
Þegar skylt er að sameina sveitarfélag öðru sveitarfélagi, sbr. 2. mgr. 6. gr., skal ráðuneytið skipa nefnd er í sitji tveir menn samkvæmt tilnefningu sveitarstjórnar í því sveitarfélagi sem um ræðir og tveir menn samkvæmt tilnefningu viðkomandi landshlutasamtaka. Þá skipar ráðuneytið formann nefndarinnar án tilnefningar. Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
Nefndin skal gera tillögu um hverra kosta skuli leita varðandi sameiningu sveitarfélagsins við annað eða önnur sveitarfélög.
Þegar tillaga nefndarinnar liggur fyrir skal ráðuneytið fara þess á leit við viðkomandi sveitarfélag eða sveitarfélög að þau tilnefni til viðbótar fulltrúa í nefndina þannig að hvort eða hvert sveitarfélag eigi þar tvo fulltrúa. Nú berst ráðuneytinu eigi tilnefning í nefndina innan tilskilins frests og skal þá ráðuneytið skipa fulltrúa í nefndina án tilnefningar.
Nefndin skal síðan gera tillögu til viðkomandi sveitarstjórna um hvernig að sameiningu sveitarfélaganna skuli staðið.
Sé um fleiri en eina tillögu að ræða getur ráðuneytið ákveðið að láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu meðal íbúa viðkomandi sveitarfélaga um tillögurnar.
Ráðuneytið skal óska eftir umsögn viðkomandi sveitarstjórna um sameiningarmálið en síðan ákveður ráðuneytið hvernig að sameiningu sveitarfélaganna skuli staðið.
Heimilt er ráðuneytinu að fresta sameiningu sveitarfélaga þar sem svo stendur á sem segir í 3. mgr. 6. gr.
90. gr. Frjáls sameining sveitarfélaga.
Þegar tvær eða fleiri sveitarstjórnir hafa ákveðið að kanna möguleika á sameiningu skulu þær kjósa samstarfsnefnd til þess að annast athugun málsins.
Skal hvor eða hver sveitarstjórn kjósa tvo fulltrúa eða fleiri í nefndina eftir samkomulagi. Nefndin kýs formann úr sínum hópi.
Samstarfsnefnd skal starfa í samráði við ráðuneytið og skal það láta henni í té þá aðstoð er það telur nauðsynlega og úrskurða um vafaatriði er upp kunna að koma.
Þegar samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu um sameiningu skulu viðkomandi sveitarstjórnir taka málið á dagskrá. Skal hafa tvær umræður um málið án atkvæðagreiðslu.
Að lokinni umræðu sveitarstjórna skal síðan fara fram atkvæðagreiðsla innan sveitarfélaganna um sameininguna. Viðkomandi sveitarstjórnir ákveða sameiginlega hvenær atkvæðagreiðsla fer fram og skal kosið sama dag í sveitarfélögunum.
Samstarfsnefndin eða viðkomandi sveitarstjórnir skulu kynna íbúum sveitarfélaganna þá tillögu sem greiða skal atkvæði um með hæfilegum fyrirvara og með tryggum hætti, svo sem með dreifibréfi eða almennum fundi.
Sveitarstjórn lætur gera atkvæðaseðil til afnota við atkvæðagreiðsluna í samráði við ráðuneytið. Um atkvæðagreiðslur samkvæmt þessari grein fer eftir ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna eftir því sem við getur átt.
91. gr. Skilyrði fyrir frjálsri sameiningu.
Sveitarfélag verður eigi sameinað öðrum sveitarfélögum nema fleiri kjósendur í atkvæðagreiðslu skv. 90. gr. séu fylgjandi sameiningu en andvígir, sbr. þó 2. mgr. þessarar greinar.
Hljóti tillaga samstarfsnefndar skv. 90. gr. ekki samþykki í öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum, en þó meiri hluta greiddra atkvæða í a.m.k. 2/ 3 þeirra og í þeim sveitarfélögum búi a.m.k. 2/ 3 íbúa á svæðinu, er viðkomandi sveitarstjórnum heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykkt hafa sameininguna.
92. gr. Fjárhagslegar ráðstafanir eftir samþykkt sameiningartillögu.
Hafi tillaga um sameiningu hlotið samþykki skv. 91. gr. er sveitarstjórnum viðkomandi sveitarfélaga óheimilt að skuldbinda sveitarsjóði eða samþykkja greiðslur úr sveitarsjóði sem ekki leiðir af lögum, fjárhagsáætlun eða fyrri samþykkt sveitarstjórnar nema allar hlutaðeigandi sveitarstjórnir samþykki slíka ráðstöfun.
93. gr. Staðfesting ráðuneytisins.
Hafi sameiningin hlotið samþykki skv. 91. gr. skulu sveitarstjórnir þær, sem hlut eiga að máli, taka ákvarðanir um fjárhagsmálefni sveitarfélaganna, fjölda fulltrúa í nýrri sveitarstjórn, nafn hins sameinaða sveitarfélags, hvenær sameiningin taki gildi og önnur atriði. Ákvarðanir þessar skulu sendar ráðuneytinu sem staðfestir sameininguna.
Séu sveitarfélög þau sem sameinuð eru í umdæmi tveggja eða fleiri sýslumanna skal ráðuneytið leita umsagnar dómsmálaráðuneytisins áður en ákvörðun um sameiningu er tekin.
94. gr. Sameining yfir mörk kjördæma.
Heimilt er að sameina sveitarfélög yfir mörk kjördæma, en slík sameining hefur ekki áhrif á skipan kjördæma við alþingiskosningar.
95. gr. Birting ákvörðunar um sameiningu.
Þegar ráðuneytið hefur staðfest sameiningu sveitarfélaga samkvæmt framanskráðu skal það gefa út tilkynningu um sameininguna sem birta skal í B-deild Stjórnartíðinda. Þar skal greint frá nafni hins nýja sveitarfélags, hvaða sveitarfélög hafi verið sameinuð, frá hvaða tíma sameiningin taki gildi, tölu sveitarstjórnarmanna, svo og hvort kosning skv. 96. gr. skuli fram fara og hvenær.
96. gr. Kosning nýrrar sveitarstjórnar.
Ráðuneytið getur ákveðið að kosningar skuli fara fram til sveitarstjórnar hins sameinaða sveitarfélags þegar við sameiningu, svo og kjördag slíkra aukakosninga.
97. gr. Endurskoðun reglugerða og samþykkta.
Sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags skal hlutast til um að samþykktir og reglugerðir, sem giltu í þeim sveitarfélögum sem sameinuð hafa verið, verði endurskoðaðar og samræmdar.
98. gr. Fjárhagsleg aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Ráðuneytið getur, að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, sett almennar reglur 1) þess efnis að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga veiti fjárhagslega aðstoð til þess að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga. Slíka aðstoð má veita í allt að fimm ár eftir sameiningu.
    1) Rgl. 295/2003.
99. gr. Afsláttur af fasteignaskatti.
Þegar sveitarfélag í dreifbýli og sveitarfélag í þéttbýli sameinast er sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags heimilt að ákveða að um tiltekinn tíma, þó ekki lengur en 10 ár frá sameiningu, megi veita tiltekinn afslátt af fasteignaskatti af eignum í dreifbýli vegna mismunandi þjónustu við fasteignaeigendur í dreifbýli og þéttbýli.

[X. kafli.]1) Samskipti ríkis og sveitarfélaga.
    1)L. 74/2003, 8. gr.
100. gr. Samstarfssáttmáli.
Ríkisstjórninni er rétt að koma á formlegu samstarfi við samtök sveitarfélaga með gerð samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga og með öðrum hætti. Ríkisstjórnin skal hafa náið samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um þau mál er varða verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og önnur samskipti þessara aðila.
101. gr. Breyting á verkaskiptingu eða fjármálalegum samskiptum.
Komi fram tillögur um meiri háttar breytingar á verkaskiptingu eða fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga og tekjustofnum sveitarfélaga, sem kveðið er á um í lögum eða gert hefur verið sérstakt samkomulag um, skulu þær teknar til umfjöllunar í sérstakri samráðsnefnd skipaðri fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga áður en þær eru formlega afgreiddar.
102. gr. Eftirlitshlutverk ráðuneytisins.
Ráðuneytið skal hafa eftirlit með því að sveitarstjórnir gegni skyldum sínum samkvæmt lögum þessum og öðrum löglegum fyrirmælum.
Vanræki sveitarstjórn skyldur sínar skal ráðuneytið veita henni áminningu og skora á hana að bæta úr vanrækslunni.
Verði sveitarstjórn eigi við áskorun ráðuneytisins innan frests sem ráðuneytið tiltekur er því heimilt að stöðva greiðslur til sveitarsjóðs úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar til bætt hefur verið úr vanrækslunni. Jafnframt getur ráðuneytið með lögsókn krafist dagsekta af þeim sem ábyrgð bera á vanrækslunni og mega dagsektir nema allt að fimmföldum daglaunum viðkomandi manns.
103. gr. Úrskurðarvald ráðuneytisins.
Ráðuneytið skal úrskurða um ýmis vafaatriði sem upp kunna að koma við framkvæmd sveitarstjórnarmálefna en það skerðir þó eigi rétt aðila til þess að höfða mál fyrir dómstólum.
Ráðuneytið skal leitast við að kveða upp úrskurð innan tveggja mánaða frá því að því berst mál til úrskurðar.
Ráðuneytið skal árlega gefa út úrskurði sína í sveitarstjórnarmálefnum.

[XI. kafli.]1) Önnur ákvæði.
    1)L. 74/2003, 8. gr.
104. gr. Almennar atkvæðagreiðslur og borgarafundir.
Heimilt er sveitarstjórn að efna til almennrar atkvæðagreiðslu um einstök mál og að boða til almennra borgarafunda um málefni sveitarfélagsins.
Skylt er að halda almennan borgarafund ef 1/ 4 hluti atkvæðisbærra manna í sveitarfélaginu óskar þess.
Til almenns borgarafundar skal boðað með opinberri auglýsingu og skal þar taka fram hverjir hafi atkvæðisrétt á fundinum ef ætlunin er að atkvæðagreiðsla fari þar fram.
Ályktanir slíkra funda eru ekki bindandi fyrir sveitarstjórn.
Sveitarstjórn getur efnt til almennrar atkvæðagreiðslu í sveitarfélagi eða hluta þess til þess að kanna vilja kosningarbærra íbúa um tiltekið málefni. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er ekki bindandi um afgreiðslu málsins fyrir sveitarstjórn nema hún hafi fyrir fram ákveðið að svo skuli vera.
Við framkvæmd atkvæðagreiðslu skv. 5. mgr. skal farið eftir meginreglum laga um kosningar til sveitarstjórna eftir því sem við getur átt.
105. gr. Gildistaka.
[Lög þessi öðlast þegar gildi.] 1)

    1)L. 123/1998, 1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. Vegna ákvæðis 1. mgr. 1. gr. laganna skal þeim hlutum landsins, þar með talið jöklum, sem ekki hefur þegar verið skipað innan staðarmarka sveitarfélaga á grundvelli 1. eða 3. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 8/1986, skipað innan staðarmarka sveitarfélaga með eftirfarandi hætti:
Eignarlandi skal skipað innan staðarmarka sama sveitarfélags og sú jörð sem það hefur áður tilheyrt nema fyrir liggi sérstakar heimildir um annað.
Nú eiga íbúar tiltekins sveitarfélags upprekstrarrétt í afrétt sem ekki hefur verið skipað innan staðarmarka neins sveitarfélags og skal hann þá teljast til þess sveitarfélags. Ef íbúar fleiri en eins sveitarfélags eiga upprekstrarrétt í afréttinn og ekki næst samkomulag um til hvers þeirra hann skuli teljast sker úr um málið óbyggðanefnd, sem starfar samkvæmt lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Óbyggðanefnd skal einnig skera úr ágreiningi sem rís vegna 2. mgr.
Þegar óbyggðanefnd úrskurðar að landsvæði skuli teljast þjóðlenda skal nefndin kveða á um hvernig þeim hluta þess sem ekki telst afréttur skuli skipað innan staðarmarka sveitarfélaga. Skal miðað við að framlengja staðarmörk aðliggjandi sveitarfélaga inn til landsins, þar með talið á jöklum, en þó þannig að fylgt sé náttúrulegum mörkum eða mörkum sem byggjast á sérstökum heimildum um mörkin, þar sem nefndin telur það betur eiga við. Óbyggðanefnd getur í þessu tilviki breytt mörkum frá því sem kann að hafa verið samið um milli sveitarfélaga, þar með talið samkvæmt heimild í 5. mgr. ákvæðis þessa og 2. mgr. 3. gr. laga þessara, eða þau ákveðin með öðrum hætti.
Meðan óbyggðanefnd hefur ekki úrskurðað um einstök landsvæði, sem ekki hefur verið skipað innan staðarmarka sveitarfélaga, getur félagsmálaráðherra staðfest samkomulag sem sveitarfélög hafa gert um staðarmörk sveitarfélaga á slíkum svæðum.
Félagsmálaráðuneytið skal birta auglýsingu 1) um ákvörðun á staðarmörkum sveitarfélaga samkvæmt ákvæði þessu í Stjórnartíðindum.
    1) Augl. 614/1999, augl. 629/1999, augl. 634/1999, augl. 132/2000, augl. 228/2000, augl. 965/2000, augl. 120/2002.