Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1154, 151. löggjafarþing 478. mál: breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur).
Lög nr. 22 26. mars 2021.
I. KAFLI
Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.
II. KAFLI
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
a. (XXII.)
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. fylgir fasteignaskatti skv. c-lið 3. mgr. 3. gr., vegna áranna 2020–2022, lögveð í fasteign þeirri sem hann er lagður á, ásamt dráttarvöxtum í fjögur ár frá gjalddaga, sem skal ganga fyrir öllum öðrum veðkröfum er á eigninni hvíla.
b. (XXIII.)
Þrátt fyrir ákvæði 32. gr. er sveitarfélögum heimilt að lækka eða fella niður dráttarvexti á kröfur vegna fasteignaskatta sem lagðir eru á skv. c-lið 3. mgr. 3. gr., á árunum 2020–2022, hjá gjaldendum sem eiga við verulega rekstrarörðugleika að stríða vegna kórónuveirufaraldursins eða gjaldendum sem leigja húsnæði til rekstraraðila sem sömu skilyrði eiga við um, á grundvelli reglna sem sveitarfélög setja sér.
III. KAFLI
Breyting á lögum um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga, nr. 150/2006.
Þrátt fyrir 1. mgr. 3. gr. skal Lánasjóði sveitarfélaga heimilt að veita lán til að mæta rekstrarhalla sveitarfélaga, auk rekstrarhalla stofnana og fyrirtækja þeirra sem sinna lögmæltum verkefnum og ekki eru í samkeppnisrekstri, á reikningsárunum 2020–2022.
Þingskjal 1154, 151. löggjafarþing 478. mál: breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur).
Lög nr. 22 26. mars 2021.
Lög um breytingu á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 131. gr. laganna:- Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað tilvísunarinnar „1. mgr.“ í 2. mgr. kemur: 1. og 2. mgr.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Neyðarástand í sveitarfélagi.
2. gr.
Í stað ártalsins „2022“ í ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum kemur: 2025.3. gr.
Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:a. (XXII.)
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. fylgir fasteignaskatti skv. c-lið 3. mgr. 3. gr., vegna áranna 2020–2022, lögveð í fasteign þeirri sem hann er lagður á, ásamt dráttarvöxtum í fjögur ár frá gjalddaga, sem skal ganga fyrir öllum öðrum veðkröfum er á eigninni hvíla.
b. (XXIII.)
Þrátt fyrir ákvæði 32. gr. er sveitarfélögum heimilt að lækka eða fella niður dráttarvexti á kröfur vegna fasteignaskatta sem lagðir eru á skv. c-lið 3. mgr. 3. gr., á árunum 2020–2022, hjá gjaldendum sem eiga við verulega rekstrarörðugleika að stríða vegna kórónuveirufaraldursins eða gjaldendum sem leigja húsnæði til rekstraraðila sem sömu skilyrði eiga við um, á grundvelli reglna sem sveitarfélög setja sér.
4. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir 1. mgr. 3. gr. skal Lánasjóði sveitarfélaga heimilt að veita lán til að mæta rekstrarhalla sveitarfélaga, auk rekstrarhalla stofnana og fyrirtækja þeirra sem sinna lögmæltum verkefnum og ekki eru í samkeppnisrekstri, á reikningsárunum 2020–2022.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 26. mars 2021.