Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1995. Útgáfa 119.
Lög um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum1)
1936 nr. 24 1. febrúar
1)Ákvæði í þessum lögum, sem ekki samrýmast l. 50/1981, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit (endurútg. sem l. 81/1988), felld brott með 36. gr. l. 50/1981. Ákvæði laga þessara um matvæli og aðrar neysluvörur, felld úr gildi með l. 93/1995, 32. gr.
1. Búsáhöld, svo sem ílát og umbúðir, eldhúsáhöld, borðbúnaður og aðrir þeir hlutir, sem notaðir eru við tilbúning, geymslu eða framreiðslu matvæla eða annarrar neysluvöru.
2. Tilsvarandi áhöld þeim, sem getur í 1. tölul. þessarar greinar og eru viðhöfð í verksmiðjum, verslunum, skipum og öðrum flutningatækjum eða á geymslustöðum og þar annars staðar, sem farið er með matvæli eða aðrar neyslu- eða nauðsynjavörur, þar á meðal hvers konar vélar til matvæla- eða annarrar neyslu- eða nauðsynjavörugerðar eða við umbúnað, geymslu, flutning, afgreiðslu eða aðra meðferð á slíkum vörum, einnig vogir og mælitæki.
3. Hreinlætis- og snyrtivörur, hverju nafni sem nefnast. Með snyrtivörum teljast grímur, gervihár og hvers konar vörur eða efni, sem leikarar einkum nota til að breyta útliti sínu, enn fremur hvers konar hreinlætis- og snyrtitæki, þar á meðal hvers konar áhöld og efni, sem notuð eru í rakarastofum og snyrtistofum.
4. Klæðnaður og hvers konar efni í klæðnað, þar á meðal rúmfatnaður og efni í rúmfatnað.
5. Húsgögn, þar á meðal upphitunar- og lýsingartæki, veggfóður og húsgagnafóður, gólfdúkar og ábreiður, málningarvörur og aðrir litir, sem ekki teljast matvæli eða neysluvörur (sbr. 2. gr.), stofuplöntur og plöntueftirlíkingar.
6. Eldiviður og ljósmeti, þar á meðal steinolía, brennsluvínandi, bensín, kerti, eldspýtur og önnur kveikingartæki.
7. Lækningaáhöld, þar á meðal gervilimir og sjúklingaumbúðir, sáraumbúðir og hvers konar sjúkragögn og hjúkrunarvörur, enn fremur áhöld og efni til getnaðarvarna.
8. Leikföng.
9. Aðrir hlutir, sem ráðherra tiltekur nánar í samræmi við tilgang þessara laga.
1. Að búa til eða flytja inn í landið í því skyni að hafa á boðstólum, selja eða láta á annan hátt af hendi matvæli eða aðrar neyslu- eða nauðsynjavörur, sem ætla má, að skorti eðlilega hollustu eða séu skaðlegar heilbrigði manna, ef þeirra er neytt eða þær notaðar á tilætlaðan eða tíðkanlegan hátt.
2. Að haga umbúnaði, geymslu, flutningi, afgreiðslu eða annarri meðferð á matvælum eða öðrum neyslu- eða nauðsynjavörum, sem ætla má, að verði hafðar á boðstólum, seldar eða látnar á annan hátt af hendi, þannig, að ætla megi, að þær fyrir það skorti eðlilega hollustu eða verði skaðlegar heilbrigði manna, ef þeirra er neytt eða þær notaðar á tilætlaðan eða tíðkanlegan hátt.
3. Að hafa á boðstólum, selja eða láta á annan hátt af hendi, hvort sem er innanlands eða til útflutnings úr landinu, matvæli eða aðrar neyslu- eða nauðsynjavörur, sem ætla má, að skorti eðlilega hollustu eða séu skaðlegar heilbrigði manna, ef þeirra er neytt eða þær notaðar á tilætlaðan eða tíðkanlegan hátt. [Matvæli og aðrar neyslu- og nauðsynjavörur teljast hafðar á boðstólum á dreifingarstað sé þær þar að finna.] 1)
1)L. 5/1985, 1. gr.
1)Nú l. 8/1993.
1. Að banna eða takmarka tilbúning í landinu og þá jafnframt innflutning í landið á matvælum eða öðrum neyslu- eða nauðsynjavörum, sem tilbúnar eru á ákveðinn hátt.
2. Að banna eða takmarka, að um matvæli eða aðrar neyslu- eða nauðsynjavörur sé búið eða þær geymdar, fluttar, afgreiddar eða að öðru leyti með þær farið á ákveðinn hátt.
3. Að banna eða takmarka, að matvæli eða aðrar neyslu- eða nauðsynjavörur, sem tilbúnar eru, um er búið, geymdar eru, fluttar, afgreiddar eða að öðru leyti með farið á ákveðinn hátt, séu hafðar á boðstólum, seldar eða látnar á annan hátt af hendi.
4. Að banna eða takmarka, að áhöld eða efni, sem ætluð eru til ólöglegra eftirlíkinga eða fölsunar á matvælum eða öðrum neyslu- eða nauðsynjavörum, séu búin til í landinu eða flutt inn í landið, höfð á boðstólum, seld eða látin á annan hátt af hendi.
5. Að skipa fyrir, að á umbúðir, matvæli og aðrar neyslu- og nauðsynjavörur eða á vörurnar sjálfar séu skráðar réttar upplýsingar um, hvar og af hverjum og hvenær þær séu tilbúnar, hver hafi selt þær eða látið þær af hendi, hverrar tegundar eða efnis eða eðlis þær séu, og ef um samsettar vörur er að ræða, hve mikið sé af hverju efni fyrir sig, svo og að segja fyrir um, hvernig að öðru leyti skuli gengið frá þessum áletrunum.
6. Að ákveða með reglugerðum eða auglýsingum, 1) hvernig einstakar tegundir af matvælum eða öðrum neyslu- eða nauðsynjavörum skuli gerðar til þess að verða ekki taldar skorta eðlilega hollustu eða vera skaðlegar heilbrigði manna, óheimilar eftirlíkingar eða falsaðar samkvæmt ákvæðum laga þessara, eða til þess að mega auðkennast á ákveðinn hátt. Í þessum reglugerðum eða auglýsingum má ákveða, hverjum þrifnaðar- og heilbrigðisreglum skuli fylgja við tilbúning, umbúnað, geymslu, flutning, afgreiðslu og aðra meðferð hinna einstöku tegunda af matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum, að húsakynni og áhöld séu viðunandi, og þegar um framleiðslu eða aðra vandasama meðferð á slíkum vörum er að ræða, að næg kunnátta sé fyrir hendi til að annast allt, er að slíku lýtur.
1)Rg. 35/1986, sbr. 654/1989 og 625/1991, (um mjólk og mjólkurvörur). Rg. 408/1988, sbr. 493/1990, (um merkingu neytendaumbúða fyrir matvæli og aðrar neysluvörur). Rg. 409/1988 (aukaefni í matvælum o.fl.). Augl. 147/1985 (merking nauðsynjavara, sem innihalda eiturefni o.fl.). Rg. 196/1987 (takmörkun sölu á kveikjaragasi). Rg. 518/1993 (um aðskotaefni í matvælum). Rg. 527/1993 (um leirhluti sem er ætlað að snerta matvæli). Rg. 531/1993 (um efni og hluti úr plasti sem er ætlað að snerta matvæli). Rg. 537/1993 (um efni og hluti sem er ætlað að snerta matvæli). Rg. 538/1993 (um vinýlklóríð í efnum og hlutum). Rg. 541/1993 (um filmur úr sellulósa sem er ætlað að snerta matvæli). Rg. 556/1993 (um hraðfryst matvæli). Rg. 579/1993 (um aukefni í matvælum). Rg. 586/1993 (um merkingu næringargildis matvæla). Rg. 587/1993 (um bragðefni í matvælum). Rg. 588/1993 (um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla). Rg. 289/1994 (um leysiefni til notkunar í matvælaiðnaði). Rg. 389/1994 (um takmörkun á sölu gerileyðandi efna sem innihalda etanól. Rg. 447/1994 (um kaffi, kaffikjarna og kaffibæti). Rg. 521/1994 (um þvotta- og hreingerningarefni). Rg. 522/1994 (um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla).
1)L. 12/1969, 19. gr.