Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 1997. Útgáfa 121a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um hundahald og varnir gegn sullaveiki1)
1953 nr. 7 3. febrúar
1)Ákvæði í þessum lögum, sem ekki samrýmast l. 50/1981, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit (endurútg. sem l. 81/1988), felld brott með 36. gr. l. 50/1981.
1. gr. [Sveitarstjórn er heimilt að ákveða með samþykkt, er heilbrigðismálaráðuneytið staðfestir, að takmarka eða banna hundahald í sveitarfélaginu.]
1)
1)L. 108/1988, 9. gr.
2. gr. Sérhver skattgreiðandi skal á skattaframtali gera grein fyrir þeim hundum, sem hann eða aðrir, er hann hefur á framfæri sínu, eiga um áramót.

[Sveitarstjórnir skulu á þeim grunni láta gera skrá yfir þá hunda sem eru í sveitarfélaginu.]
1)
1)L. 92/1991, 28. gr.
3. gr. [Af hundum búfjáreigenda skal greiða 30 króna skatt árlega. Einnig af minkahundum, dýrhundum og sporhundum, enda hafi verið veitt sérstakt leyfi til slíks hundahalds og þeir hundar hafðir í öruggri gæslu. Af öðrum hundum greiðist 300 króna skattur árlega.

[Skatturinn rennur í sveitarsjóð.]
1) ]
2)
1)L. 108/1988, 10. gr. 2)L. 41/1965, 1. gr.
4. gr. Skyldur er hver sá, sem lætur slátra skepnum, er sullur finnst í, að grafa þegar í stað það slátur, sem sollið er, svo og hausa af höfuðsóttarkindum, það djúpt í jörð niður, að hundar geti eigi náð því, eða brenna það. …
1)
1)L. 75/1982, 10. gr. A.
5. gr. [Sveitarstjórnir skulu sjá um hreinsun hunda til útrýmingar bandormum, hver í sínu umdæmi. Kostnaður greiðist úr sveitarsjóði.]
1)
1)L. 108/1988, 11. gr.
6. gr. Heilbrigðismálaráðuneytið setur, í samráði við landlækni og yfirdýralækni, reglugerð um hreinsun hunda vegna bandorma, meðferð sulla úr sláturfé, svo og annað, er þurfa þykir, til útrýmingar sullaveiki.
1)
1)Rg. 201/1957, sbr. 429/1977 (varnir gegn sullaveiki).
7. gr. [Brot gegn lögum þessum og reglugerðum eða samþykktum, sem settar kunna að verða samkvæmt þeim, varða sektum.]
1)
1)L. 75/1982, 10. gr. B.
8. gr. Með mál gegn brotum á lögum þessum skal farið að hætti opinberra mála.