Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1997. Útgáfa 121b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild sveitarfélaga til stofnunar og starfrækslu atvinnu- og þjónustufyrirtækja með takmarkaðri ábyrgð
1972 nr. 24 20. maí
1. gr. Sveitarfélögum skal heimilt að stofna til atvinnufyrirtækja með takmarkaðri ábyrgð, sem þau reka ein sem einkaeigendur án hlutdeildar annarra. Skal ábyrgðin þá takmörkuð við stofnfé það, sem lagt er fram til fyrirtækisins, og önnur framlög og ábyrgðir, sem sveitarstjórn kann að ákveða.
2. gr. Fyrirtækjum sveitarfélaga með takmarkaðri ábyrgð er rétt og skylt að hafa orðin: „Sveitarfélagarekstur með takmarkaðri ábyrgð“ í heiti sínu, eða skammstöfunina: „STÁ“.
3. gr. Nú er fyrirtæki stofnað samkvæmt lögum þessum, og skal stofnandi þess þá setja því samþykktir, er staðfestar séu af félagsmálaráðherra. Í samþykktum þessum skal greina heiti fyrirtækis og heimilisfang, tilgang þess og upphæð stofnfjár. Þar skulu vera skýr ákvæði um stjórn fyrirtækis og framkvæmdastjóra, valdsvið þeirra og verksvið og hverjir skuldbindi fyrirtækið. Enn fremur skulu vera þar ákvæði um reikningsskil og endurskoðun. Skal hafa hliðsjón af reglum hlutafélagalaga um þessi efni, eftir því sem við á. Ef ráðherra telur, að gallar séu á samþykktum fyrirtækis, skal hann veita stofnanda tækifæri til að bæta úr þeim, en synjar um staðfestingu ella.
4. gr. Lágmarksstofnfé fyrirtækja þeirra, sem hér um ræðir, skal vera kr. 100.000,00.
5. gr. [Sýslumaður] 1) skal halda skrá um fyrirtæki þau, sem stofnuð eru samkvæmt lögum þessum. Skal senda honum tilkynningu um stofnun fyrirtækis, er ráðherra hefur staðfest samþykktir þess. Tilkynningin skal síðan birt í Lögbirtingablaði eins og aðrar tilkynningar til félagaskrár. Ráðherra skal setja nánari reglur um, hvað greina skuli í tilkynningum, og láta gera eyðublöð fyrir þær. Breytingar á samþykktum, stjórn og prókúru skal tilkynna og birta eftir sömu reglum og gilda um tilkynningu um stofnun.
1)L. 92/1991, 59. gr.
6. gr. Fyrirtæki stofnuð og rekin samkvæmt lögum þessum skulu hlíta skattskyldu eins og félög þau, sem um ræðir í fyrri málslið a-liðar 1. mgr. 5. gr. laga nr. 68/1971, 1) um tekjuskatt og eignarskatt.
1)Nú l. 75/1981.
7. gr. Ákvæði VIII. kafla laga um hlutafélög, nr. 77 frá 27. júní 1921, 1) um refsingar o.fl. skulu gilda um brot gegn lögum þessum, eftir því sem við á.
1)Nú l. 2/1995.
8. gr. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara.