Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga
1959 nr. 18 22. apríl
a. [Hlutatalan má ekki fara fram úr 75.000. Draga skal í 12 flokkum á ári hverju og skal dráttur fara fram fyrir einn flokk í mánuði hverjum, í fyrsta sinn í janúarmánuði.] 1)
b. Hlutina má selja í heilu og hálfu lagi. Iðgjöld fyrir hvern hlut ákveður [dómsmálaráðherra] 2) að fengnum tillögum frá stjórn Sambands ísl. berklasjúklinga.
c. Vinningar skulu vera að verðmæti samtals að minnsta kosti 50% af iðgjöldunum samantöldum í öllum tólf flokkum.
d. [Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem dómsmálaráðherra skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið.] 2)
1)L. 115/1984, 1. gr. 2)L. 52/1976, 1. gr.
1)L. 24/1989, 1. gr.
1)Rg. 372/1976, sbr. rg. 20/1980, 86/1981, 372/1991, 330/1992, 406/1996, 587/1997 og 708/1997.