Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Landhelgisgæslu Íslands
1967 nr. 25 22. apríl
1. gr. Landhelgisgæslan er ríkisstofnun með varnarþing í Reykjavík, og er markmið hennar:
a. Að hafa með höndum almenna löggæslu á hafinu umhverfis Ísland, jafnt innan sem utan landhelgi.
b. Að veita hjálp við björgun manna úr sjávarháska eða á landi, svo og að annast aðkallandi sjúkraflutninga, ýmist á eigin spýtur eða í samvinnu við Slysavarnafélag Íslands eða aðra aðila, sem að björgunarstörfum vinna. 1)
c. Að aðstoða eða bjarga bátum eða skipum, sem kunna að vera strönduð eða eiga í erfiðleikum á sjó við Ísland, ef þess er óskað.
d. Að veita afskekktum stöðum eða byggðarlögum nauðsynlega hjálp eða aðstoð, þegar eðlilegar samgöngur bregðast af ófyrirsjáanlegum orsökum, svo sem vegna hafíss, snjóalaga, ofviðra eða annarra náttúruhamfara.
e. Að sjá um sjómælingar og taka þátt í hafrannsóknum, fiskirannsóknum, botnrannsóknum, svo og öðrum vísindastörfum, eftir því sem ákveðið kann að verða hverju sinni.
f. Að tilkynna, fjarlægja eða gera skaðlaus reköld, tundurdufl, sprengjur eða aðra hluti, sem sjófarendum eða almenningi getur stafað hætta af.
g. Að aðstoða við framkvæmd almannavarna, almennrar löggæslu, lækna-, toll- og vitaþjónustu, eftir því sem aðstæður leyfa eða ákveðið kann að verða sérstaklega.
h. Að tilkynna tafarlaust Skipaskoðun ríkisins, ef vart verður við, að brotin eru lög um eftirlit með skipum eða brotnar reglugerðir, sem settar eru samkvæmt þeim, eða telji hún ástæðu til að ætla, að skip sé ekki haffært.
1)Rg. 207/1990, sbr. 119/1995.
Stjórn.
2. gr. Dómsmálaráðherra hefur með höndum yfirstjórn allrar starfsemi Landhelgisgæslunnar og gefur út nauðsynlegar reglugerðir eða fyrirmæli um almenna stjórn ýmissa þátta hennar.
3. gr. [Ráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn til þess að stjórna Landhelgisgæslunni, svo og til að vera ráðherra til aðstoðar um allt er lýtur að málefnum hennar.] 1)
1)L. 83/1997, 14. gr.
4. gr. Forstjóri ræður starfslið Landhelgisgæslunnar, yfirmenn svo og almenna starfsmenn, og ákveður starfssvið þeirra í samræmi við þarfir stofnunarinnar, sérþekkingu þeirra og réttindi.
Dómsmálaráðherra setur nánari fyrirmæli um ráðningu starfsliðs að fengnum tillögum forstjóra.
Starfsmenn.
5. gr. [Skipshafnir varðskipa fara með lögregluvald þegar þær annast eða aðstoða við löggæslu.] 1)
Skipverjar á varðskipum Landhelgisgæslunnar skulu lögskráðir. Þó skal heimilt að flytja skipverja milli skipa eða í önnur störf, enda sé lögskráningarstjóra tilkynnt um þær breytingar.
1)L. 90/1996, 43. gr.
6. gr. Um réttindi starfsmanna til ákveðinna starfa fer að lögum og reglugerðum, sem um þau efni fjalla, svo sem atvinnuréttindi skipherra, stýrimanna, vélstjóra og flugstjóra.
7. gr. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar mega hvorki gera verkfall né taka þátt í verkfallsboðunum.
8. gr. Við störf sín skulu starfsmennirnir bera einkennisbúninga eftir reglum, sem dómsmálaráðherra setur.
Laun og kjör.
9. gr. Laun og kjör þeirra starfsmanna Landhelgisgæslunnar, sem vinna að staðaldri í landi, skulu vera samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna eða stéttarfélagssamningum viðkomandi starfsmanna.
10. gr. Laun og kjör þeirra starfsmanna, sem vinna að staðaldri við störf á sjó eða í lofti, skulu vera í samræmi við kjarasamninga viðkomandi stéttarfélaga, eftir því sem við á, eða eftir sérstökum samningum stéttarfélaga við stjórn Landhelgisgæslunnar.
11. gr. Ef starfsmenn vinna ýmist í landi, á sjó eða í lofti, skulu laun þeirra ákveðast eftir aðalstarfi þeirra, en önnur kjör samkvæmt því starfi, sem þeir sinna hverju sinni.
12. gr. [Nú fær skip eða loftfar Landhelgisgæslunnar laun fyrir björgun verðmæta og fer þá um ráðstöfun björgunarlauna eftir ákvæðum laga, þó svo að hlutur áhafnar skiptist að réttri tiltölu miðað við föst mánaðarlaun hvers og eins. Hlutur Landhelgisgæslunnar af björgunarlaunum rennur í Landhelgissjóð.] 1)
1)L. 76/1986, 1. gr.
13. gr. Um tryggingar starfsmanna skal fara eftir lögum um almannatryggingar og viðkomandi kjarasamningum. Forstjóra skal heimilt að tryggja sérstaklega þá starfsmenn, sem mjög áhættusöm verk eiga að vinna.
14. gr. Sérhver starfsmaður skal ganga undir læknisskoðun hjá trúnaðarlækni Landhelgisgæslunnar einu sinni á ári, eða oftar ef þörf þykir.
Varðskip, gæsluflugvélar og útbúnaður.
15. gr. Landhelgisgæslan gerir út varðskip, gæsluflugvélar og önnur farartæki, sem nauðsynleg kunna að vera vegna gæslu landhelginnar eða annarra þarfa, sbr. 1. gr., og geta tækin annaðhvort verið eign Landhelgissjóðs, annarra ríkisstofnana, eða tekin á leigu.
16. gr. Skip og flugvélar Landhelgisgæslunnar skulu auðkennd með skjaldarmerki Íslands á áberandi stað. Varðskipin skulu einkennd nafni, en gæsluflugvélar með skrásetningareinkennum. Forstjóri ákveður í samráði við dómsmálaráðherra lit og önnur einkenni. Ekki skulu þau bera sérstakt heimilisfang.
Landhelgissjóður Íslands.
17. gr. Í sjóð, er nefnist Landhelgissjóður Íslands, skal renna sektarfé og andvirði upptækra verðmæta vegna brota gegn fiskveiðilöggjöfinni, og enn fremur björgunarlaun, svo sem segir í 12. gr. laga þessara.
18. gr. Sjóðnum skal varið til að koma upp strandgæsluskipum eða öðrum varanlegum tækjum til þarfa Landhelgisgæslunnar. Þó getur fjárveitingavaldið ákveðið, að hluta af árlegum tekjum og vöxtum sjóðsins megi verja til rekstursútgjalda Landhelgisgæslunnar.
19. gr. Dómsmálaráðherra hefur á hendi stjórn sjóðsins. Skal ávaxta fé hans í Landsbankanum. Reikningur hans skal birtur árlega með öðrum reikningum ríkisstofnana.