Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda
1980 nr. 55 9. júní
1. gr. [Laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um, skulu vera lágmarkskjör, óháð kyni, þjóðerni eða ráðningartíma fyrir alla launamenn í viðkomandi starfsgrein á svæði því er samningurinn tekur til. Samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveða skulu ógildir.]
1)
1)L. 69/1993, 5. gr. Sjá og
Augl. 285/1997 og
Augl. B 503/1997.
2.–5. gr. …
1)
1)L. 129/1997, 58. gr.
[5. gr. a. Nú ákveður félagi í lífeyrissjóði, sem á rétt á töku fæðingarorlofs samkvæmt
lögum nr. 97/1980,
1) að hverfa úr fyrra starfi að hluta eða öllu leyti og til heimilisstarfa vegna barnsburðar og er þá þeim lífeyrissjóði, sem viðkomandi er félagsmaður í, skylt að veita félagsmanninum heimild til áframhaldandi aðildar að sjóðnum á óbreyttum grundvelli í allt að 7 ár, enda taki félagsmaður þá að sér að greiða iðgjaldahlut atvinnurekanda ásamt sínum eigin. Slíkur félagsmaður nýtur allra sömu réttinda í lífeyrissjóðnum og aðrir félagsmenn, þ. á m. lánsréttinda.]
2)
1)Nú l. 57/1987. 2)L. 58/1985, 1. gr.
6. gr. Öllum atvinnurekendum er skylt að greiða í sjúkrasjóði og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga iðgjöld þau, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um hverju sinni, og samkvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina.

Atvinnurekanda er skylt að halda eftir af launum starfsmanns iðgjaldi hans til viðkomandi stéttarfélags samkvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina.
7. gr. [Verði dráttur á greiðslu iðgjalda samkvæmt lögum þessum skal skuldari greiða dráttarvexti af skuldinni frá gjalddaga samkvæmt lögum um vexti.]
1)
1)L. 33/1987, 6. gr.
8. gr. …
1)
1)L. 21/1991, 181. gr.
9. gr. Ráðherra setur nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara með reglugerð.
1)
1)Rg. 194/1981.
10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …