Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um opinber innkaup
1987 nr. 52 30. mars
1. gr. Tilgangur þessara laga er að tryggja hagkvæmni í rekstri ríkisins að því er varðar kaup á vörum og þjónustu til rekstrar og framkvæmda. Opinber innkaup heyra undir fjármálaráðuneytið.
[Ákvæði 9.–14. gr. laga þessara gilda eingöngu um útboð og innkaup á Evrópska efnahagssvæðinu.] 1)
1)L. 55/1993, 4. gr.
2. gr. Yfirstjórn opinberra innkaupa er falin sérstakri stjórn sem er skipuð þremur mönnum. Fjármálaráðherra skipar stjórnina til tveggja ára í senn.
3. gr. [Á vegum ríkisins skal rekin innkaupastofnun (Ríkiskaup) sem starfar samkvæmt ákvæðum 1. gr.] 1) Stjórn opinberra innkaupa er jafnframt stjórn innkaupastofnunarinnar. Innkaupastofnunin annast innkaup fyrir allar stofnanir og fyrirtæki ríkisins. Fjármálaráðherra getur þó að fenginni umsögn stjórnarinnar heimilað einstökum ríkisstofnunum eða fyrirtækjum að annast eigin innkaup. Ríkisstofnanir (innkaupadeildir ríkisstofnana) skulu haga viðskiptum sínum í samræmi við ákvæði þessara laga og hlíta fyrirmælum stjórnar opinberra innkaupa.
1)L. 85/1998, 6. gr.
4. gr. Fjármálaráðherra skipar forstjóra til [fimm] 1) ára í senn að fenginni umsögn stjórnar. [Forstjóri ræður starfslið stofnunarinnar.] 1)
1)L. 83/1997, 47. gr.
5. gr. [Ríkiskaup annast innkaup á vörum og þjónustu fyrir ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki, rannsaka sameiginlegar þarfir á vörum og þjónustu og beita sér fyrir samræmdum innkaupum á vörum til þarfa ríkisins.] 1) Einnig skal stofnunin láta í té viðskiptalega aðstoð og leiðbeiningar um einstök vörukaup eftir því sem þörf gerist. Stofnunin ráðstafar eigum ríkisins sem ekki er lengur þörf fyrir. 2)
1)L. 85/1998, 7. gr. 2)Rg. 651/1994.
6. gr. [Ríkiskaup skulu viðhafa] 1) þá meginreglu að kaupa ekki inn aðrar vörur en þær sem fyrir fram er vitað að ríkisstofnanir þarfnist eða þær hafa pantað hjá stofnuninni. Þeirri meginreglu skal fylgt að bjóða út kaup á vörum og þjónustu til rekstrar og fjárfestingar. Skal tilboða leitað með hæfilegum fyrirvara. Jafnan skal tekið því boði sem hagkvæmast er miðað við verð, vörugæði, afgreiðslu og aðra skilmála. Skylt er að veita tilbjóðendum upplýsingar um hvaða tilboði er tekið og hvers vegna.
1)L. 85/1998, 8. gr.
7. gr. [Ríkiskaup selja eða útvega] 1) ríkisstofnunum og fyrirtækjum allar vörur á kostnaðarverði að viðbættri þóknun samkvæmt gjaldskrá sem fjármálaráðherra setur að fengnum tillögum stjórnar. Gjaldskráin miðast við að þóknunin standi undir rekstri stofnunarinnar.
1)L. 85/1998, 9. gr.
8. gr. Stofnuninni er eigi heimilt að binda fjármuni umfram fjárútvegun einstakra ríkisstofnana í kaupum á vörum og þjónustu nema til komi heimild fjármálaráðuneytis.
[9. gr. Á hinu Evrópska efnahagssvæði skulu boðin út innkaup þeirra aðila sem getið er um í 3. gr., svo og sveitarfélaga, samtaka þeirra, stofnana og fyrirtækja. Jafnframt skulu boðin út innkaup annarra opinberra aðila sem eru undir yfirstjórn eða eftirliti stjórnar þar sem meiri hluti stjórnarmanna er skipaður af opinberum aðilum. Starfi þessir aðilar á sviði viðskipta eða iðnaðar er þeim það þó ekki skylt, enda sinni þeir ekki vatnsveitu, orkuveitu, flutningum eða fjarskiptum.
Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð að einstakar tegundir samninga um innkaup verði ekki boðnir út á Evrópska efnahagssvæðinu.] 1)
1)L. 55/1993, 5. gr.
[10. gr. Skylda til útboðs tekur til innkaupa á vörum [og þjónustu] 1) sem áætlað er að nemi a.m.k. því verðmæti án virðisaukaskatts sem getið er um í 1.–4. tölul. þessarar greinar. Með innkaupum [á vörum] 1) er átt við kaup, leigu, fjármögnunarleigu og kaupleigu. Samningur telst vera samningur um innkaup, jafnvel þótt hann feli í sér flutning á ákvörðunarstað og uppsetningu.
1. [206.020] 1) evrópskum mynteiningum (ECU) enda sé ekki um að ræða innkaup sem falla undir 2.–4. tölul.
2. [133.914 ECU vegna innkaupa á vegum Ríkiskaupa eða annarra stofnana í eigu ríkisins sem fengið hafa heimild skv. 3. gr. til að bjóða út enda sé ekki um að ræða stofnanir eða fyrirtæki sem falla undir 3. og 4. tölul. eða kaup á þjónustu sem fellur undir viðauka I 2) við lög þessi.] 1)
3. 400.000 ECU ef innkaupin eru gerð af aðila sem sinnir flutningum með almenningsvögnum, orkuveitu, vatnsveitu, flugvallar- eða hafnargerð.
4. [600.000 ECU ef innkaupin eru gerð af fyrirtækjum eða stofnunum sem reka fjarskiptakerfi eða veita almenna fjarskiptaþjónustu.] 1)
[Fjárhæð viðmiðunarmarka í ECU skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. breytist til hækkunar eða lækkunar í samræmi við breytingar á gengi ECU gagnvart SDR, í fyrsta skipti 1. janúar 2000.] 1)
Ákvæði 3. og 4. tölul. 1. mgr. gilda einnig um innkaup þeirra fyrirtækja sem stunda þá starfsemi sem þar greinir á grundvelli sérleyfa eða annars konar einkaréttar sem veitt eru af opinberum aðilum.
[Við mat á verðmæti innkaupa skal miða við það gengi sem auglýst hefur verið af Eftirlitsstofnun EFTA og í gildi er þann dag sem auglýsing skv. 12. gr. er send til birtingar.] 1)] 3)
1)L. 85/1998, 10. gr. 2)Um vörur þær sem hér falla undir, sjá viðauka við lög þessi í Stjtíð. A 1993, bls. 277–280, sbr. Stjtíð. A 1998, bls. 377. 3)L. 55/1993, 5. gr.
[11. gr. Þegar gerðir eru samningar um leigu, fjármögnunarleigu eða kaupleigu skal við mat á verðmæti samningsins taka mið af heildarkostnaði út samningstímann. Ef samningur er ótímabundinn skal við það miðað að hann hafi verið til 48 mánaða.
Þegar gerður er samningur sem endurnýja á innan ákveðins tíma skal við mat á verðmæti hans taka mið af sambærilegum samningum sem gerðir voru annaðhvort á síðasta reikningsári eða síðustu 12 mánuðum fyrir samningsgerð.
Þegar innkaupum á sambærilegri vöru er deilt í nokkra hluta skal við mat á verðmæti innkaupanna tekið mið af samanlagðri fjárhæð einstakra hluta.
Óheimilt er að skipta innkaupum á ákveðnu magni vöru í hluta í því skyni að koma í veg fyrir skyldu til að bjóða innkaupin út.
Í reglugerð er heimilt að kveða nánar á um mat á útboðsverðmæti.] 1)
1)L. 55/1993, 5. gr.
[12. gr. Í sérstakri kynningarauglýsingu í upphafi hvers reikningsárs skal tilkynnt um heildarvörukaup eftir vöruflokkum ef áætluð fjárhæð þeirra innkaupa sem ráðgert er að bjóða út á næstu 12 mánuðum er jöfn eða hærri en 750.000 ECU án virðisaukaskatts. Jafnframt er skylt að auglýsa þau innkaup sem ákveðið hefur verið að bjóða út. Þá er kaupanda, sem gert hefur samning um innkaup, skylt að auglýsa það.
Auglýsingar þær, sem getið er um í 1. mgr., skulu sendar útgáfustjórn Evrópubandalagsins til birtingar eins fljótt og unnt er eftir að ákvörðun um útboð eða gerð samnings um innkaup hefur verið tekin.
Hvers konar birting hér á landi á auglýsingu skv. 1. gr. er óheimil þar til hún hefur verið send útgáfustjórn Evrópubandalagsins til birtingar. Sendingardagur skal koma fram í auglýsingunni. Jafnframt er óheimilt að birta í þess konar auglýsingum aðrar upplýsingar um innkaupin en þær sem koma fram í Stjórnartíðindum Evrópubandalagsins.] 1)
1)L. 55/1993, 5. gr.
[13. gr. Nú telur bjóðandi að stjórnvöld hafi tekið ákvörðun í tengslum við framkvæmd útboðs eða gerð samnings um innkaup sem felur í sér brot á ákvæðum laga þessara um útboð á Evrópska efnahagssvæðinu og getur hann þá kært þá ákvörðun til fjármálaráðuneytis.
Kæra skal vera skrifleg og rökstudd og skulu fylgja henni nauðsynleg gögn. Fjármálaráðuneytinu er heimilt að krefja kæranda um frekari upplýsingar ef það telur ástæðu til.] 1)
1)L. 55/1993, 5. gr.
[14. gr. Um meðferð kæru, úrræði vegna kæru, bótaskyldu, valdsvið eftirlitsstofnunar EFTA, eftirlit og hlutverk [Ríkiskaupa] 1) fer skv. 26.– 31. gr. laga nr. 63/1970, um skipan opinberra framkvæmda, eftir því sem við á.] 2)
1)L. 85/1998, 11. gr. 2)L. 55/1993, 5. gr.
[15. gr.]1) [Fjármálaráðherra skal í reglugerð 2) kveða nánar á um framkvæmd laga þessara, svo sem um efni auglýsinga, útboðsgögn, útboðsaðferðir, tilboðsfresti, hæfi bjóðenda, val á tilboðum og starfsemi Ríkiskaupa.] 3)
1)L. 55/1993, 5. gr. 2)Rg. 302/1996. 3)L. 85/1998, 13. gr.
[16. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1988 …
1)L. 55/1993, 5. gr.
[17. gr. … 1)
1)L. 85/1998, 13. gr.