Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 1999. Útgáfa 123a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um selaskot á Breiðafirði og uppidráp
1925 nr. 30 27. júní
1. gr. Öll selaskot skulu hér eftir bönnuð á Breiðafirði og fjörðum þeim, sem inn úr honum ganga, fyrir innan línu, sem hugsast dregin frá Eyrarfjalli, sunnan Breiðafjarðar, í Stagley og frá Stagley hálfa mílu frá Oddbjarnarskeri nyrðra í Bjargtanga í Barðastrandarsýslu. …
1)

Í selalátrum á bannsvæðinu er engum öðrum en eigendum eða umráðamönnum látranna heimilt að rota seli eða drepa uppi.
1)L. 61/1932, 94. gr.
2. gr. [Brot gegn 1. gr. varðar sektum.

Skotvopn og veiðifang má gera upptækt, sbr.
69. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.]
1)
1)L. 116/1990, 15. gr.