Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Tækniskóla Íslands
1972 nr. 66 29. maí
1. gr. Tækniskóli Íslands starfar í Reykjavík og á Akureyri, sbr. 3. mgr. 7. gr. Meginmarkmið skólans skal vera að veita nemendum tæknilega og almenna menntun, sem geri þá hæfa til að takast sjálfstætt á hendur tæknileg störf og ábyrgðarstöður í þágu atvinnuvega þjóðarinnar. Skal jafnan tekið mið af þróun tæknimenntunar meðal nágrannaþjóða.
… 1)
1)L. 127/1993, 3. gr.
2. gr. [Ráðherra fer með yfirstjórn skólans og skipar skólanefnd. Ráðherra skipar rektor til fimm ára í senn.] 1)
1)L. 83/1997, 98. gr.
3. gr. Rektor skólans hefur yfirumsjón með kennslu og annarri starfsemi skólans. Hann annast daglegan rekstur skólans, hefur á hendi reikningshald og umsjón með byggingum og öðrum eignum skólans. [Enn fremur ræður hann kennara og annað starfsfólk skólans.] 1)
Kennarar og starfsmenn taka laun samkvæmt kjarasamningum.
1)L. 83/1997, 99. gr.
4. gr. Þeir einir geta orðið fastir kennarar skólans, sem hafa lokið tæknifræðiprófi eða háskólaprófi í aðalkennslugrein sinni.
5. gr. Námstími í skólanum skal ákveðinn í reglugerð.
6. gr. Heimilt er, að skólinn starfi í deildum, og skal deildaskipun ákveðin í reglugerð.
Nú er skólanum skipt í deildir, og skal þá heimilt að [ráða] 1) deildarstjóra úr hópi kennara hlutaðeigandi deildar.
1)L. 83/1997, 100. gr.
7. gr. Heimilt er skólanum að veita nemendum, sem fullnægja bóklegum og verklegum inntökuskilyrðum, allt að tveggja ára undirbúningsmenntun undir tæknifræðinám, og skal fyrra ár þess náms fara fram í undirbúningsdeild, en hið síðara í raungreinadeild. Hlutverk þessara deilda er að veita þekkingu og leikni í undirstöðuatriðum tæknifræðináms, einkum í stærðfræði og eðlisfræði.
Heimilt er að starfrækja undirbúningsdeild skólans á Ísafirði og á öðrum þeim stöðum, þar sem slíkt þykir henta. Enn fremur er heimilt að starfrækja raungreinadeild á Ísafirði.
Á næsta skólaári og framvegis skal starfrækt á Akureyri undirbúningsdeild og raungreinadeild. Stefnt skal að því, að á Akureyri verði sjálfstæður tækniskóli, og getur ráðherra ákveðið það með reglugerð.
8. gr. Inngöngu í undirbúningsdeild skólans skal veita nemendum, sem staðist hafa sveinspróf í viðeigandi iðngrein. Enn fremur geta fengið inngöngu í undirbúningsdeild þeir, sem staðist hafa gagnfræðapróf eða landspróf miðskóla og fullnægja ákvæðum reglugerðar um verklega þjálfun, sbr. 3. mgr.
Heimilt er að láta umsækjendur þreyta sérstakt inntökupróf, sem sker úr um aðgang nemenda að undirbúningsdeild.
Ákvæði um verkskólun og verklega þjálfun, sem krafist er til inngöngu í skólann, skal setja í reglugerð.
9. gr. Rétt til að hefja tæknifræðinám í skólanum hafa þeir nemendur, sem staðist hafa próf frá raungreinadeild skólans eða lokið stúdentsprófi frá stærðfræðideild menntaskóla ásamt viðhlítandi verklegri þjálfun, sbr. 8. gr., svo og þeir nemendur, sem standast inntökupróf skólans.
[10. gr. Skrásetningargjöld í sérgreinadeildum skólans skulu háð árlegu samþykki skólanefndar og menntamálaráðherra. Skólanefnd ákveður upphæð gjalda er nemendum er gert að greiða við innritun í námsáfanga í undirbúningsdeild og raungreinadeild skólans (frumgreinadeild), svo sem innritunargjöld, efnisgjöld, pappírsgjöld og nemendasjóðsgjöld.] 1)
1)L. 127/1993, 4. gr.
[11. gr.]1) Við skólann starfar 5 manna skólanefnd, skipuð af menntamálaráðuneytinu til fjögurra ára í senn. Alþýðusamband Íslands, Landssamband iðnaðarmanna, Félag íslenskra iðnrekenda og Tæknifræðingafélag Íslands tilnefna hvert um sig einn mann í nefndina og annan til vara, en ráðuneytið skipar formann og varaformann nefndarinnar án tilnefningar. Rektor situr fundi skólanefndar.
Við skólann starfar skólastjórn. Í henni eiga sæti rektor, sem er formaður, fastráðnir kennarar og einn fulltrúi nemenda fyrir hverja þrjá aðra skólastjórnarmenn.
1)L. 127/1993, 4. gr.
[12. gr.]1) Hlutverk skólanefndar er að vera rektor til ráðuneytis um mikilvæg atriði varðandi stjórn skólans, fylgjast með erlendri reynslu og þróun á sviði tæknimenntunar, gera tillögur um stefnumörkun í málefnum skólans, stuðla að sem nánustum tengslum hans við atvinnulífið og loks að gera tillögur um breytingar á reglugerð skólans.
1)L. 127/1993, 4. gr.
[13. gr.]1) Menntamálaráðuneytið setur skólanum, að höfðu samráði við rektor og skólanefnd, reglugerð 2) um framkvæmd þessara laga, og skal þar m.a. kveðið á um þessi atriði:
1. Starf og hlutverk skólanefndar, skólastjórnar, rektors, deildarstjóra og fastráðinna kennara.
2. Deildir skólans og sérgreinar tæknifræðináms (sbr. 6. og 9. gr.).
3. Inntökuskilyrði, bókleg og verkleg (sbr. 8. gr.).
4. Námstíma, þ. á m. lengd skólaárs og námsáfanga (sbr. 5. gr.).
5. Próf, þ. á m. lokapróf, tilhögun prófa, einkunnakröfur, endurtekningu prófa og haustpróf.
1)L. 127/1993, 4. gr. 2)Rg. 278/1977, sbr. 240/1986, 225/1989, 430/1991, 210/1992, 43/1996 og 481/1997.
[14. gr.]1) Lög þessi öðlast þegar gildi. …
1)L. 127/1993, 4. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …