Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2009. Útgáfa 137. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um staðfesta samvist
1996 nr. 87 12. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 27. júní 1996. Breytt með l. 52/2000 (tóku gildi 26. maí 2000), l. 65/2006 (tóku gildi 27. júní 2006) og l. 55/2008 (tóku gildi 27. júní 2008).
1. gr. Tveir einstaklingar af sama kyni geta stofnað til staðfestrar samvistar.
2. gr. Ákvæði II. kafla hjúskaparlaga gilda um skilyrði til þess að samvist verði staðfest samkvæmt lögum þessum, sbr. þó 2. mgr.
[Staðfesting samvistar getur aðeins farið fram ef:
a. báðir einstaklingarnir eða annar þeirra er íslenskur ríkisborgari …, 1) eða
b. báðir einstaklingarnir hafa haft fasta búsetu hér á landi síðustu tvö árin fyrir staðfestingu samvistar þeirra.] 2)
[Ríkisborgararéttur í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er lagður að jöfnu við íslenskan ríkisborgararétt skv. a-lið 2. mgr. Dómsmálaráðherra getur ákveðið í reglugerð 3) að ríkisborgararéttur í öðru landi þar sem í gildi eru lög um staðfesta samvist, sem eru hliðstæð lögum þessum, verði einnig lagður að jöfnu við íslenskan ríkisborgararétt.] 2)
1)L. 65/2006, 14. gr. 2)L. 52/2000, 1. gr. 3)Rg. 681/2004.
3. gr. Áður en staðfesting fer fram skulu aðilar leggja fram vottorð þess efnis að könnun hafi átt sér stað á skilyrðum fyrir staðfestri samvist.
Ákvæði III. kafla hjúskaparlaga gilda um framkvæmd á könnun skilyrða fyrir staðfestri samvist.
Dómsmálaráðherra setur nánari reglur 1) um könnun á skilyrðum fyrir staðfestri samvist.
1)Rg. 326/1996.
4. gr. Sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra [staðfesta] 1) samvist. [Prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga er hafa vígsluheimild skv. 17. gr. hjúskaparlaga, nr. 31/1993, er heimilt að staðfesta samvist.] 1)
Ákvæði 21.–26. gr. hjúskaparlaga gilda um [staðfestingu samvistar] 1) eftir því sem við á.
1)L. 55/2008, 1. gr.
5. gr. Staðfesting samvistar hefur, með þeim undantekningum sem greinir í 6. gr., sömu réttaráhrif og stofnun hjúskapar. Ákvæði laga sem varða hjúskap og maka gilda um staðfesta samvist og einstaklinga í staðfestri samvist.
6. gr. [… 1)
Lagaákvæði sem fela í sér sérstakar reglur um annan makann í hjúskap og bundin eru við kynferði hans gilda ekki um staðfesta samvist.] 2)
Ákvæði í alþjóðlegum samningum sem Ísland er aðili að gilda ekki um staðfesta samvist nema aðrir samningsaðilar fallist á það.
1)L. 65/2006, 15. gr. 2)L. 52/2000, 2. gr.
7. gr. Staðfestri samvist lýkur við andlát samvistarmaka, með ógildingu staðfestrar samvistar eða með lögskilnaði.
8. gr. Ákvæði hjúskaparlaga um ógildingu hjúskapar, hjónaskilnaði og fjárskipti milli hjóna vegna hjúskaparslita gilda um ógildingu og slit staðfestrar samvistar, sbr. þó 2.–4. mgr. Önnur ákvæði laga sem varða lok hjúskapar og réttaráhrif þeirra gilda um lok staðfestrar samvistar.
Sýslumaður eða dómari leitar sátta samkvæmt reglum 42. gr. hjúskaparlaga. [Einnig geta prestar og forstöðumenn skráðra trúfélaga leitað um sættir.] 1)
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 114. gr. hjúskaparlaga er ávallt heimilt að höfða mál skv. 113. gr. laganna vegna staðfestrar samvistar fyrir íslenskum dómstólum hafi staðfesting farið fram hér á landi.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 123. gr. hjúskaparlaga, er íslenskum stjórnvöldum ávallt heimilt að leysa úr málum vegna staðfestrar samvistar sem stofnað er til hér á landi.
1)L. 55/2008, 2. gr.
9. gr. Lög þessi öðlast gildi 27. júní 1996.