Lagasafn. Íslensk lög 15. september 2015. Útgáfa 144b. Prenta í tveimur dálkum.
Upplýsingalög1)
1996 nr. 50 24. maí
1)Lögin voru felld úr gildi skv. l. 140/2012, 35. gr. Ákvæði laganna halda þó gildi sínu til 1. janúar 2016 gagnvart sveitarfélögum með íbúa undir 1.000 manns við gildistöku laga nr. 140/2012 skv. 4. mgr. 35. gr. s.l.
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 1997. Breytt með l. 76/1997 (tóku gildi 1. júlí 1997), l. 83/2000 (tóku gildi 2. júní 2000 nema 1. gr. sem tók gildi 1. jan. 2001), l. 23/2006 (tóku gildi 3. maí 2006; EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 2003/4/EB), l. 161/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 55/2009 (tóku gildi 1. maí 2009), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 115/2012 (tóku gildi 2. nóv. 2012).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
forsætisráðherra eða
forsætisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
I. kafli.
Gildissvið laganna.
1. gr.
Gildissvið.

Lög þessi taka til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga.

Lögin taka enn fremur til starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur verið falið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna.
2. gr.
Gildissvið gagnvart öðrum lögum og þjóðréttarsamningum.

Lög þessi gilda ekki um þinglýsingu, aðfarargerðir, kyrrsetningu, löggeymslu, lögbann, nauðungarsölu, greiðslustöðvun, nauðasamninga, gjaldþrotaskipti, skipti á dánarbúum eða önnur opinber skipti, né heldur um rannsókn [sakamáls eða saksókn].
1)

[Lögin gilda ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum. Lögin gilda heldur ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nema óskað sé eftir aðgangi að skjölum eða öðrum gögnum sem 2. mgr. 3. gr. laga þessara tekur til. Þá gilda lögin heldur ekki ef á annan veg er mælt í þjóðréttarsamningum sem Ísland á aðild að.]
2)

Ákvæði annarra laga, sem heimila víðtækari aðgang að upplýsingum, halda gildi sínu. Almenn ákvæði laga um þagnarskyldu takmarka ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt lögum þessum.
1)L. 88/2008, 234. gr. 2)L. 83/2000, 1. gr.
II. kafli.
Almennur aðgangur að upplýsingum.
3. gr.
Upplýsingaréttur.

[Stjórnvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál með þeim takmörkunum sem greinir í 4.–6. gr. Stjórnvöldum er þó ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 7. gr.]
1)

Réttur til aðgangs að gögnum nær til:
1. allra skjala sem mál varða, þar með talinna endurrita af bréfum sem stjórnvald hefur sent, enda megi ætla að það hafi borist viðtakanda;
2. allra annarra gagna sem mál varða, svo sem teikninga, uppdrátta, korta, mynda, örfilma og gagna sem vistuð eru í tölvu;
3. dagbókarfærslna sem lúta að gögnum málsins og lista yfir málsgögn.

Stjórnvöldum er heimilt að veita aðgang að gögnum í ríkari mæli en kveðið er á um í þessum kafla, nema fyrirmæli laga um þagnarskyldu standi því í vegi.
1)L. 161/2006, 1. gr.
4. gr.
Gögn undanþegin upplýsingarétti.

Réttur almennings til aðgangs að gögnum tekur ekki til:
1. fundargerða ríkisráðs og ríkisstjórnar, minnisgreina á ráðherrafundum og skjala sem tekin hafa verið saman fyrir slíka fundi;
2. bréfaskipta stjórnvalda við sérfróða menn til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað;
3. vinnuskjala sem stjórnvald hefur ritað til eigin afnota; þó skal veita aðgang að vinnuskjölum ef þau hafa að geyma endanlega ákvörðun um afgreiðslu máls eða upplýsingar sem ekki verður aflað annars staðar frá;
4. umsókna um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og allra gagna sem þær varða; þó er skylt að veita upplýsingar um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn.
5. gr.
Takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna.

Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Sömu takmarkanir gilda um aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila.
6. gr.
Takmarkanir á upplýsingarétti vegna almannahagsmuna.

Heimilt er að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast, enda hafi þau að geyma upplýsingar um:
1. öryggi ríkisins eða varnarmál;
2. samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir;
3. viðskipti stofnana og fyrirtækja í eigu ríkis eða sveitarfélaga að því leyti sem þau eru í samkeppni við aðra;
4. fyrirhugaðar ráðstafanir eða próf á vegum ríkis eða sveitarfélaga ef þau yrðu þýðingarlaus eða næðu ekki tilætluðum árangri væru þau á almannavitorði.
[5. umhverfismál, enda geti birting þeirra haft alvarleg áhrif á vernd þess hluta umhverfisins sem slíkar upplýsingar varða, t.d. heimkynni fágætra tegunda lífvera, steinda, steingervinga og bergmyndana.]
1)
1)L. 23/2006, 18. gr.
7. gr.
Aðgangur að hluta skjals.

Ef ákvæði 4.–6. gr. eiga aðeins við um hluta skjals skal veita almenningi aðgang að öðru efni skjalsins. Sama regla á við um önnur gögn.
8. gr.
Takmarkalaus upplýsingaréttur að tilteknum tíma liðnum.

Veita skal aðgang að gögnum sem 4. tölul. 6. gr. tekur til jafnskjótt og ráðstöfunum eða prófum er að fullu lokið, nema ákvæði 5. gr. eða 1.–3. tölul. 6. gr. eigi við.

[Veita skal aðgang að upplýsingum sem 5. tölul. 6. gr. tekur til þegar ekki er lengur ástæða til að ætla að miðlun upplýsinganna geti haft skaðleg áhrif á umhverfið.]
1)

Veita skal aðgang að öðrum gögnum sem 4.–6. gr. taka til þegar liðin eru þrjátíu ár frá því að gögn urðu til, að frátöldum upplýsingum er varða einkamálefni einstaklinga, en aðgang að þeim skal fyrst veita að áttatíu árum liðnum frá því að þau urðu til. [Þó skal veita aðgang að gögnum skv. 1. tölul. 4. gr. þegar liðin eru átta ár frá því að gögnin urðu til að frátöldum upplýsingum sem falla undir 5. og 6. gr.]
2)
1)L. 23/2006, 18. gr. 2)L. 115/2012, 5. gr.
III. kafli.
Aðgangur aðila að upplýsingum um hann sjálfan.
9. gr.
Upplýsingaréttur aðila.

Stjórnvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita aðila sjálfum aðgang að skjölum og öðrum gögnum sem varða tiltekið mál ef þau hafa að geyma upplýsingar um hann sjálfan.

Ákvæði 1. mgr. gilda þó ekki:
1. um þau gögn sem talin eru í 4. gr.;
2. um gögn sem hafa að geyma upplýsingar um mikilvæga almannahagsmuni er leynt eiga að fara skv. 6. gr.

Heimilt er að takmarka aðgang aðila að gögnum ef þau hafa jafnframt að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra, enda vegi þeir hagsmunir, sem mæla með því að upplýsingunum sé haldið leyndum, þyngra en hagsmunir þess sem fer fram á aðgang að gögnunum.

[Um aðgang sjúklings að upplýsingum úr sjúkraskrá fer eftir ákvæðum laga um [sjúkraskrár].
1)]
2)

Ákvæði 3., 7. og 8. gr. gilda, eftir því sem við getur átt, um aðgang aðila að gögnum.
1)L. 55/2009, 26. gr. 2)L. 76/1997, 5. gr.
IV. kafli.
Málsmeðferð.
10. gr.
Beiðni um aðgang að upplýsingum.

[Sá sem fer fram á aðgang að gögnum skal tilgreina þau gögn máls sem hann óskar að kynna sér. Þá getur hann óskað eftir að fá að kynna sér öll gögn um tiltekið mál án þess að tilgreina einstök gögn sem málið varða.]
1)

Stjórnvald getur sett það skilyrði að beiðni um aðgang að gögnum sé skrifleg og komi jafnframt fram á eyðublaði sem það leggur til.
2)

Þegar farið er fram á aðgang að gögnum um mál þar sem taka á eða tekin hefur verið ákvörðun um rétt eða skyldu manna skal beiðni beint til þess stjórnvalds sem tekið hefur eða taka mun ákvörðun í málinu. Annars skal beiðni beint til þess stjórnvalds sem hefur gögnin í sínum vörslum.
1)L. 161/2006, 2. gr. 2)Rg. 674/1996.
11. gr.
Málshraði og málsmeðferð.

Stjórnvald skal taka ákvörðun um hvort það verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skal skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.

[Þegar veittur er aðgangur að gögnum, sem þriðji maður á lögvarin réttindi yfir samkvæmt höfundalögum, skal veita upplýsingar um nafn rétthafa, liggi þær fyrir.]
1)

Um málsmeðferð fer að öðru leyti eftir stjórnsýslulögum.
1)L. 161/2006, 3. gr.
12. gr.
[Ljósrit eða afrit af gögnum.

Stjórnvöld taka ákvörðun um hvort gögn, sem heimilt er að veita aðgang að, skuli sýnd eða veitt af þeim ljósrit eða afrit.

Eftir því sem við verður komið er stjórnvöldum þó skylt, sé þess óskað, að láta í té ljósrit eða afrit af gögnum á því formi eða sniði og á þeim tungumálum, sem þau eru varðveitt á, nema þau séu þegar aðgengileg almenningi á rafrænu formi. Þegar skjöl eru eingöngu varðveitt á rafrænu formi getur aðili krafist þess að fá þau prentuð á pappír, nema 3. mgr. eigi við.

Þegar fjöldi skjala er mikill getur stjórnvald ákveðið að fela öðrum að sjá um ljósritun þeirra. Hið sama á við hafi stjórnvald ekki aðstöðu til að ljósrita skjöl. Aðili skal þá greiða þann kostnað sem hlýst af ljósritun skjalanna. Hið sama gildir um afrit af öðrum gögnum en skjölum eftir því sem við á.

[Ráðherra]
1) ákveður með gjaldskrá
2) hvað greiða skuli fyrir ljósrit og afrit gagna sem veitt eru samkvæmt lögum þessum. Heimilt er að mæta öllum þeim kostnaði sem af því hlýst.]
3)
1)L. 126/2011, 221. gr. 2)
Gjaldskrá 306/2009. 3)L. 161/2006, 4. gr.
13. gr.
Tilkynning ákvörðunar.

Ákvörðun stjórnvalds um að synja beiðni um aðgang að gögnum eða um ljósrit eða afrit af þeim skal tilkynnt skriflega ef beiðni hefur verið skrifleg.
V. kafli.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
14. gr.
Kæruheimild.

Heimilt er að bera synjun stjórnvalds um að veita aðgang að gögnum samkvæmt lögum þessum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál sem úrskurðar um ágreininginn. Hið sama gildir um synjun stjórnvalds um að veita ljósrit af skjölum eða afrit af öðrum gögnum.

Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum og verður úrskurðum hennar samkvæmt lögum þessum ekki skotið til annarra stjórnvalda.
15. gr.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

[Ráðherra]
1) skipar þrjá menn í úrskurðarnefnd um upplýsingamál til fjögurra ára og jafnmarga til vara. Skulu tveir nefndarmenn og varamenn þeirra uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar en hinn varaformaður. Nefndarmenn mega ekki vera fastráðnir starfsmenn í Stjórnarráði Íslands.

Nefndinni er heimilt að kalla sér til ráðgjafar og aðstoðar sérfróða aðila ef hún telur þörf á.

[Nefndarmenn eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem fram kemur í gögnum er nefndinni eru látin í té. Sama gildir um þá sem hún kann að kveðja sér til aðstoðar.]
2)
1)L. 126/2011, 221. gr. 2)L. 83/2000, 2. gr.
16. gr.
Málsmeðferð.

Mál skv. 1. mgr. 14. gr. skal borið skriflega undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál innan 30 daga frá því að þeim sem fór fram á aðgang að gögnum var tilkynnt um ákvörðun.

Nefndin getur veitt hlutaðeigandi stjórnvaldi stuttan frest til þess að láta í té rökstutt álit á málinu áður en því er ráðið til lykta. [Stjórnvaldi er skylt að láta nefndinni í té afrit af þeim gögnum er kæra lýtur að.]
1)

Þegar nefndarmenn eru ekki sammála ræður meiri hluti niðurstöðu máls. Ef atkvæði eru jöfn ræður atkvæði formanns.

Um meðferð mála hjá úrskurðarnefndinni fer að öðru leyti eftir VII. kafla stjórnsýslulaga.
1)L. 83/2000, 3. gr.
17. gr.
[Birting og aðfararhæfi úrskurðar.]1)

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skal birta úrskurð þeim sem fór fram á aðgang að gögnum og því stjórnvaldi sem í hlut á svo fljótt sem verða má.

Ef nefndin hefur tekið til greina beiðni um aðgang að gögnum ber stjórnvaldi að veita aðgang að þeim jafnskjótt og úrskurður hefur verið birtur, nema þess sé krafist að réttaráhrifum hans verði frestað skv. 18. gr.

[Úrskurður samkvæmt lögum þessum um aðgang að gögnum eða afrit af þeim er aðfararhæfur, nema réttaráhrifum hans hafi verið frestað.]
1)
1)L. 83/2000, 4. gr.
18. gr.
Frestun á réttaráhrifum úrskurðar.

Að kröfu stjórnvalds getur úrskurðarnefnd um upplýsingamál ákveðið að fresta réttaráhrifum úrskurðar telji hún sérstaka ástæðu til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en þremur dögum frá birtingu úrskurðar. …
1)

[Skal frestun á réttaráhrifum bundin því skilyrði að stjórnvald beri málið undir dómstóla innan sjö daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað.]
1)
1)L. 83/2000, 5. gr.
19. gr.
Útgáfa úrskurða.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skal árlega gefa út úrskurði sína eða útdrætti úr þeim.
VI. kafli.
Aðgangur að gögnum hjá Þjóðskjalasafni Íslands og öðrum opinberum skjalasöfnum.
20. gr.
Aðgangur að gögnum eftir að þau hafa verið afhent söfnum.

Þegar gögn þau sem lög þessi taka til hafa verið afhent Þjóðskjalasafni Íslands eða öðru opinberu skjalasafni skal hlutaðeigandi safn taka ákvörðun um hvort umbeðin gögn skuli sýnd eða hvort ljósrit skuli veitt af skjölum eða afrit af öðrum gögnum sé þess kostur.

Ef vafi er um rétt til aðgangs að gögnum getur safnið aflað rökstuddrar umsagnar þess stjórnvalds sem afhenti safninu gögnin áður en ákvörðun er tekin.
21. gr.
Kæruheimild.

Heimilt er að bera synjun um að veita aðgang að gögnum, ljósrit af skjölum eða afrit af gögnum skv. 20. gr. undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál skv. 14. gr.
VII. kafli.
Skráning mála o.fl.
22. gr.
Skráning mála.

Stjórnvöldum er skylt að skrá mál, sem koma til meðferðar hjá þeim, á kerfisbundinn hátt og varðveita málsgögn þannig að þau séu aðgengileg.

[Ráðherra]
1) er heimilt, að fengnu áliti þjóðskjalavarðar, að gefa út reglugerð þar sem mælt er fyrir um hvernig skjalastjórn skuli hagað í stjórnsýslu ríkisins, þar með talið hvers konar tölvuhugbúnað skuli nota.
1)L. 126/2011, 221. gr.
23. gr.
Skráning upplýsinga um málsatvik.

Við meðferð mála, þar sem taka á ákvörðun um rétt eða skyldu manna skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, ber stjórnvaldi að skrá upplýsingar um málsatvik sem því eru veittar munnlega ef þær hafa verulega þýðingu fyrir úrlausn málsins og þær er ekki að finna í öðrum gögnum þess.
[VIII. kafli.
Um endurnot opinberra upplýsinga.]1)
1)L. 161/2006, 5. gr.
[24. gr.
Markmið og gildissvið.

Markmið þessa kafla er að auka endurnot opinberra upplýsinga til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Jafnframt eru lögleiddar samræmdar lágmarksreglur um endurnot opinberra upplýsinga, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2005 um að fella inn í IX. viðauka við EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/98/EB frá 17. nóvember 2003 um endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera.

Endurnot opinberra upplýsinga vísar til þess að einkaaðili noti slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en ætlunin var þegar þeirra var aflað af hálfu stjórnvalda. Miðlun upplýsinga á milli stjórnvalda í þágu starfa þeirra telst ekki til endurnota á upplýsingum í þessum skilningi.

Ákvæði kaflans gilda einvörðungu um endurnot á fyrirliggjandi upplýsingum sem eru í vörslum stjórnvalda og almenningur á rétt til aðgangs að á grundvelli 3. gr. laga þessara eða annarra ákvæða laga sem veita almenningi slíkan rétt.

Ákvæði þessa kafla gilda ekki um:
1. Upplýsingar sem teknar eru saman af stjórnvöldum í viðskiptalegum tilgangi.
2. Gögn, skrár og upplýsingar úr gagnagrunnum sem þriðji maður á lögvarin réttindi yfir samkvæmt höfundalögum. Ákvæði kaflans gilda hins vegar eigi ríki, sveitarfélög eða stofnanir þeirra í skilningi 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. ein slík réttindi yfir upplýsingum, enda falli það stjórnvald sem fer með fyrirsvar réttindanna ekki undir 3. mgr. 25. gr.]
1)
1)L. 161/2006, 5. gr.
[25. gr.
Skilgreining á opinberum aðilum sem falla undir ákvæði þessa kafla.

Ákvæði þessa kafla taka til ríkis, sveitarfélaga, stofnana þeirra og annarra opinberra aðila, sbr. 2. mgr. Lögin taka einnig til samtaka sem þessir aðilar, einn eða fleiri, kunna að hafa með sér.

Aðili telst opinber ef hann getur borið réttindi og skyldur að lögum og sérstaklega hefur verið stofnað til hans í því skyni að þjóna almannahagsmunum, enda reki hann ekki starfsemi sem jafnað verður til starfsemi einkaaðila, svo sem á sviði viðskipta eða iðnaðar. Auk þess skal eitthvert eftirfarandi atriða eiga við um hann:
a. Starfsemi hans er að mestu leyti rekin á kostnað ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila. Miðað skal við að aðili sé að mestu leyti rekinn á kostnað ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila ef opinber fjármögnun nemur meira en 50% af rekstrarkostnaði. Tekjur aðila á grundvelli gagnkvæms viðskiptasamnings við opinberan aðila teljast ekki opinber fjármögnun.
b. Hann lýtur yfirstjórn ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila.
c. Hann lýtur sérstakri stjórn sem ríki eða sveitarfélög, stofnanir þeirra eða aðrir opinberir aðilar skipa að meiri hluta.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. gilda ákvæði þessa kafla þó ekki um:
a. Ríkisútvarpið.
b. Skóla, bóka- og skjalasöfn eða rannsóknastofnanir.
c. Menningarstofnanir.

Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. getur hlutaðeigandi ráðherra mælt svo fyrir í reglugerð að starfsemi stjórnvalds, sem undir hann heyrir og ákvæðið tekur til, falli engu að síður undir ákvæði þessa kafla í heild eða að hluta.]
1)
1)L. 161/2006, 5. gr.
[26. gr.
Almennir skilmálar fyrir endurnotum opinberra upplýsinga.

Heimilt er að endurnota opinberar upplýsingar sem eru almenningi aðgengilegar lögum samkvæmt, enda séu eftirfarandi skilyrði ávallt uppfyllt:
a. Endurnot upplýsinganna mega ekki brjóta í bága við lög, þ.m.t. ákvæði almennra hegningarlaga, höfundalaga og laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, eða réttindi þriðja manns.
b. Geta skal uppruna upplýsinganna.
c. Skýrt skal koma fram hver ber ábyrgð á vinnslu upplýsinganna þegar þær eru gerðar öðrum aðgengilegar.]
1)
1)L. 161/2006, 5. gr.
[27. gr.
Endurnot upplýsinga úr opinberum skrám.

Þegar veittur er aðgangur að upplýsingum úr opinberum skrám skv. 3. mgr. 3. gr. eða ákvæðum sérlaga er stjórnvaldi heimilt að áskilja að endurnot upplýsinganna séu leyfisskyld og uppfylli sérstök skilyrði, svo sem um gæði upplýsinga, uppfærslu þeirra o.fl. Gæta skal samræmis og jafnréttis við útfærslu slíkra skilyrða og mega þau ekki takmarka möguleika á endurnotum upplýsinganna eða samkeppni óhóflega.

Stjórnvöld skulu birta á heimasíðu sinni lista yfir þær skrár sem hafa að geyma upplýsingar í þeirra vörslum sem heimilt er að endurnota, svo og þau skilyrði sem slík endurnot eru bundin.

Umsókn um leyfi fyrir endurnotum á upplýsingum úr opinberum skrám skal beint til þess stjórnvalds sem lögum samkvæmt ber ábyrgð á færslu og vinnslu upplýsinganna í hlutaðeigandi skrá.

Stjórnvald skal afgreiða umsókn um leyfi til endurnota á upplýsingum úr opinberum skrám svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan 20 daga frá því umsókn barst skal skýra frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.

Synji stjórnvald að veita leyfi fyrir endurnotum á upplýsingum á grundvelli 2. tölul. 4. mgr. 24. gr. skal tilgreina nafn rétthafa eða umboðsmanns hans.

Heimilt er að taka gjald fyrir að veita aðgang að upplýsingum úr opinberum skrám á grundvelli 3. og 4. mgr. 12. gr. Skal hlutaðeigandi stjórnvald setja sér gjaldskrá sem ráðherra staðfestir. Gjaldskrána skal birta í B-deild Stjórnartíðinda auk þess sem hún skal vera aðgengileg á heimasíðu stjórnvaldsins.

Ekki þarf að greiða fyrir endurnot á upplýsingum, sem falla undir ákvæði þessa kafla og eru háðar höfundarétti ríkis og sveitarfélaga, umfram það sem segir í 6. mgr., nema lög mæli sérstaklega svo fyrir.

Tilgreina skal nafn rétthafa þegar stjórnvöld gera upplýsingar almenningi aðgengilegar á netinu á grundvelli samnings við þriðja mann sem á lögvarin réttindi yfir þeim samkvæmt höfundalögum.]
1)
1)L. 161/2006, 5. gr.
[28. gr.
Bann við samningum um sérleyfi.

Stjórnvöld mega ekki gera samninga um sérleyfi um endurnot opinberra upplýsinga sem ákvæði þessa kafla taka til, sbr. þó 2. mgr.

Ef ætla má að opinberar upplýsingar verði ekki endurnotaðar í þágu almannahagsmuna nema á grundvelli sérleyfis er heimilt að gera slíkan samning enda komi fram í honum rökstuðningur fyrir því. Endurmeta ber rök fyrir sérleyfissamningnum reglubundið og eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti.]
1)
1)L. 161/2006, 5. gr.
[IX. kafli.]1)
Gildistaka o.fl.
1)L. 161/2006, 5. gr.
[29. gr.]1)
Gildistaka laganna.

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1997.

Ákvæði laganna gilda um öll gögn án tillits til þess hvenær þau urðu til eða hvenær þau hafa borist stjórnvöldum.
1)L. 161/2006, 5. gr.
[30. gr.]1)
…
1)L. 161/2006, 5. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða. Sérleyfissamningar um endurnot opinberra upplýsinga sem ekki uppfylla skilyrði 2. mgr. 28. gr. skulu renna út eigi síðar en 31. desember 2008.]
1)
1)L. 161/2006, 6. gr.