Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2018. Útgáfa 148a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum
1981 nr. 51 29. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 9. júní 1981. Breytt með l. 59/1990 (tóku gildi 1. jan. 1991), l. 87/1995 (tóku gildi 1. júlí 1995) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. að koma í veg fyrir að hættulegir skaðvaldar berist til landsins og dreifist innanlands, og útrýma skaðvöldum, sem þegar hafa borist til landsins, teljist það framkvæmanlegt,
2. að hindra að skaðvaldar, sem aðrar þjóðir vilja verjast, berist frá Íslandi.
1)L. 126/2011, 91. gr. 2)Rg. 189/1990, sbr. 91/1998, 393/1999, 445/2014, 364/2015, 7/2017 og 278/2017. Rg. 53/1971. Rg. 343/2004, sbr. 264/2005 og 481/2006. Rg. 455/2006. Rg. 933/2017.
a. fyrirskipað eftirlit með innflutningi, útflutningi og dreifingu innanlands á öllum tegundum plantna, mold, húsdýraáburði, umbúðum og öðru, sem getur borið sjúkdóma og meindýr á plöntur, 2)
b. sett það skilyrði fyrir innflutningi, útflutningi eða dreifingu innanlands, að plönturnar séu algjörlega lausar við ákveðna skaðvalda, eða sett ákveðið hámark um magn þeirra,
c. bannað ræktun tiltekinna plöntutegunda á ákveðnum svæðum eða takmarkað ræktun við plöntur gæddar ákveðnum eiginleikum,
d. fyrirskipað landeigendum eða ræktendum að gera varnarráðstafanir gegn plöntusjúkdómum og meindýrum á eigin kostnað,
e. fyrirskipað eyðingu eða sérstaka meðhöndlun á plöntum eða á hlutum, sem geta borið og dreift skaðvaldi (t.d. mold, verkfæri, umbúðir, flutningatæki og geymslustaðir),
f. fyrirskipað sóttkví undir eftirliti sem skilyrði fyrir innflutningi.
1)L. 126/2011, 91. gr. 2)Rg. 343/2004, sbr. 264/2005 og 481/2006. 3)Rg. 525/2007. Rg. 567/2012, sbr. 59/2013, 842/2015 og 1239/2016. 4)L. 87/1995, 25. gr.
1)L. 126/2011, 91. gr.
1)L. 126/2011, 91. gr.