Lagasafn. Íslensk lög 10. janúar 2020. Útgáfa 150a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um átaksverkefni um framleiðslu og markaðssetningu vistvænna og lífrænna afurða
1995 nr. 27 3. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 9. mars 1995. Breytt með: L. 79/2000 (tóku gildi 2. júní 2000). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.

Efnt skal til átaksverkefnis um vöruþróun og sölu íslenskra afurða undir merkjum hollustu, hreinleika og sjálfbærrar þróunar á innlendum og erlendum mörkuðum.
2. gr.

[Ráðherra]
1) skipar fjóra menn í stjórn átaksverkefnisins og skal einn tilnefndur af [ráðuneytinu],
1) einn af [því ráðuneyti er fer með málefni landgræðslu],
1) einn af bændasamtökunum og einn samkvæmt tilnefningu VOR, landssamtaka bænda í lífrænum búskap.

[Ráðherra]
1) skipar formann úr hópi stjórnarmanna. Ef atkvæði falla jafnt við ákvarðanatöku hjá stjórninni ræður atkvæði formanns.
1)L. 126/2011, 207. gr.
3. gr.

Stjórn verkefnisins skal stuðla að verkefnum á sviði fræðslu um vistvæna og lífræna framleiðslu, gæðastjórnunar, áætlanagerðar, vöruþróunar og markaðssetningar íslenskra afurða undir merkjum hollustu, hreinleika og gæða.

Með lífrænni framleiðslu í lögum þessum er átt við þá framleiðslu er fellur undir
6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
4. gr.

[Ríkissjóður leggur átaksverkefninu til 25 millj. kr. á ári á fjárlögum árin 2000–2002.]
1)
1)L. 79/2000, 1. gr.
5. gr.

[Ráðherra]
1) hefur yfirumsjón með framkvæmd laga þessara.
1)L. 126/2011, 207. gr.
6. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.