Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 15. október 2021. Útgáfa 151c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um hefðbundinn herafla í Evrópu og samnings um opna lofthelgi
1994 nr. 90 9. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 3. júní 1994. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra eða utanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Eftirlitsmenn og flutningsáhafnir, sem starfa á grundvelli samnings frá 19. nóvember 1990 um hefðbundinn herafla í Evrópu og samnings frá 24. mars 1992 um opna lofthelgi, skulu njóta þeirrar friðhelgi, forréttinda og undanþágna hér á landi sem kveðið er á um í samningunum.
2. gr.
[Ráðherra] 1) getur sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
1)L. 126/2011, 196. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.