Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. október 2026.  Útgáfa 158a.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar

1980 53 28. maí


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 16. júní 1980. Breytt með: L. 57/1985 (tóku gildi 11. júlí 1985). L. 75/2007 (tóku gildi 1. ágúst 2007). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 110/2024 (tóku gildi 1. jan. 2025 nema 3. mgr. 2. gr. sem tók gildi 1. jan. 2026; um lagaskil sjá 7. gr. og brbákv.).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Markmið.
1. gr.
Með lögum þessum er stefnt að jöfnun hitunarkostnaðar og lækkun á heildarkostnaði við upphitun húsnæðis í landinu, m.a. með eftirfarandi ráðstöfunum:
    a. Greiðslu olíustyrks vegna þeirra sem búa við olíukyndingu.
    b. Hagkvæmari orkunotkun og orkusparnaði.
    c. Aukinni notkun innlendra orkugjafa í stað olíu.
2. gr.
Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr ríkissjóði.

II. kafli. Um olíustyrk.
3. gr.
Þeir sem eingöngu nota gasolíu sem orkugjafa til hitunar íbúðar eiga rétt á olíustyrk, sbr. 4. gr.
Olíustyrkur skal vera 20 þús. kr. á ársfjórðungi og er heimilt að breyta honum miðað við breytingu á gasolíuverði og verði annarra orkugjafa.
4. gr.
Olíustyrkir skulu greiddir húsráðanda ársfjórðungslega vegna þeirra íbúa sem hafa fasta búsetu (lögheimili) í viðkomandi íbúð meirihluta styrktímabils.
Fjöldi styrkja reiknast þannig:
    a. Fyrir einn íbúa greiðast 2 olíustyrkir.
    b. Fyrir tvo íbúa greiðast 3 olíustyrkir.
    c. Fyrir þrjá íbúa greiðast 3 1/ 2 olíustyrkur.
    d. Fyrir fjóra íbúa greiðast 4 olíustyrkir.
    e. Fyrir fimm íbúa greiðast 4 1/ 2 olíustyrkur.
    f. Fyrir sex íbúa greiðast 5 olíustyrkir.
    g. Fyrir sjö íbúa eða fleiri greiðast 5 1/ 2 olíustyrkur.
Við framangreinda styrki bætist 1/ 2 olíustyrkur vegna lífeyrisþega, sem njóta bóta samkvæmt 19. gr. laga um almannatryggingar, og annarra lífeyrisþega sem hafa svipaðar heildartekjur.
Olíustyrkur skal ekki talinn til tekna við álagningu tekjuskatts og útsvars.
5. gr.
Heimilt er að greiða árlega einn olíustyrk, sbr. 3. gr., á hvert olíukynditæki sem hefur verið sótthreinsað og stillt á árinu.
6. gr.
Þeir sem kost eiga á hitaveitu, fjarvarmaveitu eða rafhitun eiga ekki rétt á olíustyrk. Viðkomandi orkuveita sker úr um hvort húseign á kost á öðrum orkugjafa en olíu. Ráðuneytið sker úr um vafaatriði.
7. gr.
Heimilt er:
    a. að greiða styrk vegna skólahúsnæðis, sem hitað er með olíu. Árlegur styrkur má nema 465 kr. á hvern rúmmetra upphitaðs húsrýmis, og er heimilt að breyta honum, sbr. 3. gr.,
    b. að styrkja rafveitur að því marki, sem þær nota olíu sem orkugjafa til framleiðslu rafmagns til hitunar íbúða á sölusvæði sínu,
    c. að styrkja aðila, sem ekki eiga kost á raforku frá samveitu og verða að leysa raforkuþörf sína með rekstri dísilstöðva. Skal styrkurinn vera sá sami og veittur er til hitunar íbúða samkvæmt lögum þessum.
8. gr.
Olíustyrkir skv. 4. gr. skulu greiddir til sveitarfélaga, sem annast úthlutun þeirra til húsráðenda. Sveitarfélögum er skylt að senda ráðuneyti ársfjórðungslega skilagrein um úthlutun olíustyrkja. Vanræki sveitarfélag slíkt er heimilt að fresta greiðslum til þess þar til úr hefur verið bætt. Skylt er orkuveitum, að olíusölum meðtöldum, að gefa upplýsingar um orkusölu til einstakra húseigna.

III. kafli. Um orkusparnað.
9. gr.
[Umhverfis- og orkustofnun] 1) skal gera áætlun um hagkvæma orkunotkun og orkusparnað í húshitun. Í áætluninni skal gerð grein fyrir orkunotkun húsnæðis í landinu, möguleikum til orkusparnaðar, hagkvæmni einstakra aðgerða og heildarkostnaði miðað við tiltekin orkusparnaðarmarkmið.
    1)L. 110/2024, 8. gr.
10. gr. … 1)
    1)L. 75/2007, 17. gr.
11. gr.
Til fræðslu og upplýsingastarfsemi um orkusparnað skal verja árlega upphæð sem nemur a.m.k. 1/ 2 hundraðshluta af áætlaðri heildarupphæð olíustyrkja til einstaklinga skv. 3. gr.
12. gr.
Heimilt er að veita sveitarfélögum, þar sem olía er notuð til húshitunar, styrki vegna tækniþjónustu á sviði orkusparnaðar og til að undirbúa aðgerðir, sem stuðlað geta að hagkvæmari orkunotkun.
13. gr.
Húsnæðismálastofnun er heimilt að veita einstaklingum lán til orkusparandi endurbóta á íbúðarhúsnæði, sem hitað er með olíu.

IV. kafli. Um nýtingu innlendra orkugjafa.
14. gr.
[Umhverfis- og orkustofnun] 1) skal í samráði við Rafmagnsveitur ríkisins gera húshitunaráætlun fyrir tímabilið 1981–1983 um nýtingu innlendra orkugjafa til húshitunar í stað olíu. Skal þar gera tillögur um árlegar framkvæmdir í orkumálum, sem nauðsynlegar teljast til þess að sem flestir landsmenn búi við innlenda orkugjafa eða njóti orku frá olíukyntri fjarvarmaveitu í árslok 1983.
    1)L. 110/2024, 8. gr.
15. gr.
Til að tryggja að innlendir orkugjafar séu samkeppnishæfir við olíukyndingu er heimilt að veita varmaveitum framlag til að jafna þann mun sem orkuverð þeirra er metið hærra en sem nemur hitunarkostnaði með olíu að frádregnum olíustyrk.

V. kafli. Um gildistöku og reglugerð.
16. gr.
[[Ráðherra] 1) fer með framkvæmd laganna og er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þeirra. 2)] 3)
    1)L. 126/2011, 84. gr. 2)Rg. 323/1980 (um úthlutun olíustyrks). Rg. 510/1980 (um framlag til varmaveitna til nýtingar innlendra orkugjafa). 3)L. 57/1985, 1. gr.
17. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi …
Ákvæði til bráðabirgða.
Í þeim tilvikum, sem hitunarkostnaður með raforku reynist hærri en hitunarkostnaður með olíu að frádregnum olíustyrk, er ríkisstjórninni heimilað að jafna þennan mismun með sérstökum styrk.
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica