Um undirbúningsnefnd um rannsókn kosninga
Samkvæmt 46. gr. stjórnarskrárinnar og kosningalögum úrskurðar Alþingi um gildi alþingiskosninga. Kærufrestur er sjö dagar frá því að landskjörstjórn hefur birt auglýsingu í Stjórnartíðindum um niðurstöður kosninganna. Kærum skal beint til landskjörstjórnar, sbr. 127. gr. kosningalaga. Landskjörstjórn leggur framkomnar kærur og gögn (gerðarbækur og skýrslur yfirkjörstjórna) fyrir Alþingi ásamt rökstuddri umsögn sinni um kærurnar og um mat á kjörgengi nýkjörinna þingmanna og gildi ágreiningsseðla, sbr. 132. gr. kosningalaga.
Þegar landskjörstjórn hefur lagt fyrir Alþingi umsögn um alþingiskosningar og áður en Alþingi kemur saman er starfandi forseta Alþingis heimilt að kveðja saman nefnd níu kjörinna alþingismanna (undirbúningsnefnd) til að undirbúa þá rannsókn kosninga og annarra mála sem fer fram á þingsetningarfundi, sbr. 1. gr. laga um þingsköp Alþingis.
Við val í undirbúningsnefndina er fylgt hlutfallsreglu 82. gr. þingskapa Alþingis. Þingflokkar sem ekki eiga fulltrúa í nefndinni mega tilnefna áheyrnarfulltrúa. Í áliti kjörbréfanefndar, sem kjörin er á þingsetningarfundi, er fjallað um framkomnar kosningakærur og kjörseðla sem ágreiningur hefur verið um milli umboðsmanna og yfirkjörstjórna (ágreiningsseðla) ef einhverjir eru og gerð tillaga um afgreiðslu þeirra og um samþykkt kosningar og kjörgengi þingmanna. Álit kjörbréfanefndar er svo lagt fram á þingfundi og greiða þingmenn atkvæði um tillögur kjörbréfanefndar. Sjá til upplýsingar álit og tillögur kjörbréfanefndar vegna alþingiskosninga.

