6. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 155. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, fimmtudaginn 10. október 2024 kl. 09:12


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 09:22
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 09:12
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:12
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:12
Dagbjört Hákonardóttir (DagH), kl. 09:12
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:12

Líneik Anna Sævarsdóttir boðaði forföll. Þá voru Bergþór Ólason
og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fjarverandi.

Formaður fól Eyjólfi Ármannssyni að hefja fund, sbr. 3. mgr. 4. gr. starfsreglna fastanefnda. Formaður tók síðan við fundarstjórn kl. 09.22.

Nefndarritari: Þórhildur Líndal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:12
Fundargerðir 2.-5. fundar voru samþykktar.

2) 232. mál - viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi Kl. 09:12
Nefndin fékk á sinn fund þær Sigríði Valgeirsdóttur og Helgu Hauksdóttur frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Fóru þær yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 222. mál - námsgögn Kl. 09:25
Nefndin fékk á sinn fund þau Aðalheiði Jónsdóttur og Skúla Leifsson frá Rannís. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá samþykkti nefndin að óska eftir minnisblaði frá mennta- og barnamálaráðuneyti, sbr. 51. gr. þingskapa, þar sem fram komi afstaða ráðuneytisins til þeirra umsagna sem hafa borist um málið.

4) 263. mál - bókmenntastefna fyrir árin 2025–2030 Kl. 09:35
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

5) 20. mál - útlendingar Kl. 09:36
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Eyjólfur Ármannsson yrði framsögumaður málsins samþykkt.

6) 40. mál - endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla Kl. 09:37
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

7) 183. mál - bann við veðmálastarfsemi í tengslum við íþróttakappleiki ósjálfráða ungmenna og skipulagningu hennar Kl. 09:38
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

8) 32. mál - jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála Kl. 09:39
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Jódís Skúladóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

9) 8. mál - bardagaíþróttir Kl. 09:40
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

10) 44. mál - meðferð sakamála Kl. 09:41
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

11) 259. mál - framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025–2028 Kl. 09:42
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Jódís Skúladóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

12) 16. mál - myndlistarlög Kl. 09:43
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Bryndís Haraldsdóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

13) 68. mál - trúarbragðafræði sem valgrein í framhaldsskólum Kl. 09:44
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Þá var tillaga um að Bryndís Haraldsdóttir yrði framsögumaður málsins samþykkt.

14) 221. mál - stefna í neytendamálum til ársins 2030 Kl. 09:45
Nefndin samþykkti að óska eftir minnisblaði frá menningar- og viðskiptaráðuneyti, sbr. 51. gr. þingskapa, þar sem fram komi afstaða ráðuneytisins til þeirra umsagna sem hafa borist um málið.

15) Framkvæmd ákvarðana um brottvísanir og frávísanir Kl. 09:46
Nefndin ræddi málið.

16) Önnur mál Kl. 09:50
Nefndin ræddi stöðu mála í nefndinni og starfið framundan.

Fundi slitið kl. 10:05