48. fundur
allsherjar- og menntamálanefnd á 157. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, þriðjudaginn 21. apríl 2026 kl. 09:01


Mætt:

Víðir Reynisson (VíðR) formaður, kl. 09:01
Jón Pétur Zimsen (JPZ) 1. varaformaður, kl. 09:01
Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS), kl. 09:02
Pétur Björgvin Sveinsson (PBS), kl. 09:01
Rúnar Sigurjónsson (RúnS), kl. 09:01
Sandra Sigurðardóttir (SandrS), kl. 10:07
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 09:04
Sigurður Örn Hilmarsson (SÖH), kl. 09:01
Þorsteinn B Sæmundsson (ÞSæm), kl. 09:01

Jón Pétur Zimsen vék af fundi kl. 11:24. Sigurður Örn Hilmarsson vék af fundi kl. 11:04.
Sigurður Ingi Jóhannsson tók þátt í fundinum með notkun fjarfundabúnaðar.

Nefndarritari: Katrín Sól Gunnarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01

Fundargerð 47. fundar var samþykkt.

 


2) 316. mál - útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga Kl. 09:02

Á fund nefndarinnar mættu Tótla I. Sæmundsdóttir og Andrés Ingi Jónsson frá Barnaheillum. 


3) 443. mál - Miðstöð menntunar og skólaþjónustu o.fl. Kl. 09:08

Á fund nefndarinnar mættu Tótla I. Sæmundsdóttir og Andrés Ingi Jónsson frá Barnaheillum og Andrea Valgeirsdóttir og Sindri Viborg frá ÖBÍ réttindasamtökum. 

Þá mættu Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir og Íris E. Gísladóttir frá Samtökum iðnaðarins og Lilja Hrund Lúðvíksdóttir frá Samtökum atvinnulífsins. Íris E. Gísladóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. 

Þar á eftir mætti Lárus Blöndal frá Hagstofu Íslands. Að lokum mætti Konráð Jónsson frá Persónuvernd. 


4) 309. mál - opinberir háskólar Kl. 10:47

Á fund nefndarinnar mættu Jón Bjarnason, Gunnar Rögnvaldsson og Bjarni Maronsson.

Því næst komu Valur Árnason, Sandra Guðjónsdóttir, Sunna Jóhannsdóttir og Una Viðarsdóttir frá menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu. 


5) 297. mál - jöfn staða og jafn réttur kynjanna Kl. 11:04

Tillaga formanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af Víði Reynissyni, Jóni Pétri Zimsen, Guðmundi Ara Sigurjónssyni, Pétri Björgvini Sveinssyni, Rúnari Sigurjónssyni, Söndru Sigurðardóttur, Sigurði Inga Jóhannssyni og Sigurði Erni Hilmarssyni. Þorsteinn Sæmundsson sat hjá við afgreiðsluna. Að nefndaráliti meiri hluta standa Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Pétur Björgvin Sveinsson, Rúnar Sigurjónsson og Sandra Sigurðardóttir. 


6) Önnur mál Kl. 11:20

Nefndin ræddi starfið framundan. 




Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:29