24. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. desember 2013 kl. 09:06


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:06
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:06
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:06
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:17
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:14
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:06
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:06
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:06
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:13

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) 176. mál - jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla Kl. 09:06
Á fund nefndarinnar kom Bergþóra Halldórsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins, Þóra Björg Jónsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Jóna Aðalheiður Pálmadóttir frá Mannréttindaskrifstofu Íslands. Kristín Ásgeirsdóttir frá Jafnréttisstofu var á símafundi. Fóru þær yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 29. mál - skipun nefndar um málefni hinsegin fólks Kl. 10:00
Dagskrárlið frestað.

3) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00