49. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 12. apríl 2016 kl. 11:00


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 11:00
Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 11:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 11:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 11:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 11:23
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 11:00
Karl Garðarsson (KG), kl. 11:00
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 11:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 11:00

Helgi Hrafn Gunnarsson mætti seinna vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:00
Fundargerð 46.,47., og 48 voru samþykktar.

2) 615. mál - dómstólar Kl. 11:03
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir, Kristín Haraldsdóttir og Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson frá innanríkisráðuneytinu og Sigurður Tómas Magnússon prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 616. mál - meðferð einkamála og meðferð sakamála Kl. 11:03
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir, Kristín Haraldsdóttir og Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson frá innanríkisráðuneytinu og Sigurður Tómas Magnússon prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 11:40
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:40