Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
112. löggjafarþing 1989–1990.
Nr. 22/112.
Þskj. 1062 — 25. mál.
Þingsályktun
um rannsókn á siglingaleið um Hornafjörð.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að hlutast til um við Hafnamálastofnun ríkisins að hraðað verði rannsókn á innsiglingunni við Hornafjarðarós og öðrum aðstæðum í tengslum við skipaleiðir um Hornafjörð.
Samþykkt á Alþingi 26. apríl 1990.