Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 69 . mál.


Sþ.

71. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um innflutning á hundum.

Frá Inga Birni Albertssyni.



1.     Hverjum hefur verið heimilað að flytja hunda til landsins síðastliðin 10 ár? Þess er óskað að fram komi í svarinu nöfn innflytjenda og hvaðan hundarnir hafa verið fluttir, enn fremur rökstuðningur fyrir heimildinni.
2.     Hverjum hefur ráðuneytið synjað um slíkan innflutning á hundum á sama tíma? Óskað er eftir að upplýsingar verði sundurgreindar eins og við fyrri spurningu.
3.     Hvenær má vænta þess að komið verði á hundasóttkví til nota í þessu skyni?



Skriflegt svar óskast.