Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 111 . mál.


Ed.

834. Nefndarálit



um frv. til l. um aðför.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Hér er um viðamikinn lagabálk að ræða sem ætlað er að leysa af hólmi tvenn lög um aðfarargerðir, annars vegar lög um aðför, nr. 19/1887, og hins vegar lög um lögtak og fjárnám án undanfarins dóms eða sáttar, nr. 29/1885. Frumvarpið er samið sem þáttur í heildarendurskoðun löggjafar um dómstólaskipan og réttarfar á héraðsdómsstigi og tengist þannig frumvarpi til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, en nefndin hefur nýlega afgreitt það frumvarp frá sér.
    Markús Sigurbjörnsson, prófessor við lagadeild Háskólans, vann með nefndinni að athugun málsins, en auk þess komu lögfræðingarnir Viðar Már Matthíasson og Sigurður G. Guðjónsson til viðræðna við nefndina um ákveðna þætti frumvarpsins. Þá bárust nefndinni umsagnir um frumvarpið frá Dómarafélagi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Lögmannafélagi Íslands, Sýslumannafélagi Íslands, Má Péturssyni bæjarfógeta og réttarfarsnefnd.
    Með hliðsjón af fyrirliggjandi umsögnum leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með tveimur breytingartillögum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali. Fyrri breytingartillagan felur í sér að felldur er brott 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. Sú breyting felur í sér að héraðsdómari þurfi ekki að fjalla um aðfararkröfu sem styðst við skuldabréf, víxil eða tékka. Þar sem dómari athugar fyrst og fremst hvort öllum formsatriðum er fullnægt en leggur ekki mat á efni málsins verður ekki séð að sérstök þörf sé á því að dómari kanni gildi aðfararheimilda til þess að rita á þær hvort aðför megi fara fram eða ekki. Sýslumenn gætu eins kannað gildi aðfararheimildanna með sama hætti og dómurum er ætlað að gera samkvæmt frumvarpinu. Ekki verður séð að réttaröryggi gerðarþola skerðist nokkuð þótt þessi háttur yrði hafður á, enda eru endurupptöku- og málskotsleiðir tiltölulega greiðar samkvæmt frumvarpinu. Þá er líka rétt að hafa í huga að í þeim tilvikum, sem skuldari mótmælir og kærir aðför, er óeðlilegt að sami aðili (þ.e. héraðsdómari) hafi áritað aðfararheimildina og úrskurði jafnframt síðar um kæru skuldara.
    Síðari breytingartillagan varðar gildistökuákvæði frumvarpsins, en lagt er til að gildistöku laganna verði frestað um tvö ár, til 1. júlí 1992. Þessi breyting er til samræmis við frestun á gildistökuákvæði frumvarps um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði.
    Guðrún Agnarsdóttir sat fundi nefndarinnar og er samþykk þessu áliti.


Alþingi, 11. apríl 1989.



Jón Helgason,

Guðmundur Ágústsson,

Salome Þorkelsdóttir,


form., frsm.

fundaskr.

með fyrirvara.



Ey. Kon. Jónsson,

Eiður Guðnason.

Skúli Alexandersson.


með fyrirvara.



Jóhann Einvarðsson.