Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 204 . mál.


Sþ.

1304. Frumvarp til laga



um tekjustofna sveitarfélaga.

(Eftir eina umr. í Nd., 19. maí.)



    Samhljóða þskj. 838 með þessum breytingum:

    16. gr. hljóðar svo:
    Framlögum skv. e-lið 13. gr. skal varið til að bæta dreifbýlissveitarfélögum upp aukinn kostnað vegna breytinga á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem koma til framkvæmda samhliða lögum þessum.
    Framlögin skulu miðuð við að hagur þessara sveitarfélaga verði ekki lakari eftir breytingar á verkaskiptingunni heldur en áður var.
    Í reglugerð skal meðal annars setja nánari ákvæði um útreikning þessara framlaga og hvaða skilyrðum sveitarfélög þurfa að fullnægja til að hljóta þau.

    34. gr. hljóðar svo:
    Sveitarstjórnum er heimilt að leggja aðstöðugjöld á þá aðila sem taldir eru upp í 1., 2. og 3. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt og stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í sveitarfélaginu, eftir því sem nánar er ákveðið í lögum þessum. Aðstöðugjöld skulu renna í sveitarsjóð.
    Undanþegnir aðstöðugjaldsskyldu eru þó eftirtaldir aðilar:
a.     Þeir sem um ræðir í 4. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt.
b.     Þeir sem greiða landsútsvör skv. 9. gr. Undanþága olíufélaganna nær þó aðeins til olíu og olíuvara.
c.     Starfsemi sláturhúsa og mjólkurbúa. Undanþága mjólkurbúa nær einungis til framleiðslu mjólkur og mjólkurafurða.