Ferill 48. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 48 . mál.
Sþ.
48. Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um framleiðslu og sölu laxaseiða frá Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði.
Frá Guðmundi G. Þórarinssyni.
1. Hvaðan og af hvaða stofni eru hrogn sem Laxeldisstöðin í Kollafirði hefur notað til klaks? Svar óskast ár fyrir ár frá 1961 til dagsins í dag.
2. Hver hefur framleiðsla seiða verið ár fyrir ár frá 1961 til dagsins í dag?
3. Hvernig hefur seiðunum verið ráðstafað:
a. til hafbeitar í Kollafirði,
b. til fiskeldisstöðva, hvaða stöðva og hve mikið til hverrar,
c. til sleppinga í ár, í hvaða ár og hve mikið í hverja?
Svar óskast ár fyrir ár frá 1961 til dagsins í dag.
Skriflegt svar óskast.