Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 290 . mál.


Sþ.

524. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um setningu reglugerðar um framkvæmd laga um skuldbreytingar vegna loðdýraræktar.

Frá Stefáni Valgeirssyni.



1.     Hvenær verður reglugerð um skuldbreytingar vegna loðdýraræktar gefin út?
2.     Hvenær má vænta þess að loðdýrabændur fái afgreiðslu á skuldbreytingum vegna lausaskulda sinna?
3.     Hvað verður gert til þess að fóðurstöðvum loðdýraræktar, sem eru að stöðvast, m.a. vegna dráttar á afgreiðslu skuldbreytinga til bænda, verði ekki lokað á næstu dögum?