Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 280 . mál.
Sþ.
537. Svar
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Eiðs Guðnasonar um fiskiskip í smíðum erlendis.
Spurt er:
1. Hve mörg fiskiskip eru nú í smíðum erlendis fyrir íslenska aðila?
2. Hver er stærð þessara skipa?
3. Til hvaða veiða eru þessi skip ætluð?
4. Til hvaða útgerðarstaða munu þessi skip fara?
Svar:
Fjöldi Stærð Veiðarfæri Útgerðarstaður
skipa Brúttótonn
1 195 Togskip Grindavík
1 200 Togskip Vestmannaeyjar
1 200 Lína-net-togveiðar Hornafjörður
1 200 Lína-net-togveiðar Hornafjörður
1 200 Lína-net-togveiðar Hornafjörður
1 200 Togskip Vestmannaeyjar
1 200 Lína-net-togveiðar Hrísey
1 1100 Nóta- og togskip Eskifjörður
1 1400 Skuttogari Akureyri
1 300 Togskip Þorlákshöfn
————————————————————————
10 4195
Stærð skipanna er miðuð við nýjar mælingareglur Siglingamálastofnunar (brúttótonn). Samkvæmt eldri mælingareglum yrði samanlögð stærð skipanna um 3.900 brúttólestir.