Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.

1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 513 . mál.


Nd.
899. Frumvarp til laga


um breytingu á lögum nr. 25 22. maí 1975, um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.

Flm.: Ásgeir Hannes Eiríksson.


1. gr.

    Í stað 1.–12. gr. laganna komi 11 nýjar greinar með kaflafyrirsögnum, svohljóðandi:

A. I. kafli. Markmið og orðskýringar.
a. (1. gr.)
    Markmið laga þessara er að varðveita líf sem kviknað hefur í móðurkviði og koma í veg fyrir ótímabæra þungun með því að fræða fólk um kynlíf og getnaðarvarnir á skipulagðan hátt. Einnig að tryggja verðandi foreldrum læknisfræðilega og félagslega ráðgjöf meðan á meðgöngu stendur og eftir fæðingu.
    Þá er markmið laga þessara að skilgreina hugtökin fóstureyðing og ófrjósemisaðgerð og mæla fyrir um hvenær þær eru heimilaðar.

b. (2. gr.)
    Samkvæmt lögum þessum merkir fóstureyðing læknisaðgerð sem kona gengst undir til að binda enda á kviknað líf í móðurkviði, en ófrjósemisaðgerð þegar sáðgöngum karla og eggjaleiðurum kvenna er lokað og þannig komið í veg fyrir að karl eða kona auki kyn sitt.

B. II. kafli. Ráðgjöf og fræðsla.
c. (3. gr.)
    Gefa skal fólki kost á ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir.
    Á vegum landlæknisembættisins skal starfrækt deild, kynfræðsludeild, er hefur með höndum yfirumsjón með kynfræðslumálum í landinu. Skal verkefni þeirrar deildar felast í:
a.    kynningu, þar með talin útgáfa fræðslugagna til notkunar í skólum og fyrir almenning,
b.    skipulagningu félagslegrar aðstoðar fyrir foreldra, bæði meðan á meðgöngu stendur og eftir barnsburð.
    Forstöðumaður þessarar deildar skal að jafnaði vera læknir. Enn fremur skal félagsráðgjafi og hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir starfa við hana.
    Nánari skipulagning og starfsemi kynfræðsludeildar skal ákveðin í reglugerð er heilbrigðisráðherra setur um kynfræðslu.

d. (4. gr.)
    Við hverja heilsugæslustöð og sjúkrahús skal starfrækt ráðgjafarþjónusta er hefur með höndum eftirtalin verkefni:
1.    Fræðslu og ráðgjöf um notkun getnaðarvarna og útvegun þeirra.
2.    Ráðgjöf fyrir fólk sem íhugar að fara fram á fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð.
3.    Kynfræðslu, ráðgjöf og fræðslu um ábyrgð foreldra.
4.    Ráðgjöf og fræðslu varðandi þá aðstoð sem konunni stendur til boða við meðgöngu og barnsburð.
    Ráðgjafarþjónustan má vera í starfstengslum við mæðranefnd, kvensjúkdómadeildir, geðvernd, fjölskylduráðgjöf og félagsráðgjafarþjónustu.
    Að ráðgjafarþjónustunni skulu starfa læknar, félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og annað starfsfólk eftir því sem þörf krefur.
    Ráðgjafarþjónustur skulu starfa í nánum tengslum við deild þá sem mælt er fyrir um í 3. gr. laga þessara.

e. (5. gr.)
    Ráðgjöf fyrir fólk, sem íhugar fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð, tekur til þess sem hér segir:
1.    læknishjálpar,
2.    þungunarprófana,
3.    ráðgjafar og stuðningsviðtala,
4.    félagslegrar aðstoðar,
5.    aðstoðar við umsókn og tilvísun til sjúkrahúss.

f. (6. gr.)
    Fræðsluyfirvöld skulu í samráði við kynfræðsludeild og ráðgjafarþjónustustöðvar á hverjum stað veita fræðslu um kynlíf, siðferði kynlífsins, fóstrið og þroskaskeið þess í móðurkviði, fæðingu barns, félagslegar aðstæður og réttindi mæðra eða foreldra ungra barna. Fræðsla þessi skal fara fram á skyldunámsstigi í skólum landsins. Einnig skal veita þessa fræðslu á öðrum námsstigum.
    Kynfræðsludeild skal sjá um útgáfu námsgagna sem lögð eru til grundvallar í kennslu. Fulltrúi frá kynfræðsludeild skal heimsækja skóla landsins reglulega og veita kennurum og nemendum upplýsingar um kynlíf og barneignir.

C. III. kafli. Fóstureyðingar.
g. (7. gr.)
    Líf, sem kviknað hefur í móðurlífi, er friðheilagt. Að öðru leyti en lög þessi heimila má ekki binda enda á kviknað líf.

h. (8. gr.)
    Fara má fram á fóstureyðingu ef eftirfarandi aðstæður eru fyrir hendi:
1.    Þegar ætla má að lífi eða heilsu konu sé hætta búin af áframhaldandi meðgöngu og fæðingu.
2.    Þegar sterkar líkur eru fyrir því að barn, sem kona gengur með, eigi á hættu að fæðast vanskapað eða verði haldið alvarlegum sjúkdómi.
3.    Þegar ætla má að þungun og tilkoma barns verði stúlku allt að 16 ára að aldri of erfið vegna óviðráðanlegra félagslegra ástæðna. Foreldrar eða lögráðamaður stúlkunnar verða að standa að slíkri umsókn með henni. Þá skal læknisúrskurður einnig liggja fyrir að heilsu stúlkunnar sé ekki stefnt í hættu með aðgerðinni.
4.    Ef konu hefur verið nauðgað eða hún orðið þunguð sem afleiðing af öðru refsiverðu athæfi.

i. (9. gr.)
    Fóstureyðing skal framkvæmd eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 10. viku meðgöngutímans.
    Fóstureyðingu skal aldrei framkvæma eftir 16. viku meðgöngutímans nema fyrir hendi séu ótvíræðar heilsufarsástæður og lífi eða heilsu konunnar stefnt í hættu með lengri meðgöngu eða fæðingu.
    Fóstureyðing er leyfileg eftir 16 vikna meðgöngu ef sýnt þykir að barnið sé haldið alvarlegum sjúkdómum eða vansköpun. Slíkar undanþágur eru aðeins heimilar að fenginni skriflegri heimild nefndar skv. 26. gr.

j. (10. gr.)
    Áður en fóstureyðing skv. 1. og 2. tölul. 8. gr. má fara fram skulu liggja fyrir skriflegar álitsgerðir tveggja lækna um nauðsyn aðgerðarinnar. Skal annar þessara lækna vera sérfræðingur í kvensjúkdómum eða almennum skurðlækningum við það sjúkrahús þar sem aðgerðin fer fram.
    Áður en fóstureyðing má fara fram skv. 3. og 4. tölul. 8. gr. verður að liggja fyrir skrifleg, rökstudd greinargerð læknis og félagsráðgjafa um nauðsyn aðgerðarinnar.

k. (11. gr.)
    Áður en fóstureyðing má fara fram er skylt að upplýsa konuna, sem fer fram á aðgerðina, um fóstrið og þroskastig þess, áhættuna samfara aðgerðinni og hugsanleg eftirköst. Enn fremur um þá félagslegu aðstoð sem henni stendur til boða og þann kost að láta barnið í fóstur eða láta ættleiða það. Öll ráðgjöf og fræðsla skal veitt á óhlutdrægan hátt með virðingu fyrir móður og barni.

2. gr.

    Orðin „nema sérstakar ástæður mæli því gegn“ í niðurlagi 3. tölul. 13. gr. laganna, sem verður 12. gr., falli brott.

3. gr.

    17. gr. laganna falli brott.

4. gr.

    Heiti laganna breytist og verði: Lög um friðhelgi mannlegs lífs, fóstureyðingar, ófrjósemisaðgerðir og ráðstafanir til að draga úr ótímabærum þungunum með fræðslu og ráðgjöf.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 25/1975 og gefa þau út svo breytt.

Greinargerð.

I. Formáli.

    Grundvöllur mannlegs lífs er rétturinn til að fá að lifa og viðurkenning á því að kviknað líf sé ekki háð eignarrétti nokkurs annars.
    Á þessum grunnforsendum er heiti laganna byggt, að mannlegt líf sé friðheilagt.

II. Þróun fóstureyðingarlöggjafar á Íslandi.

    Upphaf fóstureyðinga hér á landi má rekja til laga nr. 38 frá 28. janúar 1935 er bera heitið lög um leiðbeiningar fyrir konur um varnir gegn því að verða barnshafandi og um fóstureyðingar. Fyrir þann tíma var þung refsing lögð við að deyða fóstur. Samkvæmt hegningarlögum frá 25. júní 1869, sem giltu allt til ársins 1940, varðaði það hegningarvinnu allt að átta árum ef „óléttur kvenmaður af ásettu ráði eyðir burði sínum“.

Lögin frá 1935.

    Með lögunum frá 1935 varð heimilt að eyða fóstri en þær heimildir voru innan mjög þröngra marka og einungis á læknisfræðilegum forsendum. Var í þeim lögum litið svo á að fóstureyðing væri neyðarúrræði og skilgreind í samræmi við það, sbr. 5 mgr. 3. gr. laganna: „Það er fóstureyðing, ef burður er líflátinn í móðurkviði áður en konan hefur gengið með hann fullar 28 vikur eða fósturláti komið til leiðar, nema einkenni þess hafi áður komið í ljós, að konunni sé að leysast höfn og augljóst sé að fósturlát verði ekki stöðvað.“

Lögin frá 1938.

    Með lögum nr. 16 frá 13. jan. 1938 um „að heimila í viðeigandi tilfellum aðgerðir á fólki, er koma í veg fyrir að það auki kyn sitt“, var fóstureyðing heimiluð ef þargreind skilyrði væru fyrir hendi. Annars vegar var fóstureyðing samkvæmt þeim lögum heimiluð ef gild rök lágu til þess að burður viðkomandi væri í mikilli hættu af kynfylgjum, alvarlegum vanskapnaði, hættulegum sjúkdómi, andlegum eða líkamlegum fávitahætti eða hneigð til glæpa, eða að afkvæmi hennar væri í tilsvarandi hættu af öðrum ástæðum, enda — eins og segir í ákvæðinu — verði þá ekki úr bætt á annan hátt. Hins vegar var fóstureyðing heimil ef kona hafði orðið þunguð við nauðgun. Í hinu síðargreinda tilviki var sett það skilyrði að konan hefði kært og sökunautur verið fundinn sekur um brotið fyrir dómi.

Lögin frá 1940.

    Er hegningarlögunum var breytt með lögum nr. 19 frá 12. febr. 1940 var kaflinn um manndráp mjög einfaldaður, sérstaklega ákvæðin um fósturdráp. Fyrri hugsun var látin halda sér, að fóstrið væri líf sem ekki mætti deyða. Samkvæmt 216. gr. varðar það varðhaldi eða fangelsi allt að tveimur árum ef kvenmaður deyðir fóstur sitt. Þessi lög eru enn í gildi.

Lögin frá 1975.

    Með lögum nr. 25 frá 22. maí 1975 var gerð veruleg breyting á fóstureyðingarlöggjöfinni. Var þá í fyrsta skipti tekið fram í lagatextanum að eyða mætti fóstri á grundvelli félagslegra ástæðna. Undanfari þessarar lagasetningar var frumvarp sem þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra lagði fram á Alþingi árið 1973. Í því frumvarpi var lagt til að fóstureyðing yrði heimiluð að ósk konu væri hún búsett hérlendis eða hún ætti íslenskt ríkisfang væri aðgerðin framkvæmd fyrir lok 12. viku meðgöngu og ef engar læknisfræðilegar ástæður mæltu gegn slíkri aðgerð. Var þar lagt til að frjálsar fóstureyðingar yrðu leiddar í lög hér á landi. Frumvarp þetta olli miklum deilum jafnt innan þings sem utan. Ákveðið var því að draga frumvarpið til baka og skipa nefnd til að undirbúa nýtt frumvarp er tæki tillit til þeirra athugasemda sem fram höfðu komið um frumvarpið. Niðurstaða þeirrar nefndar var að hafna bæri frjálsum fóstureyðingum en þess í stað að heimila fóstureyðingar á félagslegum grunni „þegar ætla má að tilkoma barns verði konunni og hennar nánustu óbærileg vegna óviðráðanlegra félagslegra ástæðna“. Við mat á því hvað telja skyldi óbærilegt lagði nefndin til að hafðar skyldu í huga eftirtaldar ástæður: a) að konan hafi alið mörg börn með stuttu millibili og skammt liðið frá síðasta barnsburði, b) konan búi við bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu, svo og c) að konan geti ekki vegna æsku eða þroskaleysis annast barnið á fullnægjandi hátt. Bætt var við d-lið, aðrar ástæður, „séu þær fyllilega sambærilegar við ofangreindar ástæður“.

Forvarnir og fræðsla.

    Tillögur nefndarinnar voru samþykktar á Alþingi og eru nú lög nr. 25 frá 22. maí 1975.
    Með lögunum 1975 var áréttuð nauðsyn þess að koma á fót öflugu forvarnarstarfi um kynfræðslu og ráðgjöf. Sú skipan hafði verið í lögunum frá 1935 en hafði þróast úr því að vera í höndum heimilislækna, eins og lögin gerðu ráð fyrir, yfir í það að vera sérstakar deildir í sjúkrastofnunum. Með lögunum nr. 25/1975 var gerð sú breyting, fyrir utan það að ráðgjafarþjónusta í sjúkrastofnunum og heilsugæslustofnunum var viðurkennd að lögum, að landlæknisembættið átti að hafa yfirumsjón með starfi þessara ráðgjafarþjónustumiðstöðva. Þá var tekin upp sú stefna með lögunum að kynlífsfræðsla skyldi tekin upp í skólum en veruleg brotalöm hafði verið á þeirri fræðslu. Áttu fræðsluyfirvöld að skipuleggja þessa fræðslu um kynlíf og siðferði þess í samráði við yfirskólalækni.
    Með lögum nr. 25/1975 var að því stefnt að samfara rýmkun fóstureyðingarlöggjafarinnar skyldi gert átak í því að auka kynfræðslu til að minnka líkurnar á fóstureyðingu og að hún væri notuð sem getnaðarvörn.

III. Reynsla af lögum nr. 25/1975 samkvæmt upplýsingum
landlæknisembættisins.

    Frá gildistöku laga nr. 25/1975 hefur fóstureyðingum fjölgað mikið frá því sem var í tíð eldri laga, einkum og sér í lagi hin síðustu ár. Upplýsingar þessar koma fram í heilbrigðisskýrslum, fylgiriti 1985, nr. 2, um fóstureyðingar á tímabilinu 1976-1983, sem gefið er út af landlæknisembættinu. Í þeirri skýrslu eru tekin saman á skipulagðan hátt áhrif lagabreytingarinnar 1975 og reynt að varpa ljósi með töflum og skýringarmyndum á fjölda fóstureyðinga, ástæður og helstu auðkenni þeirra kvenna er fara í slíka aðgerð.
    Hér eru ekki tök á að fara ítarlega út í þessa könnun en hjá því verður ekki komist, vegna þeirra breytinga sem frumvarp þetta boðar, að gera grein fyrir helstu niðurstöðum til að varpa ljósi á hið raunverulega vandamál fóstureyðandans. Til viðbótar þessari könnun er byggt á bráðabirgðaskýrslum fyrir árin 1984 og 1985 og til þess vísað ef breytingar hafa orðið frá könnuninni í verulegum atriðum.

Tíðni fóstureyðinga.

    Samkvæmt meðfylgjandi töflu frá landlæknisembættinu hafa fóstureyðingar aukist verulega frá árinu 1976 er lögin nr. 25/1975 tóku gildi.

Tafla 1.

(Tafla er ekki til tölvutæk.)



    Hámarki náði tíðni fóstureyðinga árið 1984 en það ár voru samkvæmt upplýsingum landlæknisembættisins 745 fóstureyðingar en árið 1985 voru fóstureyðingar 705 og 684 árið 1986, en ekki liggja upplýsingar fyrir um árið 1987. Þó að dregið hafi úr fóstureyðingum árin 1985 og 1986 hefur sú fækkun verið óveruleg miðað við fjölda fæðinga. Nam fjöldi fóstureyðinga á 10 lifandi fædda 18,3% árið 1985 þó að dregið hafi úr fóstureyðingum um 40 frá árinu áður. Er þar um að ræða 0,2% fjölgun frá árinu áður.

Ástæður fóstureyðinga.

    Samkvæmt lögum nr. 25/1975 er heimilt að framkvæma fóstureyðingu á læknisfræðilegum grunni, félagslegum grunni og sem afleiðingu af refsiverðum verknaði. Eigi er getið í könnuninni að beiðni hafi verið reist á hinni síðastgreindu ástæðu. Samkvæmt heilbrigðisskýrslum hefur hlutfall læknisfræðilegra ástæðna lækkað úr því að vera 22,8% árið 1976 í það að vera 7% árið 1985. Að sama skapi hefur hlutfall félagslegra ástæðna aukist úr 63,1% árið 1976 í 87,7% árið 1985 en hvort tveggja eða ótilgreindar ástæður eru 19% árið 1976 en 5,1% árið 1985.
    Þegar hlutur félagslegra ástæðna er skoðaður kemur í ljós að fóstureyðingar á grundvelli d-liðar 1. tölul. 9. gr. fóstureyðingarlaganna, þ.e. vegna „annarra sambærilegra félagslegra ástæðna“, eru langalgengastar. Árið 1981 var sá liður nefndur í 73% tilvika en 79,4% árið 1985. Þar sem þessi liður er veigamesta ástæða fóstureyðingar hér á landi er vert að athuga hann nánar. Samkvæmt könnuninni hafa eftirtaldar ástæður verið gefnar upp:
—    að samband við barnsföður sé ótryggt eða ekkert,
—    að kona sé í námi eða hyggist fara í nám,
—    aðstæður almennt erfiðar, fjárhagur þröngur,
—    viðkomandi treysti sér ekki til að eiga fleiri börn,
—    getnaðarvarnir hafi brugðist,
—    sambúðarvandamál,
—    heilsuleysi,
—    stutt liðið frá síðasta barnsburði.
    Séu þessar ástæður skoðaðar má ætla að upphafsákvæði 1. tölul. 9. gr., þar sem talað er um að tilkoma barns verði konunni „óbærileg vegna óviðráðanlegra félagslegra ástæðna“, hafi verið túlkað frjálslega og í engu samræmi við anda laganna á sínum tíma.

Synjanir um fóstureyðingu.

    Í könnuninni er ekki yfirlit um synjanir um fóstureyðingar yfir landið allt. Hins vegar er vitnað til athugunar sem gerð var á Kvennadeild Landspítalans í Reykjavík þar sem þrjár af hverjum fjórum fóstureyðingum eru framkvæmdar hér á landi. Í heilbrigðisskýrslum segir á bls. 110:
    „Fjöldi þeirra, sem synjað var um fóstureyðingu, var á bilinu 3–18 á ári en samtals 75 árin 1976–1983. Virðist synjunum fara heldur fækkandi því að á fyrra helmingi tímabilsins var að meðaltali 12 konum synjað um fóstureyðingu eða sem svarar 3,3% framkvæmdra aðgerða, en hins vegar 7 konum að meðaltali á ári á síðari hluta þess eða 1,6% aðgerða. Ástæður synjana eru í flestum tilvikum lengd meðgöngu, þ.e. konurnar eru gengnar með meira en 12 vikur og forsendur umsóknar hafa verið af félagslegum toga. Á árinu 1983 voru synjanir 3 hjá Kvennadeild Landspítalans.“
    Hér að framan hefur verið lýst þeirri breytingu sem verið hefur á tíðni fóstureyðinga, synjana um slíka aðgerð og á hvaða ástæðum umsóknir hafa verið reistar. Þá niðurstöðu má draga af þessum þremur þáttum að takmörkun á heimild til fóstureyðinga er lítil í framkvæmd þótt lesa megi úr lögum nr. 25/1975 að gera þurfi verulegar kröfur til þess að fóstureyðing sé heimil. Önnur niðurstaða verður ekki dregin af þeim tölum sem liggja fyrir.

Siðferði og baráttuþrek.

    Fóstureyðingar eru þrátt fyrir þessar tölur færri hér á landi en í flestum öðrum löndum, hvað sem veldur. Nærtækast væri að kenna löggjöfinni þar um en fyrrgreindar tölur afsanna þá staðhæfingu. Leita verður frekar skýringa í siðferði Íslendinga og baráttuþreki þeirra til að takast á við vandamál líðandi stundar.
    Fóstureyðingarlöggjöfin í núverandi mynd er ekkert annað en dulbúnar frjálsar fóstureyðingar og til þess eins gagns að fæla þær konur frá fóstureyðingu sem telja að þær geti ekki fengið slíka aðgerð framkvæmda.

Auðkenni þeirra kvenna er gangast undir fóstureyðingu.

    Í þessari greinargerð með lögum um friðhelgi mannlegs lífs er ekki unnt að líta fram hjá þeim staðreyndum sem liggja fyrir um félagslega stöðu þeirra kvenna er hafa látið eyða fóstri. Líta verður á einkenni þessara kvenna með það fyrir augum annars vegar að athuga hvort hægt er með fræðslu og ráðgjöf að koma í veg fyrir þunganir hjá þeim og hins vegar hvernig þjóðfélagið geti með ráðstöfunum aðstoðað þennan hóp kvenna framar öðrum við barneignir og uppeldi barna. Þá er vert að athuga hvort ástæða er til þess að heimila fóstureyðingu með tilliti til sérstakra hagsmuna.

Aldur.

    Samkvæmt áðurnefndri könnun á vegum landlæknisembættisins hefur aldur haft veruleg áhrif á ákvörðun um fóstureyðingu. Frá árinu 1976 hefur meðalaldur kvennanna lækkað frá því að vera 28,7 ár 1976 í 25,8 ár árið 1981. Aðalauðkennið er þó að eldri konum hefur fækkað en þeim yngri fjölgað. Á aldursbilinu frá tvítugu til þrítugs eru fóstureyðingar flestar en hefur fjölgað á undanförnum árum í aldursbilinu 15–19 ára og þá sérstaklega meðal 18 ára stúlkna. Fóstureyðingar meðal 16 ára stúlkna og þaðan af yngri hefur fjölgað hægt og voru 47 árið 1981 af 525 fóstureyðingum það ár.

Hjúskaparstaða.

    Hjúskaparstaða hefur breyst mikið meðal kvenna sem fara í fóstureyðingu. Árið 1976 voru 45% kvennanna giftar, 39% ógiftar og 14% giftar áður (fráskildar eða ekkjur). Þróunin síðan hefur verið í þá átt að hlutur ógiftra kvenna fer vaxandi en hlutur giftra og þeirra sem áður hafa verið giftar hefur minnkað. Árið 1985 voru 26,8% kvenna, sem fóru í fóstureyðingu, giftar en 64,5% höfðu áður verið giftar. Af þeim ógiftu voru 10,4% í sambúð.

Starf.

    Starf hefur töluvert að segja varðandi ákvörðun um fóstureyðingu. Sérstaklega eru margar kvennanna starfandi í þjónustugreinum eða eru nemendur. Húsmæðrum virðist hins vegar hafa fækkað verulega frá því sem var árið 1976. Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 1985 eru nemar 26,5% þeirra sem fara í fóstureyðingu, en konur í þjónustugreinum 29,8%. Sé miðað við lögheimili þeirra kvenna, sem fara í fóstureyðingu, eru fóstureyðingar algengastar meðal kvenna í Reykjavík en fæstar í sýslum. Samkvæmt upplýsingum fyrir árið 1985 voru 42% þeirra kvenna, sem fóru í fóstureyðingu, barnlausar, 23,3% áttu eitt barn fyrir en 16% tvö börn. 8% kvennanna áttu 4 börn eða fleiri.

Fjöldi hjá hverri.

    Athyglisvert er hvað í vöxt hefur farið á undanförnum árum að konur fari í aðra eða þriðju fóstureyðinguna. Meðaltal áranna 1976–1981 var 10–12% en hefur stigið á undanförnum árum og var 16,7% árið 1985 og á bilinu 18–19% árið 1986 samkvæmt bráðabirgðaupplýsingum frá landlæknisembættinu. Læknisfræðilegar ástæður eru hlutfallslega oftar tilgreindar hjá konum með fyrri fóstureyðingum en hinum samkvæmt könnuninni. Lengd meðgöngu hjá þeim konum, sem fengu fóstureyðingu árin 1976–1981, voru í 92% tilvika (97% af ótilgreindum er sleppt) innan 12 vikna og þar af helmingur innan 9 vikna. Hefur á undanförnum árum lítil breyting orðið þarna á.

Getnaðarvarnir.

    Þær upplýsingar, sem koma fram í könnuninni um notkun getnaðarvarna, eru mjög athyglisverðar. Hjá tveim þriðju þeirra kvenna, sem fengu fóstureyðingu árin 1976–1981, voru getnaðarvarnir ekki viðhafðar er þær urðu þungaðar, en um 30 af hundraði tilgreindu notkun getnaðarvarna af ýmsum toga. Í könnuninni kemur fram að tiltölulega minnst eru getnaðarvarnir notaðar hjá yngstu og elstu konunum en mest hjá konum milli tvítugs og þrítugs.

Ungar stúlkur og einstæðar mæður.

    Tveir hópar kvenna hafa í umræðu um fóstureyðingar oftast verið nefndir, en það eru ungar stúlkur og einstæðar mæður. Í könnuninni kemur fram að hlutur þeirra er ekki eins mikill og látið er í veðri vaka þó að vissulega sé hann mikill. Árið 1976–1981 var framkvæmd samtals 651 fóstureyðing hjá stúlkum undir 20 ára aldri en það samsvarar 22% allra fóstureyðinga umrætt tímabil. Þess ber hins vegar að geta að tíðni fóstureyðinga hjá eldri stúlkum í þessum hópi, 18–19 ára, er meiri en þeirra sem yngri eru, sbr. töflu.

Tafla 44. Fjöldi fóstureyðinga stúlkna 1976–1981.


    15 ára 16–17 18–19 19 ára
    og yngri ára ára og yngri
    1976–1977 .........31 56 70 157
    1978–1979 .........35 103 108 246
    1980–1981 .........32 94 122 248
    —- —- —- —-
    Alls 1976–1981 ....98 253 300 651

    Einstæðar mæður eru vissulega stór hópur. Af 2955 fóstureyðingum, sem framkvæmdar voru árin 1975–1981, áttu einstæðar mæður hlut að máli í 628 tilvika eða 21,1%. Ef litið er á einstök ár tímabilsins má sjá að fjöldi einstæðra mæðra hefur verið á bilinu 86–130 á ári en hlutur þeirra af heildarfjölda fóstureyðinga hefur farið minnkandi, sbr. töflu.

Tafla 51. Fóstureyðingar mæðra 1976–1981.

Fóstureyðingar einstæðra mæðra.


    Heildarfjöldi         Fjöldi á 1000
    fóstureyðinga Fjöldi % af heild Einstæðar mæður 1)
Árið 1976 ...368 86 23,4 17,0
Árið 1977 ...456 111 24,3 21,7
Árið 1978 ...455 87 19,1 17,1
Árið 1979 ...556 101 18,2 19,5
Árið 1980 ...523 130 24,9 24,0
Árið 1981 ...597 113 18,9 20,4

1) Miðað við „mæður með börn“ samkvæmt þjóðskrá 1. des. ár hvert.

    Það vekur hins vegar eftirtekt að hlutfall félagslegra ástæðna hjá einstæðum mæðrum er á milli 93–94% og heimildin til fóstureyðingar mjög oft byggð á d-lið 1. tölul. 9. gr. laga nr. 25/1975. Athyglisvert er einnig að mun algengara er að einstæðar mæður fari í annað skipti fram á fóstureyðingu. Af þeim 312 konum sem fengu fóstureyðingu í annað skipti á tímabilinu 1976-1981 var í 117 tilvikum um að ræða einstæðar mæður.
    Af þessum upplýsingum verður sú mynd dregin að það eru helst ungar, ógiftar og barnlausar eða barnfáar konur sem skipa hóp þeirra kvenna sem gangast undir fóstureyðingu. (Heilbrigðisskýrslur bls. 132.) Við þetta má bæta að konurnar starfa aðallega við þjónustustörf eða eru nemar. Getnaðarvarnir hafa ekki verið notaðar og félagslegar aðstæður eru helsta ástæða fyrir fóstureyðingu.

Nýr valkostur.

    Til skamms tíma hafa ungar stúlkur og einstæðar mæður ekki átt í mörg hús að venda til að ala börn sín. En nú eru breyttir tímar. Þess vegna er þetta frumvarp flutt aftur hér á Alþingi.
    Félagasamtökin Lífsvon hafa löngum beitt sér fyrir að fækka fóstureyðingum á Íslandi. Lífsvon hefur nú haft samband við fjölda fólks sem er reiðubúið til að taka ungar stúlkur og verðandi mæður inn á heimili sín yfir meðgöngutímann. Einnig mun Lífsvon styðja allar ungar eða einstæðar verðandi mæður, sem þess þurfa með, eftir þörfum hverrar og einnar. Þannig hefur nú verið brotið blað í sögu fóstureyðinga á Íslandi og nú er loks boðið upp á raunhæfan kost á móti fóstureyðingunni.

Ráðgjöf og fræðsla.

    Í lögum nr. 25/1975 er mikil áhersla lögð á ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir. Þar er í fyrsta kafla kveðið skýrt á um að veita skuli aðstoð eftir því sem við á og sem hér segir:
1.     Fræðslu og ráðgjöf um notkun getnaðarvarna og útvegun þeirra.
2.     Ráðgjöf fyrir fólk sem íhugar að fara fram á fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð.
3.     Kynlífsfræðslu og ráðgjöf og fræðslu um ábyrgð foreldrahlutverks.
4.     Ráðgjöf og fræðslu varðandi þá aðstoð sem konunni stendur til boða í sambandi við meðgöngu og fæðingu.
    Þá er ákvæði um að ráðgjafarþjónustuna eigi að veita á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum og megi hún vera í starfstengslum við mæðravernd, kvensjúkdómadeildir, geðvernd, fjölskylduráðgjöf og félagsráðgjafarþjónustu. Þá er í lögunum kveðið á um að fræðsluyfirvöld skuli veita fræðslu um kynlíf og siðferði kynlífs á skyldunámsstigi í skólum landsins.

Framkvæmd.

    Landlækni er falið samkvæmt lögunum að hafa yfirumsjón með framkvæmd og uppbyggingu ráðgjafarþjónustunnar.
    Í greinargerð þessari verður ekki kveðinn upp dómur yfir núverandi framkvæmd né fullyrt hvort farið hafi verið eftir lögunum. Víða mun þó brotalöm vera á og má um það kenna ónógum fjárveitingum frá ríkisvaldinu. Sérstaklega á þetta við um forvarnarstarf og kynningu á getnaðarvörnum og öðrum fyrirbyggjandi ráðstöfunum.

IV. Forsendur þessa frumvarps.

    Reynslan hefur leitt það í ljós að fóstureyðingum hefur fjölgað verulega á undanförnum árum eins og tölur landlæknisembættisins sýna. Sú fjölgun verður ekki skýrð á þann hátt að félagslegar aðstæður hafi versnað til muna á síðustu árum því að hagtölur sýna að lífskjör hafa batnað verulega frá því að lögin frá 1975 voru sett.

Að ráðstafa líkama sínum.

    Skýringarinnar verður heldur ekki leitað í minni þekkingu fólks á kynlífi. Þó að þessir þættir hafi sín áhrif eru þeir ekki ástæðan fyrir fóstureyðingunum. Skýringarinnar verður að leita á öðrum stöðum og þá helst í breyttu viðhorfi fólks gagnvart fóstureyðingum og skorti á upplýsingum um fóstrið, þroskaskeið þess og að fóstur er mannlegt líf. Viðhorf fólks til fóstureyðinga endurspeglast í frelsisbaráttu kvenna og því að fóstrið sé eign konunnar og að henni sé frjálst að ráðstafa líkama sínum að vild. Hefur sá þáttur, ásamt auknu frjálsræði í kynferðismálum, haft meiri áhrif á skipan fóstureyðingarlöggjafarinnar en flest annað.

Að ráðstafa fæti sínum.

    Flutningsmaður þessa frumvarps hefur leitað til nokkurra valinkunnra lækna og beðið þá að taka af honum vinstri fótinn neðan við hné. Vegna þess að flutningsmaður telji það henta betur áformum sínum í framtíðinni að hafa engan vinstri fót neðan við hnéð. Að öðru leyti er fóturinn sæmilega heilbrigður og nokkuð vel á sig kominn.
    Læknarnir hafa án undantekninga neitað þessari ósk flutningsmanns. Niðurstaðan er því bæði hrein og klár. Flutningsmaður hefur ekki vald til að ráðstafa líkama sínum að vild.

Hvað þýðir orðið fóstur?

    Það er góð spurning. Samkvæmt orðabók Halldórs Halldórssonar er orðið fóstur upphaflega skylt orðinu fæða. Þannig er elsta þekkt hugsun á bak við orðið fóstur að fæða einhvern eða ala önn fyrir honum. Þessi hugsun lifir áfram í orðum á borð við fósturbörn en það merkir að börn fái uppeldi og umönnun hjá öðrum en foreldrum.
    Á sama hátt er almennur skilningur fólks í dag að fædd börn tilheyri foreldrum sínum sem eign þeirra fyrstu árin. Þannig er í málvitund fólksins greinilegur munur á orðunum eign og fóstri. Börn eru talin eign foreldra uns þau komast á legg og vinstri fótur neðan við hné er eign flutningsmanns þessa frumvarps. Börn, sem ekki eru alin upp hjá foreldrum og þar með kölluð eign þeirra, eru aftur á móti aðgreind með því að skeyta orðinu fóstur framan við. Þannig er orðið fóstur notað til að greina hugsunina eign frá öðrum.

Að ráðstafa fóstri sínu.

    Fóstrið er því ekki eign konunnar eins og fóturinn. Enda er fóstrið ekki hluti af líkama hennar því það er hvergi fest við hana sjálfa heldur fest við fylgjuna. Fóstrið er gestkomandi í móðurkviði og móðir náttúra hefur falið konunni það dásamlega hlutverk að skila því út í lífið. Fóstrið er ekki eign konunnar.
    Það er viðurkennt að á mörgum heimilum eru efnisleg gæði af skornum skammti. Gagnvart þeim fjölskyldum ber þjóðfélagið ríka ábyrgð því að það er smánarblettur á þjóðfélagi með einhverjar hæstu þjóðartekjur í heimi að þurfa að viðurkenna að fólk búi við örbirgð. Félagsleg vandamál ber þjóðfélaginu að leysa með félagslegum ráðstöfunum.

Lífið er eign barnsins.

    Tilgangur þessa frumvarps er ekki að leysa úr félagslegum vandamálum sem eru í þjóðfélaginu heldur að sníða löggjöfina þannig að allt mannlegt líf sé friðheilagt, og að verja börn — á hvaða stigi lífsins sem þau eru — fyrir utanaðkomandi eyðingaröflum og veita þeim þau mannréttindi sem eru ofar öllum öðrum, réttinum til þess að fá að lifa og taka þátt í lífinu án tillits til efnahags og félagslegrar stöðu foreldra. Frumvarpið byggist á því að þjóðfélagið viðurkenni að líf hafi kviknað við getnað, enda segir orðabók Menningarsjóðs svo um orðið fósturskeið: „Fyrsta skeið í ævi lífveru.“ Það líf
telur flutningsmaður að sé aðeins eign barnsins eða fóstursins. Litið er þannig á að barnið í móðurlífi sé frá getnaði lifandi einstaklingur, ólíkur öllum öðrum sem fyrr og síðar munu dveljast hér og líta dagsins ljós.
    Litið er því þannig á að barnið í móðurlífi sé ekki hluti af öðrum líkama. Það er sjálfstæður einstaklingur en háður líkama móðurinnar meðan á fósturástandinu stendur. Þótt barnið sé tímabundið háð líkama móðurinnar á sú staðreynd ekki að þýða að móðurinni sé frjálst að ráðstafa þessu lífi. Þvert á móti er henni falið að varðveita það fyrir utanaðkomandi öflum á þroskastigi þess.

Alþingi veðji á lífið.

    Kjarninn í frumvarpinu er sá að konunni er frjálst að haga sér eins og samviska hennar býður meðan sú háttsemi skaðar ekki mannréttindi annarra.
    Samfélagið og sérstaklega Alþingi á að sjá til þess að allt mannnlegt líf sé viðurkennt og að sú ákvörðun að eyða því sé ekki mat konunnar einnar. Frumvarp þetta er einmitt af þessari rót runnið, þ.e. að konan þurfi ekki að standa andspænis þessu vali og að barninu megi veitast öruggt skjól í móðurlífi til að þroskast og dafna.

Fóstureyðing er ekki getnaðarvörn.

    Það blandast engum hugur um það að flestar ótímabærar þunganir megi rekja til óvarkárni eða „slysa“, eins og margur vill kalla það þegar tekin er áhætta af samförum án þess að getnaðarvarnir séu notaðar. Slíkum „slysum“ má fækka með fræðslu og upplýsingum, en það verður þó ekki til þess að koma í veg fyrir ótímabærar þunganir að óbreyttum lögum. Reynslan hefur sýnt að fræðslan ein dugir skammt.
    Það er gamall sannleikur að eftir því sem afleiðingarnar eru smávægilegri er meiri áhætta tekin. Því miður má rekja margar ótímabærar þunganir til þess að tekin er áhætta af samförum í þeirri von að ekki verði barn úr, en fari samt svo er sú leið opin að fara í fóstureyðingu. Slíkur hugsunarháttur er óábyrgur og ætti ekki að líðast. Fólk verður að horfast í augu við þá staðreynd að það getur ekki leikið sér að fjöreggi annarra með þessum hætti. Það verður að gera sér grein fyrir afleiðingum gerða sinna og alvöru fóstureyðingar, þ.e. að með henni sest það í dómarasæti og kveður upp þann úrskurð að þetta kviknaða líf skuli deytt. Fræðsla kemur að verulegu gagni þegar fóstureyðingar eru takmarkaðar og það er einmitt það áhersluatriði sem frumvarpið mælir fyrir um með því að skipuleggja virka kynfræðslu.

Undantekningar.

    Auðvitað geta komið upp tilvik þar sem þjóðfélagið getur réttlætt að brugðið sé frá þeim meginmarkmiðum sem rakin hafa verið og frumvarpið byggist á. Hins vegar er það spurning hve langt eigi að ganga í þeim efnum og hvaða sjónarmið eigi að viðurkenna þegar skorið er úr um slíkt. Í frumvarpinu er lagt til að fóstureyðingar verði heimilaðar í fjórum tilvikum:

Líf og heilsa móður.

    Í fyrsta lagi ef líf og heilsa móður er í hættu með áframhaldandi meðgöngu eða fæðingu. Í réttarvitund okkar, ef velja á milli barnsins og móðurinnar, er barn á fósturstigi álitið réttlægra. Sama gildir í þeim tilvikum þar sem heilsa móður kann að vera hætta búin af meðgöngu og fæðingu.

Vanskapnaður barns.

    Í öðru lagi er veitt heimild til fóstureyðingar ef sterkar líkur eru á að barn fæðist vanskapað. Þessi heimild er umdeilanleg út frá sjónarmiðum um friðhelgi mannlegs lífs, þ.e. að setjast í dómarasæti og úrskurða eitt líf verðminna en annað. Þessi heimild er samt látin halda sér, en meiri kröfur eru gerðar en áður til sönnunar fyrir því sem heimildin er byggð á.

Aldur móður.

    Í þriðja lagi er heimiluð fóstureyðing ef móðir er ung að árum. Þessa heimild má gagnrýna út frá sömu forsendu og aðrar heimildir laganna til fóstureyðinga, en það þykir rétt að hafa þessa heimild fyrir hendi að því tilskildu að foreldrar standi með stúlkunni að umsókn um fóstureyðingu og að fóstureyðingin verði stúlkunni ekki til skaða.

Refsiverður verknaður.

    Í fjórða lagi er fóstureyðing heimil sé hún afleiðing af refsiverðum verknaði. Það þykir rétt út frá hagsmunum konunnar og þjóðfélagsins að viðhalda þessari heimild.

Athugasemdir við einstaka kafla frumvarpsins.

Um I. kafla.

    Til að undirstrika tilganginn með lagasetningunni er valinn sá kostur að taka saman í I. kafla laganna þau grundvallaratriði sem ná á með lagasetningunni. Sett er á oddinn friðhelgi mannlegs lífs og að það líf, sem einu sinni hefur kviknað, megi ekki deyða nema fyrir liggi það veigamikil rök að þjóðfélagið sjái sig knúið til vegna annarra hagsmuna að binda enda á þetta líf. Rík áhersla er á það lögð að koma í veg fyrir ótímabæra þungun og að þjóðfélagið eigi ekki að viðurkenna fóstureyðingu sem getnaðarvörn.
    Sú skipan er tekin upp í 2. gr. frumvarpsins að skilgreina hugtökin fóstureyðing og ófrjósemisaðgerð til að leggja áherslu á í upphafi laganna hvað felst í þeim hugtökum sem koma fyrir í lögunum. Sú breyting er gerð á hugtaksskilgreiningu fóstureyðingar að gengið er út frá því að líf hafi kviknað við getnað en ekki er miðað við ákveðið þroskastig eins og nú er gert í lögum. Er þessi skýring hugtaksins í samræmi við markmið laganna og hvernig hugtakið fóstureyðing var skilgreint samkvæmt lögum nr. 38/1935. Hugtakið ófrjósemisaðgerð er skilgreint á sama hátt og fram kemur í lögum nr. 25/1975 að því undanskildu að í stað orðsins „eggjavegur“ er sett eggjaleiðari. Mun það vera í betra samræmi við orðanotkun nú.

Um II. kafla.

    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að kynfræðsla verði til muna aukin frá því sem verið hefur undanfarin ár, aðallega í skólakerfinu. Þá verði tekin upp sú skipan við landlæknisembættið að sérstök deild hafi yfirumsjón með kynfræðslumálum í landinu. Verði aðalverkefni þeirrar deildar útgáfa fræðslugagna og félagsleg aðstoð við foreldra. Eigi er gert ráð fyrir að sú skipan sem verið hefur á sjúkrahúsum og í heilsugæslustöðvum minnki, heldur taki þær stofnanir að sér aukið hlutverk í þessum málum og tengist meira skólakerfinu en hingað til.
    Ein aðalbreytingin, sem komið er á með frumvarpi þessu, er að kynfræðsla verði skyldunámsgrein í grunnskólum landsins þar sem tekin verði upp kennsla í fósturfræðum og veittar ráðleggingar um kynlíf og þroska fósturs.

Um III. kafla.

    Gengið er út frá þeirri skipan að fóstureyðingar séu óæskilegar og að til slíkra óyndisúrræða skuli ekki grípa ef fyrir hendi eru aðrir kostir til varnar fóstrinu. Í upphafsgrein þessa kafla laganna er sá skilningur áréttaður að fóstur er líf sem ekki má binda enda á. Ef vafi leikur á því hvort fóstureyðing má fara fram þá skuli frekar hafna henni en leyfa. Í 8. gr. frumvarpsins er tæmandi upptalning á þeim aðstæðum sem geta leitt til eyðingar fósturs. Þar er ekki gerður greinarmunur, eins og í núgildandi lögum, á því hvort ástæðan er félagsleg eða læknisfræðileg heldur byggt á því að þjóðfélagið viðurkenni aðeins þessar ástæður sem nógu brýnar til að heimila að binda megi enda á þetta kviknaða líf.
    Í 9. gr. eru sett tímamörk um það hvenær fóstureyðing skuli fara fram. Í stað 12 vikna samkvæmt núgildandi lögum er nú mælt fyrir að fóstureyðing skuli hafa farið fram áður en 10 vikur eru liðnar af meðgöngu.
    Í 10. gr. er gerð sú krafa að álit annaðhvort læknis og félagsráðgjafa eða tveggja lækna liggi fyrir um nauðsyn fóstureyðingarinnar. Hið fyrrgreinda á við ef telja má ástæður fyrir beiðninni um fóstureyðingu byggða á ungum aldri móðurinnar eða sem afleiðingu af refsiverðri háttsemi.
    Í 11. gr. er á það lögð rík áhersla að konan sé frædd um aðgerðina, hættuna á ófrjósemi og einnig bent á þá félagslegu þjónustu sem henni stendur til boða ef hún ákveður að eignast barnið.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

a. (1. gr.)

    Í 1. gr. kemur fram stefnuyfirlýsing og það skilgreint í lagatextanum hvert sé markmið laganna. Þetta er talið nauðsynlegt svo að ekki fari á milli mála hvaða tilgangi lögin eigi svo breytt að þjóna og hverja þau eigi fyrst og fremst að vernda. Hið mannlega líf er samkvæmt lögum þessum frá getnaði til grafar. Þetta er og í samræmi við eiðstaf lækna þar sem segir m.a.: „Ég heiti því að virða mannslíf öllu framar, allt frá getnaði þess.“ Lögð er áhersla á það í 1. gr. að vandamál, sem kunni að skapast vegna þungunar, eigi að leysa með öðrum hætti en fóstureyðingu. Það líf eins og annað mannlegt líf á að vera friðheilagt. Litið er sérstaklega til fyrirbyggjandi starfs með ráðgjöf og fræðslu og þess að aukin verði félagsleg þjónusta við þá foreldra sem átt hafa barn.

b. (2. gr.)

    Það þykir hentugra með tilliti til þeirrar skipunar laganna, að mæla fyrir um markmið þeirra í 1. gr., að skýra út í næstu grein hvað felist í þeim grunnhugtökum sem rætt er um í lögum þessum. Þá þykir það horfa til skýrleika þar sem skilgreining hugtakanna er breytt frá því sem var í fyrri löggjöf.
    Fóstureyðing er samkvæmt lögum nr. 25/1975 „læknisaðgerð, sem kona gengst undir í því skyni að binda endi á þungun, áður en fóstrið hefur náð lífvænlegum þroska“ en samkvæmt frumvarpi þessu „læknisaðgerð sem kona gengst undir til að binda enda á kviknað líf í móðurkviði“. Í þessari breytingu felst viðurkenning á því að líf hafi kviknað við getnað og ekki tekið með í skýringu hugtaksins þroskastig fóstursins. Er þessi skilgreining hugtaksins í samræmi við aðrar greinar laga þessara og heiti þeirra, „Um friðhelgi mannlegs lífs“. Skilgreining hugtaksins ófrjósemisaðgerð er óbreytt frá lögum nr. 25/1975 fyrir utan það að í stað orðsins „eggjavegur“ kemur eggjaleiðari.

c. (3. gr.)

    Þar sem dregið er verulega úr heimildum til fóstureyðinga ber brýna nauðsyn til að upplýsa fólk um kynlíf og veita því ráðgjöf um notkun getnaðarvarna og annarra fyrirbyggjandi ráðstafana til að koma í veg fyrir þungun. Þá er ekki síður mikilvægt að upplýsa fólk um lög þessi og á hvaða meginsjónarmiðum þau eru byggð.
    Lagt er því til í 3. gr. að starfrækt verði á vegum landlæknisembættisins sérstök deild er hafi það eitt verkefni að sjá um kynfræðslumál í landinu. Hefði þessi deild yfirumsjón með fræðslu og ráðgjöf á þessu sviði og starfaði í nánum tengslum við ráðgjafarþjónustu og fræðsluyfirvöld úti um allt land. Aðalstarfsemi deildarinnar er þó ætlað að vera að annast útgáfu á fræðslugögnum til notkunar í skólum og fyrir almenning og einnig að vera ráðgefandi fyrir mæður eða foreldra eftir barnsburð. Gert er ráð fyrir að þessi deild starfi í nánum tengslum við sveitarfélög og Tryggingastofnun og aðstoði fólk sjálft eða með stuðningi þessara aðila til að ala önn fyrir því og barninu. Meðal annars starfsfólks skal læknir, hjúkrunarfræðingur og félagsráðgjafi starfa við þessa deild. Að jafnaði skal læknir eða ljósmóðir vera forstöðumaður deildarinnar.
    Um nánara skipulag og starfsemi skal setja ákvæði í reglugerð. Taki sú reglugerð einnig til starfsemi ráðgjafarþjónustustöðva og hvernig starfi skuli skipt þar á milli.
    Um sams konar tilhögun er mælt fyrir í núgildandi lögum en því miður hefur starfsemi þeirrar deildar aldrei náð að vera eins virk og ætlast var til með lögunum.

d. (4. gr.)

    Samkvæmt 2.–6. gr. laga nr. 25/1975 er mælt fyrir um að á hverju sjúkrahúsi og heilsugæslustöð skuli starfrækt ráðgjafarþjónusta er veiti fræðslu og ráðgjöf varðandi getnaðarvarnir, fóstureyðingar, ófrjósemisaðgerðir og fleira er tengist kynlífi og barneignum. Ekki er ætlunin að breyta þeirri skipan mála enda hefur hún reynst vel í flesta staði. Í 1. mgr. 4. gr. er mælt fyrir um starfrækslu slíkra ráðgjafarstöðva og hvaða þjónustu þær skuli hafa með höndum og er samsvarandi 2. gr. laga nr. 25/1975. Bætt er þó inn í 4. lið að konunni skuli veitt ráðgjöf og fræðsla varðandi þá aðstoð sem henni stendur til boða við meðgöngu og fæðingu.
    2. mgr. greinarinnar er sama efnis og 3. gr. núgildandi laga.
    3. mgr. greinarinnar er að stofni til sama efnis og 4. gr. núgildandi laga en í stað hjúkrunarfólks og kennara er mælt fyrir um að hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir starfi við ráðgjafarstöðvarnar. Ástæða þessa er að þær stéttir hafa í meira mæli en flestar aðrar hjúkrunarstéttir haft með höndum kynfræðslumál og ráðgjöf á sviði kynlífs.

e. (5. gr.)

    Grein þessi er samhljóða 6. gr. laga nr. 25/1975.

f. (6. gr.)

    Sú breyting er gerð frá núgildandi skipan kynfræðslumála að gert er ráð fyrir því að kynfræðsludeild, sem mælt er fyrir um í 3. gr. frumvarps þessa, sjái um skipulagningu náms og þau kennslugögn sem lögð verða til grundvallar í kennslu, í stað skólayfirlæknis eins og nú er háttað. Er þetta í samræmi við það hlutverk sem fræðsludeildinni er ætlað að þjóna með lögum þessum, að koma á samræmdri fræðslu og vera til ráðuneytis um kynfræðslumál. Þá er gert ráð fyrir því að kynfræðsla verði skyldunámsgrein í skólum á grunnstigi og kennslunni verði háttað þannig að hún nái til fleiri þátta en kynlífsins eingöngu.
    Gert er ráð fyrir því að starfsfólk ráðgjafarstöðvanna og fræðslunefndar heimsæki skóla landsins og geri grein fyrir starfsemi sinni.

g. (7. gr.)

    Með þessari grein er skilgreining hugtaksins fóstureyðing áréttuð, að kviknað líf í móðurkviði er friðheilagt og að þau tilgreindu ákvæði laganna, sem heimila eyðingu þess, séu undantekningar og skuli túlkuð þröngt.

h. (8. gr.)

    Samkvæmt þessari grein eru tæmandi upp taldar þær ástæður sem heimilað geta fóstureyðingu.
    Samkvæmt 1. tölul. má fóstureyðing fara fram ef lífi eða heilsu móður er hætta búin af áframhaldandi meðgöngu eða fæðingu. Er ekki ætlunin að breyta þessu heimildarákvæði frá því sem nú er og hefur verið frá árinu 1935.
    Sú breyting er gerð á 2. tölul. frá því sem áður var í löggjöfinni að nú eru gerðar strangari kröfur en áður til þess að leitt sé í ljós að barn fæðist vanskapað eða haldið alvarlegum sjúkdómi. Það þykir ekki rétt að heimila fóstureyðingu á þessari forsendu frekar en öðrum. Hins vegar eru oft líkindi fyrir því að börn, sem annaðhvort hafa skaddast verulega eða eru haldin alvarlegum sjúkdómum, komi ekki til með að lifa. Þykir því rétt með tilliti til móður og barns að þessi heimild verði í lögum eins og áður.
    Það hefur þótt réttlætismál að heimila fóstureyðingu ef hin þungaða er ung að árum og er því þeirri leið haldið opinni í lögum. Þau skilyrði eru þó sett að foreldrar eða lögráðamaður samþykki aðgerðina og að það liggi fyrir að heilsu stúlkunnar verði ekki hætta búin af aðgerðinni.
    4. tölul. þarfnast ekki skýringa.

i. (9. gr.)

    Sú breyting er gerð að í frumvarpinu er miðað við að fóstureyðing skuli helst fara fram fyrir 10. viku meðgöngu í stað 12 vikna eins og mælt er fyrir um í 10. gr. núgildandi laga.
    Ástæða þess að tímatakmörkin eru þrengd frá því sem nú gildir má rekja til þess að 10 vikna gamalt fóstur hefur fengið fullkomið mannsútlit. Hjartað er farið að slá, æða- og öndunarkerfi þróað, skynfæri og útlimir mótaðir og beinkjarnar, tær og fingur hafa myndast.
    Að öðru leyti er ákvæðið óbreytt frá því sem gilt hefur.

j. (10. gr.)

    Ákvæði þetta er efnislega samhljóða 11. gr. núgildandi laga fyrir utan að ekki er gerður sami munur á félagslegum og læknisfræðilegum ástæðum eins og er samkvæmt núgildandi lögum. Flokka má þó tvo fyrsttöldu töluliði 8. gr. undir læknisfræðilegar ástæður en hina síðartöldu undir félagslegar ástæður.

k. (11. gr.)

    Ákvæðið skýrir sig sjálft.

Um 2.–3.gr.

    Í þeim breytingum sem þar er mælt fyrir um er ekki um efnisbreytingar að ræða heldur breytingar til samræmis við fyrri greinar frumvarpsins.

Um 4. gr.

    Heiti laganna er breytt og áhersla lögð á friðhelgi mannlegs lífs og ráðgjöf til að koma í veg fyrir ótímabærar þunganir. Má í þessu sambandi benda á ályktun kirkjuþings 1987, en þar segir m.a.:
    „Rétturinn til lífs er frumatriði allra mannréttinda. Þá kröfu verður að gera til ríkisvaldsins að það verndi mannlegt líf og efli meðal almennings vitundina um mannhelgi.“
    Vísað er til greinargerðar að öðru leyti til skýringar á þessari grundvallarbreytingu.



Fylgiskjal I.





Halldór Finnsson,
s r. Þorbergur Kristjánsson,
Margrét K. Jónsdóttir:


Tillaga varðandi lög um fóstureyðingar og almannatryggingar.

(18. kirkjuþing 1987.)


    Kirkjuþing beinir því til Alþingis Íslendinga að taka til endurskoðunar lög nr. 25/1975, um fóstureyðingar, ófrjósemisaðgerðir o.fl., í þeim tilgangi að þrengja þessi lög — sérstaklega varðandi fóstureyðingar af félagslegum orsökum.
    Enn fremur vill kirkjuþing beina því til Alþingis að allt verði gert sem hægt er, t.d. í gegnum almannatryggingar, til þess að létta undir með konum sem svo stendur á fyrir og þær finni í raun að þjóðfélagið býður nýtt líf velkomið í heiminn.
    Kirkjan bjóði upp á ráðgjafarþjónustu, e.t.v. í samvinnu við Lífsvon, þar sem fyrir liggi allar upplýsingar um hvert það ráð sem má til hjálpar vera fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga.

Greinargerð.
    Nú eru 12 ár síðan samþykkt voru lög nr. 25/1975, um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf, barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Lög þessi þýddu stórkostlega rýmkun á fóstureyðingum af félagslegum ástæðum.
    Fóstureyðingum hefur líka fjölgað úr 224 árið 1974 í 687 árið 1983 samkvæmt Heilbrigðisskýrslu 1985, fylgirit 1.
    Þegar þessi skýrsla er skoðuð nánar kemur í ljós að árið 1981 eru 83% fóstureyðinga taldar af félagslegum ástæðum og af þeim eru 55% „nánast ótilgreindar félagslegar ástæður“ eins og stendur í skýrslunni.
    Annað í skýrslu þessari er mjög athyglisvert, þ.e. skrá yfir störf þau er þær konur sem fara í fóstureyðingu stunda og er skipt í þessa flokka: stjórnun, þjónusta, framleiðsla, nemar, húsmæður, annað.
    Þarna kemur í ljós að nemum, sem fá fóstureyðingar, hefur fjölgað meira en öðrum stéttum. Þetta styður það að þjóðfélagið geti hjálpað móður og barni meira en gert er í dag.
    Nú þegar Alþingi kemur saman í fyrsta sinn eftir kosningar er von okkar að nýir menn, sem þar koma til starfa, sýni þessu máli áhuga og alvöru, ásamt þeim sem fyrir eru á Alþingi og vitað er að styðja endurskoðun á þessum lögum nr. 25/1975.

    Málinu var vísað til löggjafarnefndar (frsm. Halldóra Jónsdóttir).
    Nefndin leggur til að tillagan og greinargerð hljóði svo:
    Rétturinn til lífs er frumatriði allra mannréttinda. Þá kröfu verður að gera til ríkisvaldsins að það verndi mannlegt líf og efli meðal almennings vitundina um mannhelgi.
    Löggjöf, sem í raun gerir hið ófædda líf réttlaust, brýtur gegn því grundvallarsjónarmiði kristindómsins að sérhver einstaklingur eigi rétt til lífs, allt frá upphafi og þangað til dauðinn ber að dyrum með eðlilegum eða óviðráðanlegum hætti.
    Kirkjuþing skírskotar til frumvarpa um breytingu á lögum nr. 25 frá 22. maí 1975 og lögum nr. 67/1971, með áorðnum breytingum, sem flutt hafa verið, og frumvarps sem boðað er.
    Vill kirkjuþing skora á Alþingi að breyta umræddum lögum í þá veru að friðhelgi mannlegs lífs sé viðurkennd.

Greinargerð.
    Að breyttri tillögu leggur nefndin til að greinargerðin orðist svo:
    Með ályktunartillögu þessari beinir kirkjuþing því til Alþingis að það taki til endurskoðunar lög nr. 25/1975, um fóstureyðingar, ófrjósemisaðgerðir o.fl., í þeim tilgangi að þrengja þessi lög varðandi fóstureyðingar.
    Enn fremur vill kirkjuþing beina því til Alþingis að allt verði gert sem hægt er, t.d. með aukinni aðstoð almannatrygginga til þess að létta undir með verðandi mæðrum í vanda svo að þær finni í raun að þjóðfélagið bjóði nýtt líf velkomið í heiminn.
    Þörf er á ráðgjafarþjónustu þar sem fyrir liggi allar upplýsingar um þau úrræði sem til hjálpar mega verða þeim einstaklingum sem hér um ræðir, enda eigi kirkjan hlut að henni.
    Nú eru 12 ár liðin síðan samþykkt voru lög nr. 25/1975. Þau fólu í sér mikla rýmkun heimilda til fóstureyðinga af félagslegum ástæðum. Fóstureyðingum hefur líka fjölgað úr 224 árið 1974 í 683 árið 1986 samkvæmt upplýsingum landlæknisembættisins.
    Þegar skýrsla þessi er skoðuð nánar kemur í ljós að árið 1981 eru 83% fóstureyðinga af félagslegum ástæðum og af þeim eru 55% nánast ótilgreindar félagslegar ástæður“ eins og segir í skýrslunni.
    Annað í skýrslu þessari er mjög athyglisvert, þ.e. skrá yfir störf þau er þær konur stunda sem fara í fóstureyðingu. Þarna kemur m.a. í ljós að nemunum, sem fengið hafa fóstureyðingu, hefur fjölgað meira en öðrum stéttum. Þetta styður það að þjóðfélagið getur hjálpað móður og barni betur en nú er gert.
    Það fer auðvitað ekki á milli mála að kona, sem verður þunguð án þess að hafa ætlað sér það, getur staðið í erfiðum sporum. Þar getur margt komið til, t.d. afstaða fjölskyldunnar, röskun áforma eða erfiður fjárhagur.
    En miklu skiptir hvernig vandanum er mætt, hvort menn yppta aðeins öxlum og bjóða upp á fóstureyðingu eða reyna að finna lausn sem e.t.v. krefst einhvers bæði af einstaklingum og heild. Það má ekki gleymast að val konunnar á oftast að verulegu leyti rætur í afstöðu umhverfisins.
    Almennt líta menn svo á að íslensk lög séu nokkur mælikvarði á rétt og rangt. Og konunni, sem hér um ræðir, mæta lög sem gefa henni rétt til að hindra fæðingu barnsins sem hún ber undir belti. Óbeint er henni sagt að barnið hennar hafi ekkert gildi, eigi engan rétt fyrr en eftir 12. viku, nema hún kjósi sjálf að gefa því gildi og rétt. Ekki er óeðlilegt að þetta komi til með að móta afstöðu hennar.
    Hér til viðbótar koma svo ótal röksemdir sem vandamenn gjarnan benda á og þegar leitað er til opinberra ráðgjafa í þessu efni mun ráðgjöfin ekki ætíð letjandi.
    Allt þetta og ýmislegt fleira gerir það skiljanlegt að gripið sé til fóstureyðinga, en það dregur ekki úr alvöru málsins.
    Kirkjuþing telur því brýna nauðsyn bera til að lög kveði á um friðhelgi mannlegs lífs, tryggi rétt þess jafnt fyrir sem eftir fæðingu. Legvatnsrannsóknir og kannanir á ástandi fósturs má ekki framkvæma í öðru augnamiði en því að verða að liði, lækna sé þess þörf og það mögulegt. Hitt má aldrei vaka fyrir að svipta barnið lífi, virðist eitthvað að.
    Nú þegar Alþingi kemur saman í fyrsta sinn eftir kosningar er þess vænst að nýir menn, sem þar koma til starfa, sýni þessu máli áhuga og alvöru ásamt þeim sem fyrir eru á Alþingi og vitað er að styðja endurskoðun á lögum þeim sem ályktunartillagan víkur að.

    Samþykkt samhljóða.



Fylgiskjal II.





(Texti er ekki til tölvutækur.)