Ferill 550. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 550 . mál.


Sþ.

947. Tillaga til þingsályktunar



um sölu eigna á nauðungaruppboðum.

Flm.: Ásgeir Hannes Eiríksson.



    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp um að fasteignir manna séu ekki seldar langt undir markaðsverði á nauðungaruppboðum heldur verði þess freistað að selja þær á frjálsum fasteignamarkaði. Verkinu verði lokið fyrir þingbyrjun haustið 1990.

Greinargerð.


    Í því slæma efnahagsástandi, sem ríkt hefur að undanförnu, hefur nauðungarsala aukist og meiri harka færst í viðskipti. Þess eru dæmi að fólk hefur misst fasteignir sínar á nauðungaruppboðum fyrir mun lægra verð en fengist hefði með frjálsri sölu á almennum markaði. Fyrir bragðið fá kröfuhafar oft minna í sinn hlut og þolendur sitja eftir með skuldir sínar ógreiddar en eignalausir. Þriðji aðili utan úr bæ fleytir rjómann af þessum viðskiptum og hagnast á kostnað hinna tveggja.
    Því er hér lagt til að fógetar og aðrir uppboðshaldarar geti leitað eftir frjálsri sölu á fasteignum ef þau boð sem koma á nauðungaruppboðum eru langt undir sannanlegu og eðlilegu markaðsverði eignar á hverjum tíma.