Ferðaþjónusta
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Frsm. samgn. (Hjörleifur Guttormsson) :
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. samgn. um frv. til laga um ferðaþjónustu.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk umsagnir frá ekki færri en 35 aðilum sem taldir eru upp í nál. og ég vísa til þess hverjir það voru. Þá fékk nefndin á sinn fund um málið Karl Sigurhjartarson, framkvæmdastjóra Sambands ísl. ferðaskrifstofa, Magnús Oddsson ferðamálastjóra, Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra Sambands veitinga- og gistihúsa, Wilhelm Wessman, stjórnarmann í Sambandi veitinga- og gistihúsa, Kristínu Halldórsdóttur, formann stjórnar Ferðamálaráðs Íslands, Jóhönnu Leópoldsdóttur, stjórnarformann Ferðamálasjóðs, og Snorra Tómasson, starfsmann Ferðamálasjóðs.
    Nefndin leggur til ýmsar breytingar á frv. en í flestum tilvikum er ekki um veigamiklar efnisbreytingar að ræða heldur er frekar verið að bregðast við ábendingum umsagnaraðila og sníða af frv. ýmsa agnúa. Helstu breytingar eru eftirtaldar:
    1. Við 3. gr. Talið er rétt að Ferðamálaráð geri tillögu til samgönguráðherra um efnisákvæði reglugerðar um ferðaþing. Núverandi Ferðamálaráð mundi gera tillögu um fyrsta ferðaþing.
    2. Við 4. gr. Meginbreytingin er sú að þeir fjórir fulltrúar, sem valdir eru í Ferðamálaráð með óhlutbundinni kosningu á ferðaþingi, séu allir valdir á sama tíma en að ekki séu kosnir tveir eitt árið og tveir annað árið. Þannig verða því allir átta fulltrúarnir í ráðinu valdir í einu.
    3. Við 6. gr. Talið er eðlilegast að ráðherra skipi framkvæmdastjóra Ferðamálaráðs (ferðamálastjóra) samkvæmt tillögu ráðsins.
    4. Við 12. gr. Þar sem þörfin fyrir úrbætur vegna vaxandi ferðamannastraums verður æ brýnni á ferðamannastöðum víða um land leggur nefndin til að ekki minna en þriðjungi þeirra tekna sem Ferðamálaráð fær af hinu svokallaða ,,fríhafnargjaldi`` verði varið til umhverfismála tengdum ferðaþjónustu.
    5. Við 36. gr. Til viðbótar því að lögreglustjóri geti innkallað veitingaleyfi (leyfishafi missir þá leyfi tímabundið) að uppfylltum ákveðnum skilyrðum verður honum heimilað að afturkalla leyfi (leyfishafi missir rekstrarleyfi). Það er hins vegar skoðun nefndarinnar að lögreglustjóri hljóti að jafnaði að beita innköllunarheimild þegar um er að ræða brot sem hægt er að lagfæra á stuttum tíma.
    6. Við 37. gr. Gert er ráð fyrir að ráðherra geti í reglugerð um flokkun veitinga- og gististaða sett kröfur um kunnáttu þeirra er við þann rekstur starfa og þá mismunandi eftir einstökum flokkum slíkra staða.
    7. Við 5. og 37. gr. Bætt er við ákvæðum er tryggja að tekið verði sérstakt tillit til aðgengis fatlaðra.
    Nefndin telur rétt að vekja athygli á því að þó að sagt sé í 42. gr. að úrskurðir kvörtunarnefndar séu bindandi þá verður engu að síður ávallt hægt að bera úrskurði hennar undir dómstóla uni menn ekki niðurstöðu nefndarinnar.

    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem hún flytur tillögu um á sérstöku þskj. og undir þetta rita allir nefndarmenn í samgn. hv. deildar, þar af einn með fyrirvara, Matthías Á. Mathiesen.
    Ég ætla, virðulegur forseti, ekki að hafa mörg fleiri orð um þetta álit eða það sem því tengist, vil aðeins geta þess að í nefndinni fór fram mikil vinna sem tengdist þessu máli og um það tókst í heild sinni hið ágætasta samstarf. Ég sé ástæðu til að þakka þeim mörgu sem að því komu sem og þeim sem gáfu nefndinni ábendingar og komu á hennar fund og sögðu álit sitt á málinu til viðbótar því sem fram kom í skriflegum erindum til nefndarinnar.