Staða íslensks landbúnaðar með tilliti til þróunar viðræðna um nýjan GATT-samning o.fl.

61. fundur
Þriðjudaginn 07. janúar 1992, kl. 21:01:00 (2566)

     Jón Helgason (andsvar) :
     Herra forseti. Mér virtist einmitt það sem hv. 3. þm. Reykn. sagði staðfesta það sem ég sagði. Mér heyrðist hann lesa upp að það mætti ekki setja strangari reglur en giltu í viðkomandi landi. Það var nákvæmlega það sem ég sagði eða það a.m.k. meinti ég. Við megum ekki vera með strangari reglur en aðrir.