Lánasjóður íslenskra námsmanna

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 16:28:00 (3379)

     Guðrún Helgadóttir (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég vil taka undir orð hv. 2. þm. Vestf. Svo bar til í dag að ég kom hér inn í þinghúsið utan af skrifstofu kl. 12 í dag, þá var mér af tilviljun sagt að þessi umræða ætti að fara hér fram. Mér hafði ekki verið tilkynnt það. Mér er ekki kunnugt um að þingflokksformaður minn hafi samið um það. Ég vil því spyrja: Hver samdi um þessa umræðu og hver hefur umboð til þess að festa það niður hverjir taka til máls í máli sem þessu? Sama gilti um fleiri. Ég varð vitni að því að fjöldi þingmanna hafði ekki grun um að þessi umræða ætti að fara fram og við þetta verður auðvitað ekki unað.