Dýravernd

87. fundur
Mánudaginn 24. febrúar 1992, kl. 13:49:00 (3700)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um dýravernd. Aðdragandi þessa frv. er orðinn langur og sögulegur að ekki sé meira sagt því það var 26. febr. 1974, fyrir réttum 18 árum, að menntmrh. fól þáv. dýraverndarnefnd að endurskoða lög um dýravernd nr. 21/1957, með síðari breytingum. Sex og hálfu ári síðar, í september 1981, skiluðu meiri hluti og minni hluti dýraverndarnefndar hvor sínu frv. ásamt greinargerðum en hvorugt þessara frumvarpa var raunar lagt fram á Alþingi. Í mars 1983 fól menntmrh. þá nýlega skipaðri dýraverndarnefnd að fara yfir fyrrgreind tvö frv. og semja nýtt.
    Nefndin skilaði frv. til ráherra þremur árum síðar, í maí 1986. Menntmrn. sendi frv. út til umsagnar og var frv. breytt nokkuð í framhaldi af því. Þetta frv. dýraverndarnefndar var aldrei lagt fram á Alþingi en eftir að málefni dýraverndarnefndar voru færð undir umhvrn. fékk ráðuneytið frv. til meðferðar. Fyrrv. umhvrh. fól þá dýraverndarnefnd að endurskoða frv. vegna þess að það þótti nokkuð viðamikið og ítarlegt að mati ráðuneytisins og í því ýmis ákvæði sem fremur ættu heima í reglugerð en lagatexta. Dýraverndarnefndin skilaði styttri útgáfu á frv. til ráðherra í janúar 1991. Nokkrar breytingar voru síðan gerðar á því og það var lagt fram á Alþingi til kynningar skömmu fyrir þinglok á 113. löggjafarþingi, rúmum 17 árum eftir að hafist var handa um að endurskoða dýraverndarlögin frá 1957.
    Í ágúst sl. skipaði sá er þetta mælir nefnd sem fékk það verkefni að fjalla um þessa síðustu útgáfu frv. og endurskoða lögin. Í nefndina voru skipuð þau Árni M. Mathiesen alþingismaður, Margrét Haraldsdóttir menntaskólakennari, Páll Hersteinsson veiðistjóri, Sigurður Richter dýrafræðingur og Jón Gunnar Ottósson, deildarstjóri í umhvrn., sem jafnframt var formaður nefndarinnar. Starfsmaður nefndarinnar var Þórir Ibsen frá umhvrn.
    Nefndin skilaði fullbúnu frv. í lok nóvember og það er nú lagt fram í þeirri mynd sem nefndin varð sammála um. Það frv. sem hér liggur fyrir og mælt er fyrir tekur í aðalatriðum mið af tillögum dýraverndarnefndar frá því 6. jan. 1991. Greinargerð, sem fylgdi frv., var skilað til menntmrh. í maí 1986 og athugasemdum einstakra aðila sem fengið hafa málið til meðferðar á undanförnum árum. Frv. er ætlað að koma í stað gildandi laga um dýravernd, nr. 21/1957. Helstu breytingar, sem gerðar eru, varða stjórn og skipulag dýraverndarmála og eftirlit með framkvæmd laganna. Lagt er til að í stað þeirrar dýraverndarnefndar sem starfar samkvæmt gildandi lögum komi dýraverndarráð sem taki til landsins alls. Þá er gert ráð fyrir að settar verði á stofn dýraverndarnefndir í héruðum landsins til að auka og tryggja eftirlit með framkvæmd laganna. Jafnframt er opinberum aðilum fengið nokkuð aukið vald til að grípa til aðgerða vegna illrar meðferðar á dýrum. Auk þessara helstu breytinga eru ýmis ákvæði gildandi laga umorðuð og bætt til að gera þau markvissari. Einnig eru ýmis ný ákvæði í frv. sem ekki eru í gildandi lögum.
    Í 1. gr. frv. er gildissvið laganna skilgreint sem er nýmæli. Samkvæmt greininni er lagt til að lög um dýravernd taki til allra hryggdýra. Eðlilegt þykir að leggja sérstaka áherslu á dýr sem eru í vörslu eða umsjá manna vegna þess hversu erfitt er að láta sum ákvæði frv. ná til villtra hryggdýra, t.d. fiska og fugla. Nokkur ágreiningur hefur verið um þetta atriði og hafa ýmsir talsmenn dýraverndar viljað ganga enn lengra og láta lög um dýravernd ná til allra dýra. Að mati meiri hluta þeirrar nefndar sem gekk frá frv. er það þó ekki framkvæmanlegt. Í athugasemd með greininni er áhersla lögð á að þrátt fyrir þessa takmörkun á gildissviði beri augljóslega öllum að fara vel með öll dýr.
    3. gr. frv. er sambærileg við 2. gr. gildandi laga en nokkuð ítarlegri. Áhersla er lögð á að aðbúnaður og umhirða dýra sé fullnægjandi með tilliti til tegundar viðkomandi dýrs og aldurs. Það er álitamál

hversu nákvæmur lagatextinn þarf að vera þannig að tryggt sé að hann gegni því hlutverki sem honum er ætlað. Í fyrri gerðum frv. sem dýraverndarnefnd samdi hefur textinn verið ítarlegri en í þeirri gerð sem nú hefur verið lögð fram á Alþingi. Reynt hefur verið að hafa einstakar greinar frv. stuttar í stað þess að útskýra hvert efni í smáatriðum. Áhersla er lögð á að setja almennar reglur í stað þess að tíunda öll hugsanleg dæmi sem upp kynnu að koma. Hins vegar hafa þessi vinnubrögð hugsanlega það í för með sér að hægt er að mistúlka einstök atriði, einstök ákvæði og setningar úr frv., ef menn hafa áhuga á því. Ég nefni t.d. síðustu setninguna í 3. mgr. 3. gr. sem kveður á um að forðast beri óþarfa hávaða. Þar er augljóslega ekki átt við að nauðsynlegt sé að hvísla í eldhúsinu meðan heimiliskötturinn er innan húss þótt hugsanlega væri hægt að leggja þá túlkun í þau orð. Þennan texta verður auðvitað að skoða með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Ég nefni þetta hér vegna þess að ég veit að nefndin sem undirbjó frv. færði mörg atriði, lík því sem ég nefndi, til betri vegar frá fyrri gerðum frv. og á þar þökk skilið.
    Í 4. gr. frv. eru ný ákvæði sem eru mikilvæg. Svokallaður verksmiðjubúskapur þar sem störf eru vélvædd hefur færst í vöxt hér á landi hin síðari ár. Þetta á kannski einkum og sér í lagi við búskap með hænsnfugla, svín, kálfa, loðdýr og fiska. Eftir því sem vélvæðingin er meiri því meiri er hættan á að virkt eftirlit með líðan einstakra dýra minnki. Þess vegna þótti nauðsynlegt að setja bein fyrirmæli í lög um eftirlit með dýrum á svonefndum verksmiðjubúum. Í 2. mgr. er kveðið á um að héraðsdýralæknir eða fulltrúi yfirdýralæknis skoði og samþykki vistarverur sem ætlaðar eru dýrum á stórvirkum tæknibúum.
    Í 5. gr. frv. er fjallað um þarfir og meðferð búfjár sem gengur úti, er haldið til beitar eða látið liggja við opið að vetrarlagi. Í þeim tilvikum er skylt að hafa á staðnum vistarverur við hæfi að teknu tilliti til ólíkra þarfa hinna ýmsu tegunda og er áhersla lögð á að dýrin hafi öruggt og hentugt skjól. Orðalag greinarinnar ber þess merki að þarfir hinna ýmsu tegunda eru misjafnar. Hugtökin ,,vistarverur`` og ,,öruggt og hentugt skjól`` fela í sér ólíkar kröfur eftir því um hvaða dýrategund er að ræða. Kveðið er á um daglegt eftirlit með dýrum sem látin eru liggja við opið að vetrarlagi og er þetta ákvæði ekki síst tilkomið vegna þekktra einstakra dæma um slæma meðferð á hrossum.
    Í 6. gr. frv. er kveðið á um að umhvrh. setji í reglugerð nánari fyrirmæli um aðbúnað dýra og umhirðu. Slíkar reglur yrðu settar í samráði við landbrn. samkvæmt lögum um búfjárhald, nr. 46/1991.
    7. gr. frv. er samsvarandi 3. gr. gildandi laga um dýravernd og fjallar um umgengni við dýr. Sýna skal þeim vægð og nærgætni í brúkun og kveðið er á um að einungis sé heimilt að nota dýr í keppni sem eru heilbrigð og vel þjálfuð.
    8. gr. frv. samsvarar 5. gr. gildandi laga. Þar er fjallað um mörkun dýra en sérákvæði um eyrnamörkun á fé sem er í gildandi lögum er fellt burt, enda gildir almenna ákvæðið eftir sem áður.
    9. gr. frv. er nýmæli í lögum um dýravernd. Greinin er tilkomin vegna þess hversu algengt það er að skepnur verði fyrir ökutækjum á vegum úti. Hliðstætt ákvæði er í 1. mgr. 10. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987.
    10. gr. frv. samsvarar 6. og 16. gr. gildandi laga og fjallar um skyldur gagnvart sjúkum, lemstruðum eða bjargarvana dýrum.
    Í 11. gr. frv. eru nýmæli. En það þykir eðlilegt að leggja þá skyldu á herðar eigendum og umsjónarmönnum dýra að þeir geri ráðstafanir til að hafa upp á dýrum sem villast frá heimkynnum sínum. Löggæslumönnum er heimilt samkvæmt greininni að taka þessi dýr í sína vörslu. Jafnframt er áréttað að sérreglur um skil á sauðfé samkvæmt lögum um afréttamál og fjallskil ganga framar þessu ákvæði.
    12. gr. frv. samsvarar 7. gr. gildandi laga og fjallar um flutning dýra. Ávallt skal þess gætt að útbúnaður farartækis sé góður og eftirlit sé með dýrum meðan á flutningi stendur. Gert er ráð fyrir að umhvrh. setji nánari reglur um þetta efni.
    III. kafli frv. fjallar um sérstakt dýrahald í atvinnuskyni annað en í landbúnaði.
    Í 13. gr. er kveðið á um sérstakt leyfi þurfi til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra í atvinnuskyni þegar þetta fellur ekki undir búfjárhald. Einnig þurfi sérstakt leyfi til að setja á stofn dýragarða, dýrasýningar eða dýrahappdrætti. Sérstakt leyfi þarf einnig til að veiða villt dýr fyrir dýragarða eða önnur söfn lifandi dýra. Þessi grein samsvarar að mestu leyti 4. gr. gildandi laga en er þó ítarlegri.
    Varðandi hugtakið ,,dýrahald í atvinnuskyni`` hefur sú leið verið valin að miða við að tekjur af viðkomandi starfsemi nái lágmarki virðisaukaskattslaga en þessi mörk þurfa að vera skýr svo að hægt sé að framfylgja lögunum. Hér er hugsað til ýmiss konar starfsemi, m.a. má nefna ræktun hunda til sölu og tamningu hrossa. Gert er ráð fyrir að umhvrh. setji nánari fyrirmæli um þessar leyfisveitingar í reglugerð.
    IV. kafli er um aðgerðir á dýrum og aflífun.
    14. gr. frv. svarar til 10. og 11. gr. gildandi laga. Þar er kveðið á um að dýralæknum einum sé heimilt að framkvæma læknisaðgerðir á dýrum en lyfjagjafir eru þó undanþegnar þessu ákvæði. Gert er ráð fyrir að umhvrh. setji nánari fyrirmæli í reglugerð varðandi aðgerðir á dýrum sem framkvæmdar eru án læknisfræðilegra ástæðna.
    15. gr. frv. samsvarar að mestu leyti 9. gr. gildandi laga um aflífun dýra. Umhvrh. getur samkvæmt frv. sett nánari reglur um það hvernig staðið skuli að aflífun dýra í sláturhúsum.
    V. kafli fjallar um veiðar á dýrum. Í honum er aðeins ein grein, sú 16. Þessi grein er nýmæli og til að árétta að ávallt skuli staðið þannig að verki við veiðar að það valdi dýrunum sem minnstum sársauka. Kveðið er á um að veiðimönnum sé skylt að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að aflífa dýr sem þeir hafa veitt áverka. Því miður er það of algengt að veiðimenn særi dýr og láti þar við sitja.
    Þá er hér minnt á lög um vernd, friðun og veiðar dýra. M.a. er átt við frv. sem ég mun væntanlega leggja fram á Alþingi innan fárra daga. Þar eru settar nákvæmar reglur um veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Orðalag þessarar greinar er þó með þeim hætti að ekki ætti að vera ástæða til að breyta því þótt umrætt frv. um veiðar, vernd og friðun dýra nái ekki fram að ganga á þessu þingi.
    Í VI. kafla, 17. gr., er kveðið á um tilraunir á dýrum. Greinin svarar til 12. og 13. gr. gildandi laga um dýravernd. Helsta breytingin frá þeim lögum er að í frv. er gert ráð fyrir að tilraunir með lifandi dýr verði bannaðar. Þó er heimilt að veita undanþágur frá þessu ákvæði.
    Í VII. kafla er fjallað um skipan og stjórn dýraverndarmála. 18. gr. svarar til 17. gr. gildandi laga. Umhvrh. fer með yfirstjórn allra mála er varða dýravernd. Ráðherra til ráðuneytis og aðstoðar er dýraverndarráð sem skipað er til fjögurra ára. Í ráðinu eiga sæti fimm menn, einn tilnefndur af Búnaðarfélagi Íslands, einn af Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, einn af Dýralæknafélagi Íslands og einn af Sambandi dýraverndarfélaga Íslands. Umhvrh. skipar formann ráðsins.
    Dýraverndarráð kemur í stað dýraverndarnefndar sem starfar samkvæmt gildandi lögum og er hlutverkið sambærilegt. Þessi nafnbreyting er gerð til að aðgreina dýraverndarráð frá dýraverndarnefndum sem áformað er að skipa skv. 19. gr. frv. Kveðið er á um að við setningu reglugerða, leyfisveitingar og önnur stjórnvaldsfyrirmæli er varða dýravernd skuli ætíð leita eftir tillögum eða umsögnum frá dýraverndarráði. Jafnframt skal dýraverndarráð láta dýraverndarnefndum, héraðsdýralæknum, löggæslumönnum, ákæruvaldi og dómstólum í té umsagnir um málefni er varða dýravernd. Kostnaður vegna starfsemi dýraverndarráðs greiðist úr ríkissjóði.
    Í 19. gr. frv. er kveðið á um að í hverju umdæmi héraðsdómstóls skuli skipa sérstaka dýraverndarnefnd. Umhvrh. setur í reglugerð nánari fyrirmæli um skipan þessara nefnda og hlutverk. Stofnun slíkra dýraverndarnefnda er nýmæli og meginástæða fyrir því að þær fylgja umdæmum héraðsdómstóla, sbr. lög nr. 92/1988, er að nauðsynlegt er talið að náið samstarf verði með dýraverndarnefndum og dómsvaldi. Töluverður misbrestur hefur verið á að lögum um dýravernd hafi verið framfylgt á undanförnum árum.
    VIII. kaflinn fjallar um eftirlit með framkvæmd laganna og viðurlög.
    20. gr. frv. svarar til 14. gr. gildandi laga. Þar er m.a. kveðið á um skyldur þeirra sem verða varir við illa meðferð á dýrum að tilkynna það til viðkomandi aðila. Í 3. og 4. mgr. eru heimildir til handa dýraverndarnefndum, héraðslæknum og löggæslumönnum að grípa til aðgerða vegna brota á lögum þessum.
    Í 21. og 22. gr. frv. eru ákvæði þess efnis að brot á lögunum varði sektum og varðhaldi. Jafnframt mun verða heimilt, ef frv. fær jákvæða afgreiðslu, að svipta mann leyfi með dómi til að hafa dýr í sinni umsjá hafi viðkomandi gerst sekur um stórfellt eða ítrekað brot á lögum eða þeim reglum sem settar kunna að verða með stoð í þeim.
    Í 23. gr. frv. eru ákvæði þess efnis að foreldrum eða forráðamönnum barna er skylt að sjá til þess að börn þeirra hlýðnist fyrirmælum laganna. Um rannsókn og meðferð mála vegna brota á lögum þessum skal fara samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála.
    Virðulegi forseti. Ég hef nú lokið við að fara yfir efnisatriði frv. Ég tel að tekist hafi vel til með endurskoðun og tillögur um breytingar frá gildandi lögum. Það var löngu orðið tímabært að frv. um þetta efni kæmi fram. Gildandi lög eru að mörgu leyti úrelt og nauðsynlegt að breyta þeim í samræmi við breytt þjóðfélag og breytta tíma. Ráðuneytinu hafa borist tilmæli víða að um að endurskoða lög um dýravernd og leggja frv. um það efni fyrir Alþingi. M.a. skoraði 22. kirkjuþing, sem haldið var í Bústaðakirkju 1991, á umhvrh. að leggja endurskoðað frv. til laga um dýravernd hið fyrsta fyrir Alþingi. Áskorun þessa sendi biskup Íslands, herra Ólafur Skúlason, með bréfi dagsettu 10. des. sl.
    Það er von mín að frv. fái jákvæðar undirtektir á Alþingi og fái afgreiðslu nægilega fljótt til þess að geta öðlast gildi nú í sumar.
    Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. umhvn.