Atkvæðagreiðsla með rafeindabúnaði

102. fundur
Mánudaginn 16. mars 1992, kl. 14:00:55 (4371)

     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þær skýringar sem hv. 3. þm. Austurl. hefur gefið. Það er hins vegar misskilningur hjá honum að það jafngildi mótmælum við símanum á sínum tíma þó að vakin sé athygli á því að hann greiði atkvæði með sérkennilegum hætti hér í þessari virðulegu stofnun árið 1992. Þó þingmaðurinn sé alls góðs maklegur þá tel ég ólíklegt að hann komist á spjöld sögunnar fyrir þessi mistök.