Umferðarlög

103. fundur
Þriðjudaginn 17. mars 1992, kl. 21:16:00 (4441)

     Jón Helgason :
    Herra forseti. Þegar hv. 3. þm. Reykv. var að tala varð mér ljóst að ég hafði kannski ekki tekið nógu skýrt fram að að sjálfsögðu eru þeir fyrirvarar og sú gagnrýni sem komu fram á frv. við 2. umr. í fullu gildi, þó þessi lagfæring hafi verið gerð eftir minni ábendingu. Ég ætla ekki að endurtaka það sem ég sagði um hana.