Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ekki veit ég hvað rak hv. 6. þm. Norðurl. e. í stólinn því hvergi var hann nefndur í minni ræðu og ekki heldur sá stjórnmálaflokkur sem hann starfar í nú þannig að þessu verður hann sjálfur að velta betur fyrir sér. Ég hef gefið algjörlega fullkomlega tæmandi skýringu á því hvað ég átti við með mínum orðum hér fyrr. Það stafaði m.a. af því að hv. 3. þm. Vesturl. innti mig eftir því nánar hvað ég hefði sagt í minni fyrri ræðu. Það hef ég bæði endurtekið og skýrt og þarf ekki að bæta fleiri orðum
við það.