Sinubrennur

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 15:45:00 (6542)

     Frsm. umhvn. (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá umhvn. um frv. til laga um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi.
    Umhvn. hefur fjallað um þetta frv. ítarlega. Hún leitaði umsagnar hjá fjölmörgum aðilum og fékk á fund sinn m.a. fulltrúa umhvrh. og skrifstofustjóra í dómsmrn. Einnig bárust frá dómsmrn. bréf frá flestum lögreglustjórum landsins þar sem fram kemur lauslegt mat á framkvæmd gildandi laga um sinubrennur. Þá hafði nefndin einnig til athugunar brtt. við frv. frá Pálma Jónssyni á þskj. 587.
    Umhvn. telur að skort hafi á að fyrirmælum laga nr. 8/1966, um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi, væri framfylgt. Nefndin telur þörf á að setja ný lög um efnið. Til þess að tryggja að lögum verði framfylgt þarf fræðslu og upplýsingar til almennings um skaðsemi sinubruna en jafnframt um ástæður þess að heimild er til að leyfa að brenna sinu á bújörðum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
    Nefndin leggur til að nokkrar breytingar verði gerðar á frv. og varða sumar þeirra einungis breytingu á framsetningu. Í fyrsta lagi leggur nefndin til að einungis megi brenna sinu á jörðum sem eru í ábúð eða nýttar eru af ábúendum lögbýla og að til þess þurfi leyfi sýslumanns. Gert er ráð fyrir því að ábúendur jarða geti einir fengið að brenna sinu. Nytji ábúandi lögbýlis hins vegar jörð sem ekki er byggð vegna búreksturs síns getur hann einnig fengið leyfi sýslumanns til þess að brenna sinu á þeirri jörð. Ekki er heimilað að brenna sinu eftir 1. maí ár hvert nema við sérstakar aðstæður og með leyfi sýslumanns sem gefið er í samráði við umhvrn. Verða sérstakar veðurfarslegar ástæður að gefa tilefni til slíks leyfis. Í brtt. nefndarinnar er gert ráð fyrir að þessi ákvæði komi í 1. og 3. gr.
    Þá leggur nefndin til að í sérstakri grein, 2. gr., komi fram nokkur almenn atriði sem valda því að ekki má brenna sinu, t.d. ef almannahætta stafar af eða tjón getur hlotist á náttúruminjum. Varðandi reglugerð sem umhvrh. setur leggur nefndin til að leita beri umsagnar Búnaðarfélags Íslands og Náttúruverndarráðs.
    Að lokum leggur nefndin til að breytt verði framsetningu á ákvæðum um meðferð elds á víðavangi.
    Um þetta mál hefur tekist víðtæk og góð samstaða. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj.