Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Þar sem nú hafa verið kjörnir aðalmenn í útvarpsráð tveir fulltrúar sem áður voru varamenn telur forseti eðlilegt að fram fari kjör í tvö varamannssæti sem nú eru laus, þegar á þessum fundi, ef tilbúinn er listi með nöfnum þeirra. Vil ég biðja um lista.