Skýrsla utanrrh. um niðurstöður samninga um Evrópskt efnahagssvæði

19. fundur
Þriðjudaginn 05. nóvember 1991, kl. 22:21:00 (663)

     Eyjólfur Konráð Jónsson (andsvar) :
     Herra forseti. Ég kannski mundi nú ekki segja að þetta væri ómerkilegt mál. Þetta eru mjög merkilegir hlutir sem eru að gerast eins og svo víða í heiminum í dag. Réttlætið er svo víða að sigra. Ég taldi bara ómerkilegt að vera að æsa sig upp út af því. Við erum að ná okkar rétti og auðvitað erum við glöð yfir því. Ég man nú ekki að það væri neitt sem hv. þm. sagði að öðru leyti sem ekki var réttur skilningur á því sem ég hafði látið í ljós. Það var víst ekki öðru sem ég þurfti að svara en því.