Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

35. fundur
Miðvikudaginn 27. nóvember 1991, kl. 14:55:00 (1293)

     Steingrímur J. Sigfússon :
     Hæstv. forseti. Ég vísa til þess rökstuðnings sem fram hefur komið í máli tveggja síðustu hv. ræðumanna og enn fremur til óska minna um það að efh.- og viðskn. þingsins taki til skoðunar þær brtt. og þau sjónarmið sem sett voru fram við 2. umr. málsins. Af hvorugu hefur orðið enn sem komið er, að ríkisstjórnin hafi gefið þær upplýsingar sem um var beðið né hefur efh.- og viðskn. enn átt þess kost að koma saman til að ræða þær brtt. og þau sjónarmið sem hafa verið flutt. Í ljósi alls þessa tökum við ekki þátt í atkvæðagreiðslunni að þessu sinni. Ég greiði ekki atkvæði.