Fjárlög 1992

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 16:03:00 (1853)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég tel það ekki vænlegt til þess að ná niðurstöðu í þessu máli að fara að upplýsa hér ýmsar leiðir sem eru til skoðunar með Sambandi sveitarfélaga og sveitarfélögunum um niðurstöðu í þessu máli. Eins og ég sagði, það eru ýmsar leiðir sem menn eru að skoða. Við höfum átt fundi með Sambandi sveitarfélaga og munum halda því áfram og það mun væntanlega skýrast fljótlega hvaða leiðir verða farnar í því máli.