Guðni Ágústsson
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Ég færi hæstv. landbrh. kærar þakkir fyrir hans svar. Hér er ljóst, eins og ég sagði áðan, að enn býr í honum karlmenni. En hitt er enn þá alvarlegri hlutur að hæstv. iðnrh. hefur skrökvað, svo að ég noti ekki stærri orð, hér fyrr í kvöld. Það er hart að hann skuli ekki vera í salnum þegar það er staðfest af jafnsannsöglum manni sem hæstv. landbrh. er að hann fór hér með dylgjur og rangt mál fyrir stuttu síðan.