Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 14:19:00 (1960)

     Frsm. meiri hluta fjárln. (Karl Steinar Guðnason) (um atkvæðagreiðslu) :
     Hæstv. forseti. Ég vil árétta það sem ég sagði í framsöguræðu minni í upphafi 2. umr. að þeim málum sem hér voru talin upp var ætlun meiri hluta fjárln. að fresta til 3. umr. og það er nákvæmlega sama málsmeðferð og forsrh. greindi frá hér áðan. Ég hélt að það væri samkomulag um þessa hluti milli stjórnar og stjórnarandstöðu eftir langt tal manna um meðferð mála. Og ég hélt að það kæmi mönnum ekki á óvart þótt forsrh. áréttaði þessi efnisatriði nú. Ég vil mælast til þess að það taki ekki langan tíma að ræða um það sem var löngu vitað fyrir.